Um lífið og tilveruna

  • Adda Steina

    Ég er guðfræðingur og starfa á Biskupsstofu sem verkefnastjóri samkirkju- og upplýsingamála.


  • Ummæli

    Vinsamlegast skrifið ummæli undir fullu nafni. Annað verður ekki birt. Stundum geta ummæli beðið nokkurn tíma ef ég er ekki nærri tölvu eða nettengingu. Fyrir kemur að ég samþykki ekki ummæli.

Ísland vondar fréttir

Adda Steina 11. október 2008

Ég hef verið viku í Litháen á samráðsfundi Porvoo kirknasambandsins. Það er sérkennilegt að fylgjast með hruninu heima úr litlu fundarherbergi í Vilníus þar sem Svíar, Norðmenn, Englendingar og Skotar skiptast á fréttum við Íslendinginn í öllum kaffihléum.

Norðmaður lofar láni. Norðmenn hljóti að standa við bakið á frændum sínum. Skotinn bendir á að sveitarfélagið hennar eigi peninga í Icesave og nú þurfi kannski að skera niður alla þjónustu og auka útsvar þar. Verður kennurum sagt upp?

Englendingurinn hristir bara höfuðið og hefur áhyggjur af öllum sem eiga eftir að tapa peningum og missa vinnuna.

Svíarnir hafa tekið að sér að hafa mestu áhyggjurnar og rapportera á hálftíma fresti nýjar hliðar á efnahagshruninu. Allar fréttir eru slæmar og allar hafa Ísland í miðið. Allt virðist Íslendingum að kenna. Sú þúfa sem velti af stað yfirtökunni á Glitni setti bylgjuhreyfingu af stað til austurs og suðurs.

 Fulltrúar Eystrasaltskirknanna ráðleggja okkur að treysta ekki Rússum.

Deila Brown og Haarde virkar hreinlega súrrealistísk séð úr fundarherberginu í Vilníus. Ég reyni að skilja hana með breskum kollegum en það hljómar bara svo fáránlega. Skildu menn ekki hver annan? Talar Árni Matt ekki ensku? Tala Brown og Darling ekki saman?

Eitt er víst hér - Íslendingar eru ekki góðu gæjarnir í augum flestra. Til þess hafa bissnessmennirnir okkar verið of yfirlýsingaglaðir um eigin snilli og bankarnir of gráðugir í augum Breta og Skandínava. Enginn er samt vondur við mig en nokkrir tóku vel í að kaupa Ísland þegar það var boðið upp á ebay.

Ég rakst á góða grein eftir skólabróður minn Jón Daníelsson á bbc-vefnum sem ég benti sem flestum á. Hófstillt grein, fannst mér og umfram allt ekki svartsýn í lokin.

Litháar hafa unnvörpum sótt vinnu til Evrópu. Sagt er að um milljón Litháar séu í Dublin, sem er reyndar nokkuð vafasöm tala því að þjóðin telur bara 3.5 milljón manns. Nú koma þeir heim því að í vestur Evrópu harðnar á dalnum. Hér hefur verið uppbygging undanfarið en nú er niðursveifla hér sem annars staðar. Allir horfa fram á erfiðan vetur.

Ég sé á póstinum og vefnum að kirkjurnar leggja sig fram á þessum óvissutímum. Í Grafarvogskirkju verður fjármálaumræða á undan messu á morgun, í Laugarneskirkju er kennt um hagsýni á kvöldnámskeiðum og víða taka prestar höndum saman með fulltrúum ýmissa stofnana og minna á viðtalstíma.

Á www.trú.is eru pistlar um það hvernig við getum tekið höndum saman í kreppunni. Karl biskup benti á mikilvægi þess að standa saman og sýna hvert öðru umhyggju, sr. Gunnar Kristjánsson á það tækifæri sem getur falist í kreppu og Kristín Þórunn Tómasdóttir skrifaði frá sjónarhóli móður þegar lífið fellur saman.

Þegar maður er erlendis og sér bara slæmar fréttir er auðvelt að tapa fókus á að lífið heldur áfram. Ég var orðin svo upptekin af kreppu og krepputali í gær að mér brá þegar að eiginmaðurinn hringdi og sagðist vera með yngri syninum á leið í ferð með NFS (nú ferðumst við saman) hópnum.

“Hva - þið hafið bara haldið ykkur við að fara þrátt fyrir kreppuna?” sagði ég.

“Auðvitað,” sagði hann. “Það þýðir ekkert annað.”

Það voru góðar fréttir af Íslandi.

Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Tilveran, Trúarbrögð, Umræðan, Óflokkað | Engin ummæli »

Ekki benda á mig!

Adda Steina 29. september 2008

www.visir.is Höfum séð sömu hluti gerast erlendis segir Lárus Welding

Ég er örugglega ekki eina manneskjan sem á erfitt með að átta mig á ástandinu á bankamarkaðinum.

Hvernig gátu verið í þessum stanslausa gróða sem þýddi að snillingarnir stjórnarmenn og forstjórar græddu og græddu einn dag og farið á hausinn næsta dag?

Fyrsta spurningin varðar auðvitað þennan fjáraustur sem ég skildi aldrei.

Forstjóri Glitnis fékk t.d 300 milljónir bara fyrir að skipta um starf, hann var svo gríðarlega eftirsóttur starfskraftur. Þetta er meira en við flest vinnum okkur fyrir á æfinni. Þetta er ekkert eina dæmið eða eini bankinn þar sem manni ofbauð neyslan og oflætið. Það virtust alltaf nægir peningar og allir fengu kaupauka og gilti einu hvort þeir stóðu sig vel eða illa.

Nú er búið að bjarga fyrsta bankanum, nú fara okkar peningar í  hreinsunaraðgerðir. Eiga þá þessir menn að borga til baka fyrir að hafa ekki staðið sig? Verður kaupauki tekinn af og laun lækkuð hjá ofurlaunageiranum? Var það skilyrði björgunaraðgerðanna?

Báru stjórnendur ábyrgð eða var þetta bara náttúrulögmál? Eins og það virðist náttúrulögmál að íslensk lánskjarastefna þýðir stór hluti þjóðarinnar er með hálsinn í snörunni vegna þess að hann vildi eignast þak yfir höfuðið.

Ég bíð spennt eftir svörum. 

Svo eru stærri spurningarnar svo sem hvort það hafi verið rangt að einkavæða bankana. Og ef svo er, er það þá vegna þess að hugmyndafræðin er röng eða einfaldlega af því að við höfðum ekki mannskap til að axla þá ábyrgð sem fylgir umsjón með slíku magni peninga?

Bankinn kallar mig til ábyrgðar ef ég greiði ekki af húsnæðisláninu. Það er enginn miskunn. Húsið getur farið á uppboð. Ég er ekki ósátt við það af því að ég gekk að þeim kjörum þegar ég tók lánið. Ég reyni að standa við mitt.

Ég vil ekki kalla eftir blóði fólks sem er væntanlega nú þegar með agalega timburmenn eftir neyslufylleríið en mér finnst sanngjarnt að menn axli einhverja ábyrgð. Fáum við að sjá eitthvað slíkt?

Eða er bara barnaskapur að biðja um það?

Verður þetta bara alltaf eins og í laginu hans Bubba: Ekki benda á mig!

Önnur og kannski alvarlegri spurning er hvað rúllar nú í kjölfar þess að ríkið yfirtekur bankann. Hvaða fyrirtæki sjá skrúfað fyrir fjármagn til sín, hvaða fólk á eftir að missa vinnuna? Mun yfirtakan ýta undir slíkt ástand eða mun hún valda því?

Fyrri spurningar æsa upp í mér reiði yfir birtingarmyndum þess sem mér finnst græðgi og skammsýni sem bitnar  á náunganum. Seinni spurningin vekur hins vegar ótta og samúð með þeim sem hugsanlega verða fórnarlömb þessara aðstæðna.

Næstu dagar munu efalítið svara mörgum minna spurninga. Guð gefi að svarið við þeirri síðari verði ekki raðgjaldþrot og atvinnuleysi.

Fært undir Fjölmiðlar, Stjórnmál, Umræðan | Engin ummæli »

Manstu þegar barnið fæddist?

Adda Steina 5. september 2008

www.visir.is Að borða starfsánægju í öll mál

Það er einstök upplifun að fæða barn. Hún getur verið góð - og er það vonandi í flestum tilvikum - en hún getur líka verið erfið, sársaukafull og slæm.
Ég hef upplifað eina sársaukafulla og erfiða og aðra mjög góða. Það skipti höfuðmáli í þeirri erfiðu að hafa góða ljósmóður sem ég treysti. Og það er staðreynd að þegar konur skiptast á reynslusögum af fæðingum þá skiptir ljósmóðirin miklu máli.
Þetta er ekki stór hópur og krafan er launaleiðrétting. Ég sá í Mogganum í morgun að hún myndi kosta ríkið 10 milljónir á mánuði. Ef nú eru ekki aðstæður til að leiðrétta launin, þá eru heldur ekki aðstæður til að fara í helgarferð til Kína fyrir 5 milljónir. Eða fagna handboltalandsliði fyrir 30 milljónir.
Staðreyndin er sú að það að uppfylla kröfu ljósmæðra hefur ekkert með efnahagsumhverfið að gera. Og þá grunar mann að eitthvað annað búi að baki.

Fært undir Efnahagur, Stjórnmál, Tilveran, Umhverfi, Umræðan | 1 ummæli »

Trúin samfara nægjusemi er mikill gróðavegur

Adda Steina 2. september 2008

Ég er áskrifandi að ritningarversi og bæn að morgni dags sem sent er úr almanaki Þjóðkirkjunnar á trú.is. Í morgun voru orðin hressileg áminning um að binda ekki allt sitt trúss við efnahagsgróða og forgengilega hluti:

Já, trúin samfara nægjusemi er mikill gróðavegur. Því að ekkert höfum við inn í heiminn flutt og ekki getum við heldur flutt neitt út þaðan.
Ef við höfum fæði og klæði þá látum okkur það nægja. En þeir sem ríkir vilja verða falla í freistni og lenda í snöru alls kyns óviturlegra og skaðlegra fýsna er sökkva mönnunum niður í tortímingu og glötun.
Fégirndin er rót alls ills. Við þá fíkn hafa nokkrir villst frá trúnni og valdið sjálfum sér mörgum harmkvælum.
En þú, Guðs maður, forðast þú þetta en stunda réttlæti, guðrækni, trú, kærleika, stöðuglyndi og hógværð.
(úr 1. Tímóteusarbréfi 6.6-12)

Hægt er að gerast áskrifandi á http://www.tru.is/almanak.

Fært undir Fjölmiðlar, Heilbrigði, Tilveran, Trúarbrögð, Trúin, Óflokkað | Engin ummæli »

Silver is the new gold

Adda Steina 24. ágúst 2008

www.visir.is Með silfur um hálsinn

Ok - þeir unnu ekki síðasta leikinn en það er engin ástæða til að gráta - silfrið er frábær árangur. Það var súrrealískt að horfa á verðlaunaafhendinguna. Spánverjarnir sem unnu sinn síðasta leik og voru í 3ja sæti voru eiturhressir. Íslendingarnir með silfur rétt brostu í annað.

Við erum þjóð sem getur talið allar medalíur á ólympíuleikum á fingrum annarrar handar (ef við miðum við að þetta hafi verið ein verðlaun í dag). Melbourne 1956 silfur, LA 1984 brons og Sydney 2000 brons. Við höfum alltaf fagnað gýfurlega og það gerum við í dag líka - Silver is the new gold.

Áfram Ísland og kveðjur til Kína.

Fært undir Fjölmiðlar, Umræðan, Óflokkað | Engin ummæli »

Írar með timurmenn

Adda Steina 15. júní 2008

Komin í bæinn eftir útileguhelgi - mitt fyrsta verkefni (eftir þessa færslu) verður að skrifa leiðbeiningar um það hvernig á að tjalda tjaldinu okkar, við gleymum því  alltaf frá ári til árs.

Tilgangur greinarinnar er hins vegar að benda á pistil Björns Friðfinnssonar um atkvæðagreiðslu Íra um nýja Evrópusáttmálann - svokallaðan Lissabon sáttmála. Greinin er skýr og góður inngangur fyrir þá sem ekki eru alltaf að kynna sér Evrópumálin.

Hann segir meðal annars

Sjálfsagt vakna ýmsir Írar upp við timburmenn, þegar úrslitin liggja fyrir. Staðreyndin er sú að fáar þjóðir hafa uppskorið meiri árangur af Evrópusambandsaðild en Írar og skýringar á ástæðum úrslitanna hljóta því að að vera torveldar fyrir írska ráðamenn.

Fært undir Bloggarar, Fjölmiðlar, Stjórnmál, Umræðan | Engin ummæli »

Svarthöfði og ég

Adda Steina 12. júní 2008

DV ýjar að því á baksíðu í dag að ég hafi svo mikil völd að ég geti þurrkað út atburði hjá fréttastofu Stöðvar 2. Upplýsingarnar hafa þeir frá hinni ábyrgu fréttasíðu félagsins Vantrúar sem hafði sömu frétt uppi um tíma í gær, en tók hana svo út. Vantrúarmenn töldu líka að Þjóðkirkjan hefði haft áhrif á myndbirtingu á Mogganum – væntanlega voru það líka mín völd þar á bæ sem réðu úrslitum enda vita allir blaðamenn Moggans að ég er hinn nýi skuggaritstjóri blaðsins.

Ég var svolítið undrandi að DV skyldi éta upp þessa vænisýki úr Vantrú en það er kannski ekki svo undarlegt að þeir telji mig færa í flestan sjó því að þeir hafa líka heimildir fyrir því að ég hafi gengið á hólm við hið illa og haft betur – eða eins og þeir orða það: ég hafi gripið til varna á vettvangi og tekist að komast milli Svarthöfða og biskups.

Ég er stolt af þessu meinta afreki. Áttu ekki sjálfir Jedi-stríðsmennirnir fullt í fangi með Svarthöfða?  Tvisvar hætti ég mér nærri þessari táknmynd hins illa.  Í fyrra sinnið bað ég hann að færa sig og tók myndir – sem var mitt hlutverk á staðnum. Hann stóð ógnandi og gaf frá sér undarleg hvæsandi hljóð. Það er örugglega nóg til að skelfa einhverja en ég er móðir tveggja drengja og öllu vön í grímubúningabransanum, þar á meðal ískri og hvæsi  - og flýði því ekki af hólmi. Í seinna skiptið tók ég mynd af honum en hann kom of nærri mér - ógnandi eins og vondu kallarnir eiga að vera - og eyðilagði þannig myndina.

Það er líka í lagi, ég á fullt af grímubúningamyndum af strákunum mínum og þeir voru miklu flottari. Gott ef einn búningurinn þeirra var ekki Svarthöfðabúningur. Yngri sonurinn á ennþá Star Wars sverð. Kannski ég hafi það með mér næst á prestastefnu.

 Allt var þetta áður en ég frétti að Vantrúarfélagar hefðu staðið fyrir þessari uppákomu, sem eins og einn kunningi minn orðaði það „var fyndin á sama hátt og þegar nakinn maður hleypur út fótboltavöll í landsleik.“

Fært undir Fjölmiðlar, Lífið, Tilveran, Trúarbrögð, Umræðan | Engin ummæli »

Vegvísir til Evrópu

Adda Steina 18. maí 2008

www.visir.is Vegvísir að Evrópu

Faðir minn, Björn Friðfinnsson, er farinn að blogga um Evrópumál, umverfis - og orkumál , alþjóðamál og Grímsey hér á Vísisblogginu. Slóðin er blogg.visir.is/bjornf og þar er ítarlegri grein um Vegvísi til Evrópu sem birtist í Fréttablaðinu í dag.

Fært undir Alþjóðamál, Bloggarar, Stjórnmál, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Þegar ég var meisuð

Adda Steina 23. apríl 2008

Að kveldi 3. október 1990 var ég stödd á Berlín Alexanderplats í Berlín að fylgjast með mótmælum vegna sameiningar Þýskalands. Óeirðalögregla hafði verið kölluð til og maður vissi að það gæti verið stutt í táragasið. Ég var þarna sem blaðamaður, með skírteini í bandi um hálsinn, vottuð af stjórnvöldum og í fullum rétti til að vera á staðnum.

Lögreglan var í fullum rétti að dreifa mótmælendum áður en allt færi úr böndunum. Til þess var notað táragas. Ég man ennþá hvað sveið og ég blindaðist af tárum. Við hjónin, bæði þarna sem fréttamenn, hlupum grátandi í skjól í neðanjarðarlestarskýli nálægt. Ekki datt okkur þó í hug að kveinka okkur, þetta er bara nokkuð sem maður getur átt von á - það þýðir ekkert að veifa blaðamannapassanum í myrki framan í óeirðalögreglu með táragas.

Þetta atvik kom í hugann í dag þegar ég horfði á atganginn við Suðurlandsveg. Fjölmiðlafólk velti vöngum yfir því hvort lögregla hefði gengið of harkalega fram og hvort þeir sem ekki voru að mótmæla en voru bara á staðnum gætu farið fram á skaðabætur út af piparúða.

“Ég meina, meisa fjölbrautarskólakrakka, hvaða vit er það?” sagði einn viðmælenda stöðvar tvö. Ef þetta voru sömu krakkarnir og klæddu sig upp sem Nazistar og  hentu eggjum í lögreglu og egndu hóp manna með piparúða , “meis”, þá myndi ég spyrja á móti “hvaða vit var það?”

Greinilega var hópur fólks mættur til að skemmta sér við að kasta eggjum og “skapa stemningu” eins og einn ungur eggjakastari sagði í viðtali.

Ef fólk er að abbast upp á lögreglumenn við skyldustörf þar sem piparúða er beitt, verður það að vera manneskjur til að taka því ef það fær piparúða í augun - og ekki væla yfir því.

Auðvitað þótti mér, eins og mörgum fleirum, atgangurinn harður þarna, en það var á báða bóga. Í upphafi var greinilegt að lögregla reyndi að tala menn til og fá þá til að færa sig með góðu. Það gekk ekki. Ef til vill á eftir að koma í ljós að lögregla hafi í einhverjum tilvikum gengið of harkalega fram í dag. Það verður þá örugglega nægilega detaljerað í fjölmiðlum og víðar og vonandi læra menn af því. En það dugði greinilega ekki að tala mjúklega til fólks, þarna var æsingur og ástandið farið úr böndunum.

Ég las viðtal við manninn sem henti grjóti í lögregluna, sem sjá mátti á Mbl.is. Hann hafði fengið piparúða í augun og var svo reiður að hann ákvað að nýta kunnáttuna úr handboltanum og grýta lögreglu. Og hennti engum smá hnullungi. Ég er fegin að ég er ekki mamma þessa drengs, hann verðskuldar að vera rasskelltur.

Ekki datt mér í hug að henda grjóti í lögreglu þó að ég væri “meisuð” í Berlín í den. Hefði auðvitað átt að íhuga málsókn, miðað við fréttaspurningar í dag. En staðreyndin er sú að ég vissi að ég gæti orðið fyrir táragasi, tók áhættuna - og afleiðingunum.

Fært undir Fjölmiðlar, Stjórnmál, Tilveran, Umræðan | Engin ummæli »

Vegatálmar og Abbas

Adda Steina 23. apríl 2008

www.visir.is Sakar lögreglu um óþarfa harðræði

Ég var lengi róleg yfir mótmælum vörubílstjóra. Skildi afstöðu þeirra þó að ég hefði áhyggjur af því að stoðbrautum höfuðborgarsvæðisins væri lokað á annatíma með vegartálmum í formi trukka. En í gærkvöldi þótti mér eiginlega nóg um.

Ég hef nefnilega verið í Palestínu og beðið þess að komast leiðar minnar við fjölmarga vegatálma sem settir eru upp af Ísraelsmönnum á herteknum svæðum og bitna á Palestínumönnum. Abbas er ekki ókunnur vegartálmum, hann þarf oft að glíma við þá í heimalandi sínum. Þess vegna fannst mér sárt að settur væri upp vegartálmi við Bessastaði í gær, einmitt þegar Abbas var þar. Ég hefði haft minni áhyggjur ef þetta hefði verið Georg Bush eða Gordon Brown. En mér finnst að eitt af því sem við ættum að geta boðið Abbas væri að aka um vegi án vegartálma.

Og af fréttum í morgun eru fleiri að missa þolinmæðina.

Fært undir Alþjóðamál, Fjölmiðlar, Stjórnmál, Umræðan | Engin ummæli »

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning