Fært af Adda Steina þann 2. september 2008
Ég er áskrifandi að ritningarversi og bæn að morgni dags sem sent er úr almanaki Þjóðkirkjunnar á trú.is. Í morgun voru orðin hressileg áminning um að binda ekki allt sitt trúss við efnahagsgróða og forgengilega hluti:
Já, trúin samfara nægjusemi er mikill gróðavegur. Því að ekkert höfum við inn í heiminn flutt og ekki getum við heldur flutt neitt út þaðan.
Ef við höfum fæði og klæði þá látum okkur það nægja. En þeir sem ríkir vilja verða falla í freistni og lenda í snöru alls kyns óviturlegra og skaðlegra fýsna er sökkva mönnunum niður í tortímingu og glötun.
Fégirndin er rót alls ills. Við þá fíkn hafa nokkrir villst frá trúnni og valdið sjálfum sér mörgum harmkvælum.
En þú, Guðs maður, forðast þú þetta en stunda réttlæti, guðrækni, trú, kærleika, stöðuglyndi og hógværð.
(úr 1. Tímóteusarbréfi 6.6-12)
Hægt er að gerast áskrifandi á http://www.tru.is/almanak.
Fært undir Fjölmiðlar, Heilbrigði, Tilveran, Trúarbrögð, Trúin, Óflokkað | Engin ummæli »
Fært af Adda Steina þann 13. október 2007
Mogginn bjargaði deginum í morgun með grein um að of mikil þrif væru asmavaldandi. Fram kemur í greininni að notkun hreinsiúðabrúsa og lyktareyðandi úðabrúsa einu sinni í viku auki líkurnar á því að fólk fái asma. Eftir því sem efnin eru notuð oftar og tegundirnar fleiri, því meiri eru líkurnar á asmatilfelli.
Ég hef alltaf fundið þetta á mér og keppst við að halda asma frá fjölskyldunni með takmarkaðri hreinsiúðanotkun. Gott að fá það vísindalega staðfest að ég gerði rétt.
Fært undir Heilbrigði, Lífið, Tilveran, Umhverfi, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Adda Steina þann 27. maí 2007
Við unnum! - í okkar flokki. Átakið “hjólað í vinnuna” var tekið með trompi á Biskupsstofu og við enduðum efst í okkar flokki í fjölda hjóladaga. Okkar flokkur er fyrirtæki með 30 - 69 starfsmenn.
Þegar ljóst var snemma í maí um áhuga starfsfólks á hjólamennsku var markið sett hátt og boðað til reiðhjólamessu í Þingvallakirkju 25. maí. Og þó að meirihlutinn hafi tekið rútu þá voru 12 manns sem hjóluðu í messuna - ýmist alla leið eða hluta hennar.
Ég var ein af þeim sem lögðu af stað úr Grafarvogi laust eftir hádegi á reiðhjóli. Allt gekk vel upp að Gljúfrasteini. Þá fór að rigna aðeins. Og þar sem skjólsins af Esju naut ekki lengur var norðanáttin ísköld og hvöss. Það skánaði ekki eftir því sem ofar dró á Mosfellsheiði. Vindurinn var bæði til hliðar og á móti.
Framanaf yljaði ég mér við það hve gaman yrði að fara niður af heiðinni til Þingvalla en þegar upp var komið var vindurinn hvassari en nokkru sinni og allsendis ómögulegt að láta sig renna niður brekku - maður varð að puða á hjólinu og mjaka því áfram niður hallann - og á sama tíma berjast við móthliðarvindinn til að halda sér að veginum.
Ég þáði aðstoð fylgdarbíls og skammast mín ekki fyrir það. Ég vil reyndar halda því fram að ég hafi fari tvöfalda vegarlengd því að ég sikksakkaði svo mikið vegna hliðarvindsins. Sumir hjóluðu þó alla leið. Þeirra heiður er því meiri.
Það var hress hópur sem settist inn í kirkju og hlýddi á hugleiðingu um að “hinir síðustu verði fyrstir og hinir fyrstu síðastir”. Síðan þyrptumst við í nálægan sumarbústað til að hlýja okkur og grilla saman.
Ég lærði nokkrar dýrmætar lexíur:
1) Það er ekkert mál að hjóla á Þingvöll ef vindátt er hagstæð (eða engin)
2) mótvindur er ekki slæmur ef hann er í bakið, annars ómögulegur.
3) stór karfa framan á hjóli tefur mikið fyrir í roki.
En við ætlum hiklaust að skunda aftur á Þingvöll. Það verður átakið: Hjólað í messuna.
Fært undir Ferðalög, Heilbrigði, Tilveran, Vinir og fjölskylda | 2 ummæli »
Fært af Adda Steina þann 18. maí 2007
Það er hugur í okkur á Biskupsstofu. Við höfum verið í fyrsta sæti í okkar flokki í átakinu Hjólað í vinnuna næstum óslitið þetta árið og ætlum að vinna. Þarna er meðalaldur við aldur og velgengnin felst í ástundun og stemningu, að sögn liðsstjórans. Við reyndum að grípa stemninguna á stutt myndband hádeginu í dag og afraksturinn er á vef kirkjunnar.
Fært undir Heilbrigði, Lífið, Tilveran, Vinir og fjölskylda, Óflokkað | 2 ummæli »
Fært af Adda Steina þann 26. mars 2007
Allt í einu var búið að samþykkja að vændi væri löglegt á Íslandi. Á síðustu dögum þingsins varð þetta eitt af þeim málum sem brýnt þótti að kýla í gegn.
Mig grunar að það hafi farið með fleiri eins og mig að við vorum ekki að fylgjast nægilega vel með umræðunni og vorum því gripin í bólinu – höfðum hreinlega sofnað á verðinum. Ég vissi af sænsku leiðinni – og hélt að það yrði sú leið sem tekist yrði á um. Var sjálf hlynnt henni því að ég tel að lagaramminn eigi að hjálpa þeim sem leiðst hafa út í vændi til að losna úr því – án þess að lenda í fangelsi fyrir ólöglega atvinnustarfsemi.
Hins vegar hef ég enga samúð með þeim sem nýta sér neyð vændiskvenna.
Reyndin varð sumsé sú að vændi er löglegt á Íslandi. En þriðji aðili má ekki hagnast. Frétt Stövar 2 á laugardag um sýndi skemmtilegan vinkil: má þá ríkissjóður hagnast með skattheimtu af starfseminni?
Ég var viðstödd tvær fermingarmessur í gær. Þegar ég horfði á fermingarbörnin í hvítu kyrtlunum, velti ég því fyrir mér hvaða skilaboð ríkisstjórnin sendi unglingunum með samþykkt þessa frumvarps. Í handbók kirkjunnar er ávarp til safnaðarins eftir fermingu þar sem foreldrar og ættingjar eru minntir á ábyrgð sína sem uppalendur. Þar segir:
Vörumst að hneyksla þau, hafa illt fyrir þeim eða leiða þau afvega á nokkurn hátt, en ástundum með orðum og eftirdæmi að halda þeim á hinum góða vegi, sem liggur til eilífs lífs.
Vændi kann að vera löglegt en ég ætla ekki að benda sonum mínum á það sem mögulega atvinnugrein, og ekki kenni ég þeim heldur að sjálfsagt sé að kaupa sér kynlíf. Fyrst Alþingi tekur þessa ákvörðun veitir víst ekki af að minna okkur foreldra og forsjármenn á að við erum fyrirmyndin og okkar gildismat er það sem börnin taka í arf.
Fært undir Heilbrigði, Stjórnmál, Trúin | 7 ummæli »
Fært af Adda Steina þann 21. mars 2007
Í dag er alþjóðlegur baráttudagur gegn kynþáttamisrétti. Kl 17 hefst í Smáralind viðburður til að vekja athygli á þessu þar sem litaglatt ungt fólk býður upp á fjölmenningarspjall, sælgæti og barmmerki. Keppendur í x factor ætla líka að taka þátt í viðburðinum og syngja fyrir gesti og gangandi.
Á kynningarspjaldi vegna átaksins stendur: Dæmir þú fólk eftir útlitinu? Inn við beinið erum við öll eins.
Þjóðkirkjan er meðal þeirra sem stendur að verkefninu og á vef hennar eru frekari upplýsingar.
Fært undir Alþjóðamál, Bloggarar, Heilbrigði, Lífið, Menning og listir, Stjórnmál, Tilveran, Umræðan, Óflokkað | 1 ummæli »