Fönixinn
3. desember 2007 kl. 17.04 eftir agustborgthor
Náði loksins í bókina hans EÖN í Smekkleysu í hádeginu. Hef verið að glugga í hana meðfram öðru og veit svo sem ekkert um hana ennþá, nema þetta virkar bitastætt. Og þetta virðist vera kolruglað ljóðasafn, eins og eitthvað eftir geðveikan og hættulegan mann og þar með veit maður að höfundurinn er fremur heilbrigður. Salvador Dali sagði að eini munurinn á honum og geðsjúklingi væri sá að hann væri ekki geðveikur. Ég gæti t.d. trúað að ég væri sjálfur miklu klikkaðri en EÖN ef báðir væru grannt skoðaðir en sjálfur skrifa ég mjög sóber texta. En ég er reyndar ekki heldur hættulegur.
Við fyrstu flettingar hafði ég stórkostlega gaman af ljóðinu Neytendur fyllast svartsýni. Ég efast ekki um að allt orðalag er fengið úr fréttum viðskiptasíðna en samt virkar ljóðið einhvern veginn sláandi og meinhæðið á mann. Annars lýst mér best á að sökkva mér niður í bálkinn Síðasti liðhlaupi þorskastríðsins. Mjög safaríkur stíll á þeim textum þar sem ég er þegar búinn að tékka á.