29. maí 2008
Kærður fyrir að stela yfir 30 líkkistum af Fóstbróður sínum Manni er brugðið, að stela líkkistum er það ekki full gróft ? En það er svosem ótrúlegt hvað menn gera til að ná sér í aur á þessum verstu tímum.
Ekki vildi ég þó versla við þennan útfarastjóra og kaupa stolna líkkistu til að jarða ástvin, að sjá ástvin í síðasta sinn í stolinni líkistu, þetta veldur mér óhug.
Eru engar reglur sem gilda um útfaraþjónustur ? ætli þeir þurfi engin leyfi ?
Fært undir Alþjóðamál, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Slúður, Stjórnmál, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan, Óflokkað | Engin ummæli »
25. apríl 2008
Átökin halda áfram Það er alveg með ólíkindum að hlusta á málflutning talsmanns vörubílstjóra. Oft hefur maður verið hissa á málflutninga hans en í fréttum nú í kvöld fór hann alveg yfir strikið.
Fyrst kannast hann ekkert við manninn sem réðst á lögreglumanninn og segir hann bara einhvern sem hafi komið þarna að, svo segir hann að maðurinn sé nýkominn úr uppskurði á löpp, þó svo að hann þekki hann ekki
þetta er nú bara fyndið, síðar hefur komið í ljós að maðurinn er í broddi fylkingar þessara ofbeldismanna og Sturla viðurkennt það.
Held að þeir ættu að snúa sér að því að keyra þessa bíla sína og hætta þessu rugli.
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Slúður, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan, Óflokkað | Engin ummæli »
22. apríl 2008
Sigrún Elsa í stjórn REI Hvernig er það með Samfylkinguna, eiga þeir enga fagmenn til að skipa í stjórnir, eða eru þeir bara svona fljótir að skipta um skoðun, eða vita þeir bara ekki í hvorn fótinn þeira eiga að stíga, eða er bara verið að bæta Sigrúnu Elsu það upp að hafa ekki fengið að verða stjórnarformaður OR í síðasta meirihluta, ja maður spyr sig !
Oddvitar minnihlutans í borgarstjórn lýstu því yfir að þeir ætluðu að skipa fagfólk í stjórn REI og gátu ekki skipað neinn í stjórnina á aðalfundinum. Þeir hafa sennilega ekki fundið neinn og því bara skipað gjörsamlega óhæfa konu í sjórn REI
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Slúður, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan, Óflokkað | Engin ummæli »
7. apríl 2008
Rektor HR treystir dómgreind Kristínar Það er hreint alveg með ólýkindum að Hannes Hólmsteinn sé með Háskóla Íslands nánast í gíslingu. Rektor segist ekki hafa nein úrræði til að reka hann né áminna. Það eina sem hún getur gert er að átelja vinnubrögð hans.
Væri ekki Hannes maður að meiru ef hann leysti Háskólann úr snörunni og segði sjálfur upp störfum.
Það sjá það allir að marg dæmdur maður eins og Hannes á ekkert erindi sem þjónn Háskóla Íslands.
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Menning og listir, Nám, Slúður, Stjórnmál, Umræðan | Engin ummæli »
27. mars 2008
Ég hef fylgst með fréttum ansi náið undanfarin misseri og það er alveg ótrúlegt að vinstri slagsíðan er enn við lýði.
Hélt að þetta hefði bara verið svona fyrir áratug, eða tugum síðan.
Bloggaði í gær um frétt um Dag B. Eggertsson borgarfulltrúa, þ.e. bréf Geirs Þorsteinssonar formanns KSI, þar sem kom fram að Dagur hefði sagt ósatt, að hann hefði ekki vitað að verkið myndi fara ca. 400 milljónum fram úr áætlun. Geir segir að Degi hefði átt að vera það full ljóst.
Einnig hefur innri endurskoðun borgarinnar farið yfir málið og sagt að byggingarnefndin sem Dagur átti sæti í bæri ábyrgðina.
Ekki þykja þetta merkar fréttir, allavega ekki á Ríkisfjölmiðlum sem þegja þunnu hljóði, stöð 2 kom bara með hlið Dags og málið búið………….
Það hafa nú verið gerð meiri læti yfir minni málum þegar hægri menn eiga hluta að máli.
Enn sennilega má Dagur segja ósatt að mati sumra fjölmiðla.
Hvernig væri að fá Dag og Geir í einhvern þátt, eins og Kastljós eða Reykjavík síðdegis. Hvor er að segja satt eða ósatt ??
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Slúður, Stjórnmál, Umræðan, Íþróttir | Engin ummæli »
27. mars 2008
Dagur ætti að segja af sér sem borgarfulltrúi en skv. yfirlýsingu frá Geir Þorsteinssyni formanni KSÍ hefur Dagur sagt Reykvíkingum og öðrum ósatt trekk í trekk í viðtölum, bæði á ljósvakamiðlum og blaðaviðtölum um hvort hann hefði samþykkt óráðsíu og framúakstur við byggingu nýrrar stúku. Dagur hefur þvertekið fyrir að hafa vitað um það og bendir á KSÍ. Talið er að kostnaður hafi farið fram úr áætlun um allt að kr. 400 milljónir, án athugasemda Dags, sem skv. Geir, sat Dagur alla fundina og var full kunnugt um að kostnaður verksins hafi farið fram úr upphaflegri áætlun.
Maður spyr sig ? hvor þeirra er að segja ósatt, Dagur eða Geir ?
Ég vil fá svar við því !
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Slúður, Stjórnmál, Umræðan, Íþróttir, Óflokkað | Engin ummæli »
13. mars 2008
Hún er ekki slæm gleðikonan sem varð Ríkisstjóra N.Y. að falli
einni fylgir linkur að myspace síðu hennar.
Slóðin á myspace síðu henna
Fært undir Alþjóðamál, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Kvikmyndir, Menning og listir, Slúður, Stjórnmál, Tónlist, Umræðan, Óflokkað | 1 ummæli »
13. mars 2008
Velkominn á blogg.visir.is. Þetta er fyrsta færslan þín. Þú getur breytt henni eða eytt. Byrjaðu að blogga!
Fært undir Óflokkað | 46 ummæli »