Líf í bókum, bækur í lífi

13. desember 2007 kl. 23.21 eftir agustborgthor

Þrátt fyrir að vera með nokkrar ókláraðar bækur á náttborðinu, sem er ekkert náttborð heldur bara gólfið fyrir neðan rúmið, þá er fyrirvaralaust byrjuð að toga í mig gömlu skáldsaga eftir John McGahern, hún heitir The Pornographer (er alls ekki jafnkrassandi og nafnið gefur til kynna) og er frá árinu 1978. Ég las hana fyrir sirka tíu árum og náði einhvern veginn aldrei nógu góðu sambandi við hana, þó nógu góðu til að hún lifir í mér ennþá og togar skyndilega í mig eftir öll þessi ár. John McGahern er írskur höfundur og ég hef alltaf átt erfitt með að skilja hann, finnst allt í einu eins og ég kunni ekki nógu góðu ensku þegar ég les hann. En samt hefur hann aðdráttarafl. Les þessa bók aftur í síðasta lagi úti í Karlsruhe í janúar.

Er að ljúka við bók Hjálmars Sveinssonar um Elías Mar. Með því besta sem ég hef rekið augun í á þessari jólavertíð. Hitti höfundinn í Máli og menningu í gærkvöld og hann stakk upp á að ég tæki þátt í upplestri með sér á næstunni. Það skýrist fljótlega.

Ég fer síðan að lesa Elías Mar við fyrsta tækifæri.  

Í dag frétti ég að Súfistinn sé að flytja úr Máli og menningu og í Iðu.


0 ummæli við “Líf í bókum, bækur í lífi”

RSS-veita færslunnar Bakvísunarslóð
  1. Engin ummæli

Rita ummæli


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning