Silver is the new gold
Adda Steina 24. ágúst 2008
Með silfur um hálsinn Ok - þeir unnu ekki síðasta leikinn en það er engin ástæða til að gráta - silfrið er frábær árangur. Það var súrrealískt að horfa á verðlaunaafhendinguna. Spánverjarnir sem unnu sinn síðasta leik og voru í 3ja sæti voru eiturhressir. Íslendingarnir með silfur rétt brostu í annað.
Við erum þjóð sem getur talið allar medalíur á ólympíuleikum á fingrum annarrar handar (ef við miðum við að þetta hafi verið ein verðlaun í dag). Melbourne 1956 silfur, LA 1984 brons og Sydney 2000 brons. Við höfum alltaf fagnað gýfurlega og það gerum við í dag líka - Silver is the new gold.
Áfram Ísland og kveðjur til Kína.
Ég er guðfræðingur og starfa á Biskupsstofu sem verkefnastjóri samkirkju- og upplýsingamála.