Fært af Adda Steina þann 15. júní 2008
Komin í bæinn eftir útileguhelgi - mitt fyrsta verkefni (eftir þessa færslu) verður að skrifa leiðbeiningar um það hvernig á að tjalda tjaldinu okkar, við gleymum því alltaf frá ári til árs.
Tilgangur greinarinnar er hins vegar að benda á pistil Björns Friðfinnssonar um atkvæðagreiðslu Íra um nýja Evrópusáttmálann - svokallaðan Lissabon sáttmála. Greinin er skýr og góður inngangur fyrir þá sem ekki eru alltaf að kynna sér Evrópumálin.
Hann segir meðal annars
Sjálfsagt vakna ýmsir Írar upp við timburmenn, þegar úrslitin liggja fyrir. Staðreyndin er sú að fáar þjóðir hafa uppskorið meiri árangur af Evrópusambandsaðild en Írar og skýringar á ástæðum úrslitanna hljóta því að að vera torveldar fyrir írska ráðamenn.
Fært undir Bloggarar, Fjölmiðlar, Stjórnmál, Umræðan | Engin ummæli »
Fært af Adda Steina þann 18. maí 2008
Vegvísir að Evrópu Faðir minn, Björn Friðfinnsson, er farinn að blogga um Evrópumál, umverfis - og orkumál , alþjóðamál og Grímsey hér á Vísisblogginu. Slóðin er blogg.visir.is/bjornf og þar er ítarlegri grein um Vegvísi til Evrópu sem birtist í Fréttablaðinu í dag.
Fært undir Alþjóðamál, Bloggarar, Stjórnmál, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Adda Steina þann 10. maí 2007
Halldór Reynisson skrifar um tíu kristin heilræði til umhugsunar fyrir kjósendur á www.tru.is. Þau eru fengin frá samtökum kirkna í Bandaríkjunum sem settu þau fram fyrir kosningarnar 2004. Þarna eru dregin fram kristin grunngildi sem eiga ágætlega við hér á Fróni.
Fyrsta heilræðið fjallar um stríð og frið:
Stríð er andstætt vilja Guðs: Enda þótt stundum geti verið réttlætanlegt að beita valdi sem hinsta úrræði þá blessar Kristur friðflytjendur, sbr. sæluboðin. Við þörfnumst leiðtoga sem sækjast eftir friði með réttlæti og leita lausna á ágreiningi á friðsaman hátt.
Heilræði númer 7 fjallar um innflytjendur:
Ritningarnar kenna kristnum mönnum að bjóða útlendinga velkomna. Við þörfnumst sanngjarnrar löggjafar um innflytjendamál og að vera laus við útlendingahatur eða hræðslu.
Lesa pistil Halldórs á www.tru.is
Fært undir Alþjóðamál, Bloggarar, Stjórnmál, Trúarbrögð, Trúin, Óflokkað | 1 ummæli »
Fært af Adda Steina þann 31. mars 2007
Ég sat við sjónvarpið, horfði á Stöð 2 og beið eftir fyrstu tölum úr Hafnarfirði. Íþróttafréttir voru rofnar (mér algjörlega að meinalausu) til að sjónvarpa beint og spennan jókst.
Formaður kjörnefndar kominn í stólinn, vélin á honum en , æ - það þurfti að bíða eftir RÚV. Og það var beðið þar til RÚV hafði stillt vélina á rétt myndefni. Heimir Már fréttamaður sagði eitthvað í þá átt að rétt væri að leyfa þeim að vera með….
Mbl.is og Vísir.is eru ekki í svo kurteisum gír og fram fer metnaðarfull keppni um mínúturnar - hver er fyrstur með tölurnar. Og svo er bloggað um það. Minnir á fyrstu ár markaðsútvarpsins þegar Bylgjan kenndi þjóðinni að fréttir ættu að berast strax, ekki bíða til kvölds. Þá var svona kapp milli útvarpsstöðvanna.
Stundum er gaman að vera til og nú fara lokatölur að berast. Í beinni á Vísi.
Fært undir Bloggarar, Fjölmiðlar, Stjórnmál | 3 ummæli »
Fært af Adda Steina þann 21. mars 2007
Í dag er alþjóðlegur baráttudagur gegn kynþáttamisrétti. Kl 17 hefst í Smáralind viðburður til að vekja athygli á þessu þar sem litaglatt ungt fólk býður upp á fjölmenningarspjall, sælgæti og barmmerki. Keppendur í x factor ætla líka að taka þátt í viðburðinum og syngja fyrir gesti og gangandi.
Á kynningarspjaldi vegna átaksins stendur: Dæmir þú fólk eftir útlitinu? Inn við beinið erum við öll eins.
Þjóðkirkjan er meðal þeirra sem stendur að verkefninu og á vef hennar eru frekari upplýsingar.
Fært undir Alþjóðamál, Bloggarar, Heilbrigði, Lífið, Menning og listir, Stjórnmál, Tilveran, Umræðan, Óflokkað | 1 ummæli »