Bókmenntaskærur

5. júní 2007 kl. 18.42 eftir agustborgthor

http://fjallabaksleidin.blogspot.com/ Þá sjaldan hann EÖN bloggar undanfarið fæ ég sterklega á tilfinninguna að vinslit hafi orðið í bókmenntaheiminum eða einhvers konar skærur séu í gangi. Fyrir nokkru síðan hnýtti Eiríkur í Víðsjá m.a. fyrir að hleypa ekki Nýhil-mönnum í þáttinn með kynningu á nýúgefnum ljóðaþýðingum, Handsprengju í morgunsárið. Að þessu sinni gagnrýnir hann Þröst Helgason vegna neikvæðrar umsagnar um ljóðakvöld félagsins nýlega www.vitinn.blog.is  Þröstur Helgason, Eiríkur Guðmundsson, Hermann Stefánsson og Jón Karl Helgason hafa með réttu eða röngu verið spyrtir saman í eina bókmennaklíku þar sem við sögu koma póstmódernismi, Lesbók Moggans, bókaútgáfan Bjartur og bókmenntaþátturinn Víðsjá. - EÖN er í bókmenntafélaginu Nýhil sem inniheldur gríðarlega stóran hóp ungra og ólíkra höfunda sem þó virðast alltaf standa saman og bakka hver annan upp í hvers kyns orðaskaki við aðra. - Athygli mína vekur að EÖN nafngreinir ekki félaga Þrastar Helgasonar á umræddu ljóðakvöldi en þar er um að ræða Hermann Stefánsson sem ég hélt að væri góðkunningi EÖN og hefði heimsótt hann til Ísafjarðar.

Kannski hefur þetta enga merkingu. En þetta er ekki verra efni en hvað annað í gúrkutíð. Ég hef annars sterklega á tilfinningunni að EÖN sé ekki og verði ekki í náðinni í bókmenntaheiminum. Hann fær aldrei starfslaun og undanfarið virðist hann eiga erfiðara en áður með að fá kynningu á verkum sínum. En hann er þó bæði mjög afkastamikill og miðað við síðustu skáldsögu góður höfundur. En hann virðist fara í taugarnar á fólki. Er það virkilega nóg? Hann hefur oft farið í taugarnar á mér en samt met ég hann að verðleikum. Er það barnaleg óskhyggja að vænta þess að listmat snúist um verk en ekki persónur?


7 ummæli við “Bókmenntaskærur”

RSS-veita færslunnar Bakvísunarslóð
  1. 1

    Eyvindur ritaði

    Trúlega er það svo, já. Því miður.

  2. 2

    agustborgthor ritaði

    Erum við ekki báðir frekar pirrandi?

  3. 3

    Eyvindur ritaði

    Alveg svakalega. Þetta er trúlega glatað mál.

  4. 4

    Eyvindur ritaði

    Reyndar held ég að ég fari langmest í taugarnar á Nýhíl liðinu, þannig að kannski bjargar það mér.

  5. 5

    Eiríkur Örn ritaði

    Sælinú.

    Eyvind þekki ég varla neitt - þau fáu orð sem hafa farið okkar á milli hafa verið í vinsemd.

    Hermann og Eiríkur eru góðkunningjar mínir, mér er afskaplega vel við þá og hef lesið bækurnar þeirra mér til ánægju, og drukkið og étið með þeim af jafnvel enn meiri ánægju. Ég hef meira að segja sungið og spilað með Hermanni - hann á flygil og ég á gítar.

    Þröst hef ég aldrei séð - eða í öllu falli ekki svo ég hafi vitað að þar hafi hann verið á ferð.

    Mér er ekki illa við neinar tilteknar manneskjur í bókmenntaheiminum - en það breytir því ekki að ég er ekkert hoppandi kátur yfir öllu sem á sér þar stað. Ég hef sagt það áður og er líklega ekkert á leiðinni að hætta því, að íslenskur ljóðheimur er, þrátt fyrir að vera að mörgu leyti lifandi og góður, heimur fáfræði, innræktunar og heimóttarskaps.

    Og ég hef heldur ekkert haldið sérstaklega aftur af mér við að hrósa fólki fyrir það sem það á gott skilið fyrir.

    Með kveðju,

    Eiríkur

  6. 6

    Eiríkur Örn ritaði

    Nei, afsakið - það var Eiríkur á flyglinum. Hermann spilaði einu sinni á banjó þar sem ég söng.

  7. 7

    agustborgthor ritaði

    Mikið er ég feginn að þú komst með þessa leiðréttingu. - Góðar kveðjur til Finnlands.

Rita ummæli


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Sjónvarp Útvarp Fréttablaðið
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning