Jólakveðja og vetrarfrí
21. desember 2007 kl. 12.53 eftir agustborgthor
Ég óska lesendum þessarar síðu gleðilegra jóla sem og landsmönnum öllum. Ég ætla að taka mér langt bloggfrí til sirka 15. febrúar. Þá kemur í ljóst hvort síðan heldur áfram.
Síðan verður að sjálfsögðu opin en engar nýjar færslur.
Kjartan Bjarni ritaði
Hvaða rugl er þetta? Þú getur ekkert hætt að blogga. Þekktasti bloggarinn.
21. des 2007 kl. 14.44
agustborgthor ritaði
Þetta frí er ótengt sölunni - mig langar bara í það. Svo sjáum við til í febrúar.
21. des 2007 kl. 14.52
agustborgthor ritaði
prufa
22. des 2007 kl. 10.57
Jón Örn ritaði
Eitt sinn sá ég miðaldra mann upp á háhýsi í NY borg sem hrópaði í sífellu:
,Ég stekk ef hlutabréfin mín hækka ekki um fjögur prósent - í alvöru ég stekk ef hlutabréfin mín hækka ekki um að minnsta kosti fjögur prósent”
Ég velti því fyrir mér hvort sjálfsmorð væru svona mikill ritual í NY borg. Af hverju var maðurinn að tilkynna öllum þetta svona oft? Vildi hann finna einhvern í borginni sem væri ekki alveg sama um sig?
Eða var hann kannski að reyna sannfæra sjálfan sig um að hann þyrði að stökkva?
Ég komst aldrei að svarinu.
22. des 2007 kl. 19.08
agustborgthor ritaði
Ég er að reyna að loka kommentakerfinu en það gengur ekki. Ég er farinn í frí, ekki gera svona mikið úr því. Svo sjáum við til.
23. des 2007 kl. 0.35
Einar S. ritaði
Sæll, ég er þér ókunnugur en hef stundum verið að lesa bloggið þitt. Endilega haltu áfram ef þú getur. Ég hef haft gaman af því að lesa um það hvernig þú berð þig að því að skrifa. Ég er að rembast við þetta sjálfur og hef gaman af að heyra hvernig aðrir fara að.
27. des 2007 kl. 23.37
agustborgthor ritaði
Sæll, Einar. Þetta gleður mig. Gangi þér vel með skriftirnar. Þær skipta öllu máli hjá okkur báðum, ekki bloggið.
28. des 2007 kl. 0.58