Fært af Adda Steina þann 5. september 2008
Að borða starfsánægju í öll mál Það er einstök upplifun að fæða barn. Hún getur verið góð - og er það vonandi í flestum tilvikum - en hún getur líka verið erfið, sársaukafull og slæm.
Ég hef upplifað eina sársaukafulla og erfiða og aðra mjög góða. Það skipti höfuðmáli í þeirri erfiðu að hafa góða ljósmóður sem ég treysti. Og það er staðreynd að þegar konur skiptast á reynslusögum af fæðingum þá skiptir ljósmóðirin miklu máli.
Þetta er ekki stór hópur og krafan er launaleiðrétting. Ég sá í Mogganum í morgun að hún myndi kosta ríkið 10 milljónir á mánuði. Ef nú eru ekki aðstæður til að leiðrétta launin, þá eru heldur ekki aðstæður til að fara í helgarferð til Kína fyrir 5 milljónir. Eða fagna handboltalandsliði fyrir 30 milljónir.
Staðreyndin er sú að það að uppfylla kröfu ljósmæðra hefur ekkert með efnahagsumhverfið að gera. Og þá grunar mann að eitthvað annað búi að baki.
Fært undir Efnahagur, Stjórnmál, Tilveran, Umhverfi, Umræðan | 1 ummæli »
Fært af Adda Steina þann 27. febrúar 2008
Góð verk dregin fram í dagsljósið Það er ástæða til að samfagna Hjálparæðishernum sem hlaut samfélagsverðlaun Fréttablaðsins. Ég hef kynnst starfi hersins á undanförnum árum og því ágæta fólki sem þar vinnur einstaklega fórnfúst starf.
Nýlega opnaði herinn dagvist fyrir útigangsfólk að Eyjaslóð 7 og er jafnframt nytjamarkaður á neðri hæð þess húsnæðis. Dagvist sem þessi er afar mikilvæg fyrir þau sem ekki eiga í hús að venda yfir daginn en þiggja gistingu í konukoti eða gistiskýlinu á næturna.
Þarna er hægt að þvo af sér, borða, hvíla sig og fá ýmis konar aðstoð.
Ég hvet þau sem hafa aflögu eitthvað fyrir nytjamarkaðinn að drífa sig með það á Eyjaslóð - nú eða fara og kíkja á úrvalið. Ég náði mér t.d. í nýtt straujárn þar þegar kviknaði í því gamla.
Til hamingju, Anne Marie, Harald og aðrir Hermenn Krists.
Fært undir Fjölmiðlar, Umhverfi | Engin ummæli »
Fært af Adda Steina þann 25. janúar 2008
Fræðslustjóri Reykjavíkur hvetur fólk til þess að halda börnum heima.
Þessi frétt kom í útvarpinu kl. 8.08. Þá var ég búin að skila einu barni í skóla (að vísu í menntaskóla) og faðirinn á leið með yngra barnið í grunnskóla. Drengurinn sjálfur búinn að hringja í skólann og heyra að þar sé kennsla.
Hvusslags rugl er þetta? Veit fræðslustjóri ekki að kl. 8.08 eru flestir komnir í skólann eða langleiðina þangað því að kennsla byrjar 8.10. Þessi tilkynning kom allt of seint fyrir foreldra þeirra 30.000 grunnskólabarna sem búa á höfuðborgarsvæðinu, þar af líklega rúmur helmingur í Reykjavík.
Þar fyrir utan sýndist mér nú alveg fært í skólann. Það var þæfingur á götum en flestir krakkar eru í göngufæri frá skólanum sínum og ábyrgðarfullir foreldrar fylgja litlum börnum ef veður er vont. Ég ók framhjá fleiri skólum í morgun á sá börnin keifa í gegnum fjúkið og inn í skólann. Strætó gekk eins og venjulega.
Fræðslustjóra er kannski vorkunn því að það var mjög vont veður í útvarpinu, og ekki skal ég draga í efa ófærð utanbæjar. En þá verða menn að vera hugrakkir og tilkynna svona hluti ekki síðar en 7.30. Þá þiggja blessuð börnin eflaust að vera heima og hafa það gott og foreldrar geta gerð viðeigandi barnagæsluráðstafanir. Annars verður þetta bara óreiða og óöryggi, fyrir utan pirringinn hjá þeim sem fóru í skólann en fréttu síðan að þau hefðu getað verið heima!
Fært undir Fjölmiðlar, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Óflokkað | 1 ummæli »
Fært af Adda Steina þann 22. janúar 2008
Lítil rúta lagðist á smábíl í dýrvitlausu veðri á Kjalarnesi “Lítil rúta lagðist á smábíl í dýrvitlausu veðri á Kjalarnesi”
Þetta er með fyndnari fyrirsögnum sem ég hef séð, þó að tilefnið sé síst af öllu gleðilegt. Maður sér fyrir rándýrið rútuna leggjast á litla bílinn, enda allt dýrvitlaust.
Fært undir Fjölmiðlar, Umhverfi | 1 ummæli »
Fært af Adda Steina þann 21. október 2007
Það er alveg sama hvenær ég tek strætó nr. 6, hann er alltaf fullur af fólki. Ekki svo fullur að ég þurfi að standa allan tímann, ég reyni að forðast þá vagna, en setið í flestum sætum. Meira að segja kl. 10.30 á sunnudagsmorgni.
Ég er svo heppin að búa og vinna við þessa góðu strætóleið og nú kemur vagninn á 15 mín. fresti á daginn. Það hefur örugglega aukið notkuna vagnanna, sem og ókeypis strætókort. Hvort tveggja komst á í tíð fyrri meirihluta hjá borginni. Sem og frístundakortin og breytt afstaða til einkaskólanna, sem eru eini raunhæfi kostur fjölda barna og foreldra. Svo bættu þeir líka gangstéttina við húsaröðina okkar og breyttu hættulegu göngusvæði í öruggt. Það hafði gamli R-listinn ekki viljað gera.
Ég er ennþá svolítið svekkt yfir þessum breytingum hjá borginni. Núverandi listi hefur ekki verið við völd í viku. Líklega þarf að gefa þeim séns. Best að bíða og sjá og nota strætó meðan hann gengur á 15 mínútna fresti.
Fært undir Ferðalög, Stjórnmál, Umhverfi | Engin ummæli »
Fært af Adda Steina þann 18. október 2007
Ég sá ljósið - engil í skýjunum sem dreifði birtu til jarðar. Starði hugfangin á þetta fallega náttúrufyrirbrigði þangað til ég áttaði mig á því að þetta var ekki engill eða ljósbrigði í skýjum heldur ljóssúla Yoko Ono sem sést alla leið hingað í Foldahverfið.
Nú hef ég amk vísi að skoðun á þessari ljósasúlu sem ég hafði alveg leitt hjá mér. Mér finnst þetta fallegt. ´Eg er ekki viss um að það stuðli að heimsfriði, en séð héðan úr Grafarvoginum var það tilbreyting á vetrarhimninum og gladdi sálina.
Fært undir Menning og listir, Tilveran, Umhverfi, Umræðan | Engin ummæli »
Fært af Adda Steina þann 13. október 2007
Mogginn bjargaði deginum í morgun með grein um að of mikil þrif væru asmavaldandi. Fram kemur í greininni að notkun hreinsiúðabrúsa og lyktareyðandi úðabrúsa einu sinni í viku auki líkurnar á því að fólk fái asma. Eftir því sem efnin eru notuð oftar og tegundirnar fleiri, því meiri eru líkurnar á asmatilfelli.
Ég hef alltaf fundið þetta á mér og keppst við að halda asma frá fjölskyldunni með takmarkaðri hreinsiúðanotkun. Gott að fá það vísindalega staðfest að ég gerði rétt.
Fært undir Heilbrigði, Lífið, Tilveran, Umhverfi, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Adda Steina þann 16. júlí 2007
Þurrasti júní síðan mælingar hófust, stóð í blaði í dag. Júlí stefnir í að vilja slá það met.
Nú er vika liðin af sumarfríinu mínu og ég man varla eftir betri viku í fríi - það hefur verið sól allan tímann.
Auðvitað segi ég þetta með votti af samviskubiti yfir því að gleðjast og óska mér sólar þegar landið þarf rigingu, tún að brenna vegna þurrka og hálendið að fjúka.
En þetta þurra veður hefur hentað okkur vel því að ákveðið var að ráðast í 100 metra girðingu við raðhúsið. Á einni viku höfum við rifið upp 100 m af hekki (bundum það við bíla og kipptum því upp), losað okkur við það, grafið fyrir staurum, sett niður mót, steypt og erum farin að setja þverslár. Líklega vika eftir af púli.

Fríið verður einnig notað í að þrífa inni en það er alls ekki jafnskemmtilegt verk og útivinnan og ég fæ eiginlega ekki af mér að vera inni.
Hugsa að ég byrji bara á að þrífa gluggana að utan - og verði lengi að því.
Fært undir Lífið, Tilveran, Umhverfi, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Adda Steina þann 4. júní 2007
Það varð uppi fótur og fit í morgun. Eldri sonurinn á leið í próf, gekk að strætóskýlinu á sínum venjulega tíma en enginn strætó S6 birtist. Hins vegar kom strætó nr. 31 sem ekki hefur sést á þessum slóðum fyrr. Þegar ég sá 31 bruna framhjá eldhúsglugganum fór mig að ráma í eitthvað rifrildi í hádegisfréttum um helgina varðandi breytingu á leiðarkerfi. Gat verið að búið væri að breyta leiðarkerfinu og fækka ferðum á stoðleiðum enn frekar?
Svo reyndist vera og við sáum að drengurinn yrði of seinn í próf ef ekki yrði gripið til örþrifaráða og annað foreldrið æki honum. Tuttugu mínútum síðar fór ég á stoppistöðina til að ná vagni S6, en þrátt fyrir að hafa kannað hvenær vagninn kæmi og talið mig vera á réttum tíma missti ég af honum. Ég beið í hálftíma eftir næsta vagni. Hann kom kl. hálf níu og var fullur.
Nýji vagninn nr. 31 var hins vegar tómur.
Þetta hljóta að vera verst kynntu breytingar í sögu strætó.
Breytir ekki því að ég mæli með strætó sem fararmáta. Þegar ég var unglingur vissi ég hvenær 2,3,4,og5 stoppuðu á Lækjartorgi/Hlemmi í báðar áttir. Kunni auk þess tímana hjá 4,5 og 8 í mínu hverfi og vissi að allir vagnar voru á korters fresti á virkum dögum.
Núna er alltaf verið að breyta tímum. S6, þessi góða leið, var fyrst á 15 mín. fresti, svo 20, nú 30. Kannski verður hún aftur á 15 mín. fresti í haust.
Þetta er pirrandi því að það verður svo erfitt að muna hvenær von er á vagninum - og það er vitneskja sem skiptir máli, ekki síst ef bíða þarf í hálftíma eftir næsta vagni.
Fært undir Ferðalög, Lífið, Stjórnmál, Umhverfi | Engin ummæli »
Fært af Adda Steina þann 30. maí 2007
Áfengisauglýsingar á netsíðum unglinga “Netið og siðferði á nýjum tímum” var yfirskrift málþings sem upplýsingasvið Biskupsstofu stóð fyrir í Neskirkju í dag. Þar kom margt fram áhugavert enda frummælendur ólíkir. Ég hrökk við þegar Salvör sýndi dæmi um það hvernig börnin okkar geta auðveldlega lent af saklausri leikjasíðu beint inn á áfengisauglýsingar og verri síður. Hún nefndi einmitt dæmi um síðu sem ég veit að yngri sonur minn fer oft á. Nú þarf maður að taka sig á og fylgjast betur með.
Einn frummælenda, Björn Harðarson sálfræðingur, talaði um að netið væri eins og stórborg án lögreglu og að foreldrar þyrftu að taka það hlutverk að sér - Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni tók að vissu leyti í sama streng hvað hlutverk foreldra varðar en talað um netið sem nágrenni og börn þurfi “your friendly neighbourhood police” til að spjalla við þau um hvað varast beri.
Annað áhugavert var vangaveltur um völd á netinu, um mun á fréttamönnum og bloggurum, um nafnleysi og falskar kennitölur, óhróður og ábyrgð.
Mjög góð umræða og verður fylgt eftir með frekari þingum. Ég sting upp á umræðu um bloggheiminn sérstaklega næst.
Fært undir Fjölmiðlar, Tilveran, Trúarbrögð, Trúin, Umhverfi, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »