Landráð 29. desember 2008
Fært af arikuld undir Alþjóðamál, Efnahagur, Stjórnmál, Umræðan. 25 ummæliVar að hlusta á viðtal við Pál Skúlason á RUV, sjá hér. Merkilegt að hlusta á kallinn, talaði um að ríkið sem hefur þá frumskyldu að gæta að almannaheill brást í haust. Ríkið, sameign okkar allra var orðið svo veikt að það gat aldrei fyrirbyggt hrunið. Ríkið gat aldrei fyrirbyggt hrunið vegna þess að við upphaf einkavæðingarinnar hófst hönnuð atburðarás sem markvisst gróf undan þjóðríkinu Íslandi. Þessi atburðarás var hönnuð af stjórnmálaflokkum sem ráðið hafa ríkjum hér í ein 17 ár. Markvisst vorum við blekkt með alls kyns lofsöng um hina ósýnilegu hönd markaðsins sem rétta átti hlut allra og sjá um sig sjálfur og það með sjá um Ísland og þjóðina. Markvisst vorum við blekkt með ótrúlegum lofsöng um útrásartröllin sem sjá má meðal annars á frábæru bloggi Láru Hönnu. Markvisst vorum við blekkt með enn ótrúlegra níði um skoðun og álit sérfræðinga erlendis sem sjá má hér. Svo markviss og einbeittur var áróðurinn að þegar loks kom að hruninu þá féll landið á einni viku og eins konar leifturstríð skall á landinu og engin gat rönd við reist - engin og ekkert gat bjargað okkur. Engin furða að GHH sagði í ávarpi sínu í byrjun okt: Guð hjálpi Íslandi.
Einna merkilegast fannst mér þegar Páll nefndi í lok viðtalsins orðið Landráð. Með því var eins og hann væri á þeirri skoðun að stjórnmálaflokkarnir sem hér hafa ráðið ríkjum hefðu með gáleysi sínu og markvissu niðurrifsstarfi á ríkinu framið Landráð, að vísu af gáleysi en Landráð engu að síður. Því finnst mér dáldið merkilegt að engin skuli hafa verið handtekin því að í kafla X í Almennum hegningarlögum er tekið á brotum af þessu tagi. Hlutur þessara svo kölluðu útrásartrölla eða -víkinga eins og sumir vilja kalla þá er samt hugsanlega mestur. Aðgerðir þeirra bæði hér heima og erlendis sem studdar voru af íslenskum stjórnvöldum dyggilega í vexti bankana og hrikalegar lántökur þeirra erlendis sem þjóðin er svo gerð ábyrg fyrir eru einnig landráð og líklega af ráðnum hug. Einbeiting þeirra við að sanka að sér sem mestum auðæfum hvað sem það kostaði er slík að á máli afbrotafræðinar kallast það: einbeittur brotavilji.
Einhverra hluta vegna fór ég að pæla í þessu strax í byrjun október þegar mér varð ljóst umfang hrunsins og að íslenska þjóðin hafði verið gerð gjaldþrota af 30 körlum og 3 konum eins og Vilhjálmur Bjarnason tekur til orða. Af því tilefni langar mig að birta aftur þær pælingar örlítið styttar:
Rétt er að taka fram strax að eftirfarandi skrif eru eingöngu vangaveltur, pælingar og hugleiðingar, það er lögfræðinga að skera úr um hvort lög hafi verið brotin eður ei. Í þessum skrifum fellst engin ásökun á einn né neinn enda um grafalvarleg mál að ræða og ég þori varla að ræða þetta en samt. Allt frá því að bankarnir hrundu og þá sérstaklega þegar martröðin með “Icesave” reikninga Landsbankans sem og “Egde” reikninga KB-banka komu í ljós þá hef ég velt því fyrir mér hvort afleiðingar af stofnun þessara reikninga sé ekki í raun og veru landráð. Landráð af stórkostlegu gáleysi enda afleiðingarnar hrikalegar fyrir land og þjóð. Hér er ég eingöngu að ræða stofnun og rekstur þessara reikinga sem og bakábyrgðina sem stofnað var til. Auðvitað er alþjóðleg fjármálakreppa í gangi sem hafði margar ófyrirséðar afleiðingar þ.á.m. hrun þessara reikninga eða öllu heldur innistæðuleysi þeirra. Við getum ekki einvörðungu kennt kreppunni um afleiðingar þessara reikninga, hér þarf að skoða málið í aðeins víðara samhengi held ég.
Skoðum aðeins kafla X. Landráð í almennum hegningarlögum, 88. gr., 91. gr. og 100. gr. En þar segir: 88. gr. Hver, sem opinberlega í ræðu eða riti mælir með því eða stuðlar að því, að erlent ríki byrji á fjandsamlegum tiltækjum við íslenska ríkið eða hlutist til um málefni þess, svo og hver sá, er veldur hættu á slíkri íhlutun með móðgunum, líkamsárásum, eignaspjöllum og öðrum athöfnum, sem líklegar eru til að valda slíkri hættu, skal sæta …1) fangelsi allt að 6 árum.
Hvað er verið að segja þarna? Jú, þarna er verið að segja að geri einhver eitthvað sem verður til þess að erlent ríki grípi til einhverra aðgerða eða ráðstafana sem skaða íslenska ríkið og eða hagsmuna þess hafi framið landráð. Bresk stjórnvöld gripu til hryðjuverkalaga gegn íslenskum hagsmunum vegna athafna íslenskra aðila á erlendri grund og ollu þar með eignaspjöllum og móðgunum gagnvart landi og þjóð og því að bretar fóru að hlutast til um málefni okkar. Ergó: þeir sem stóðu að stofnun þessara reikninga komu af stað atburðarás sem skaðaði íslenska hagsmuni í nútíð og framtíð.
91gr. almennra hegningarlaga hljóðar svo: 91. gr. Hver, sem kunngerir, skýrir frá eða lætur á annan hátt uppi við óviðkomandi menn leynilega samninga, ráðagerðir eða ályktanir ríkisins um málefni, sem heill þess eða réttindi gagnvart öðrum ríkjum eru undir komin, eða hafa mikilvæga fjárhagsþýðingu eða viðskipta fyrir íslensku þjóðina gagnvart útlöndum, skal sæta fangelsi allt að 16 árum.
Hér segir að láti menn uppi eða skýri frá samningum og slíku er ríkið komi beint að hafi framið landráð. Hverning kemur þetta heim og saman við stofnun þessara reikninga? Jú, þarna var framin gjörningur af íslenskum einkaaðilum sem skuldbatt íslenska ríkið og þegna þess til greiðslu á milljörðum króna, hundruðum milljarða ef ekki þúsundum milljarða. Íslenskir þegnar voru aldrei spurðir leyfis og engin í íslenski ríkisstjórn hefur getað svarað þeirri eðlilegu spurningu hvort ríkisstjórnin hafi heimilað þetta. Þess ber að geta í þessu samhengi að alþjóðlegar reglur kveða víst á um að yfirvöld ríkja séu ábyrg fyrir gjörningum af þessu tagi. Ég býst við að þeir sem sömdu þessar reglu hafi ekki haft ímyndunarafl til að sjá þessi ósköp fyrir. Heil þjóð bundin á skuldaklafa sökum gjörða þeirra á erlendri grund. Hagsmunir Íslands og þegna þess sem og orðspor varanlega skaðað. Er það ekki alvarlegur glæpur?
100. gr. almennra hegningarlaga hljóðar svo:”100. gr. a. Fyrir hryðjuverk skal refsa með allt að ævilöngu fangelsi hverjum sem í þeim tilgangi að valda almenningi verulegum ótta eða þvinga með ólögmætum hætti íslensk eða erlend stjórnvöld eða alþjóðastofnun til að gera eitthvað eða láta eitthvað ógert eða í því skyni að veikja eða skaða stjórnskipun eða stjórnmálalegar, efnahagslegar eða þjóðfélagslegar undirstöður ríkis eða alþjóðastofnunar fremur eitt eða fleiri af eftirtöldum brotum, þegar verknaðurinn í ljósi eðlis hans eða með hliðsjón af aðstæðum þegar og þar sem hann er framinn getur skaðað ríki eða alþjóðastofnun alvarlega:
1. manndráp skv. 211. gr.,
2. líkamsárás skv. 218. gr.,
3. frelsissviptingu skv. 226. gr.,
4. raskar umferðaröryggi skv. 1. mgr. 168. gr., truflar rekstur almennra samgöngutækja o.fl. skv. 1. mgr. 176. gr. eða veldur stórfelldum eignaspjöllum skv. 2. mgr. 257. gr. og þessi brot eru framin á þann hátt að mannslífum sé stefnt í hættu eða valdið miklu fjárhagslegu tjóni.
Hér er talað um hryðjuverk. Stofnun þessara reikninga og afleiðingar þeirra eru ekkert annað en fjárhagslegt hryðjuverk skv. þessari grein. Þetta er líklega afdráttarlausasta greinin. Hér er notast við orðalag eins og: valda almenningi verulegum ótta, þvinga íslensk eða erlend stjórnvöld til að gera e-ð eða láta ógert, veikja eða skaða efnahaglegar og þjóðfélagslegar undirstöður ríkisins. 4. töluliður sömu greinar tekur m.a. til mikils fjárhagslegs tjón. Hvað hefur komið á daginn? Hér hefur ríkt almennur ótti við afleiðingar bankahrunsins, afleiðingar aðgerða manna í bankageiranum sem og aðgerðaleysi. Bresk stjórnvöld telja sig hafa verið þvinguð til að nota hryðjuverkalög til að tryggja hag bresks almennings og annara aðila þar í landi s.s. líknarfélaga, sveitarstjórna ofl. Íslensk stjórnvöld urðu að setja neyðarlög til að tryggja hag íslensks almennings í kjölfarið. Þjóðfélagslegar og efnahagslegar undirstöður íslenks þjóðfélags eru afar veikar í dag sökum aðgerða þessara manna sem og aðgerðaleysis þeirra. Þess ber að geta að svipaðir reikningar voru stofnaðir í Hollandi, Belgíu, Luxemborg, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Þar erum við einnig í djúpum skít svo vægt sé til orða tekið. Tilvitnun lýkur.
Af hverju er ég að þessu? jú, mér finnst það stórundarlegt að þeir sem stuðluðu að þessari katastroffu séu enn við völd og enn er verið að mæra og púkka undir útrásartröllin. Kannski ætti ég að fara kalla þau landráðmenn og halda mig við það. Ætlum við að leyfa landráðamönnum hvort sem það eru núverandi valdhafar sem enga ábyrgð axla eða útrásartröllin að halda sínu og vel það eða ætlum við að láta landráðmennina axla sína ábyrgð og hljóta sína refsingu? Mér er spurn vegna þess að utan við morð og nauðgun eru landráð einhver alvarlegasti glæpur sem nokkur persóna hver sem hún er og hvort sem það er af gáleysi eða ekki getur framið. Myndum við láta grunaðan morðingja eða nauðgara um rannsókn máls? Nei, það myndum við ekki gera. Hvað finnst ykkur? Af hverju þorir engin að nefna þetta og þegar það er gert er það í framhjáhlaupi og engin fylgir málinu eftir. Er ég sá eini sem þorir?
29. des. og sumir í golfi
Fært af arikuld undir Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir. rita ummæliÍ dag er skrítin dagur, jörð marauð í Eyjafirði og kallinn og sonurinn skelltu sér í golf fram á Þverá. Spiluðum fram í rökkur og náðum 20 holum, geri aðrir betur á þessum árstíma. Nokkur pör litu dagsins ljós og einn fugl hjá stubbnum, hann átti meira að segja tvenn arnarfæri en taugarnar brustu á ögurstund.
Oft bölva ég því að hafa ekki byrjað fyrr í golfi þegar maður sér hve náttúrulegt þetta er hjá yngra fólkinu. Frábært að geta gleymt helv…. kreppunni og því öllu og gert e-ð uppbyggjandi. Magnað, megi svona dögum fjölga.
Heilir 2 mánuðir
Fært af arikuld undir Efnahagur, Umræðan. 3 ummæli
Mánuðir síðan FME fékk ábendingu um grunsamlegar millifærslur síðan FME (fjármálaeftirlitið) fékk ábendingar um málið, (komst reyndar í umræðuna strax í byrjun okt). Lögreglan er komin í málið og leitaði til FME og þá fréttir löggan að FME viti af málinu? Mér er spurn hvað er FME að fela? Svo kemur í ljós að það er einhver “upplýsingafulltrúi” starfandi hjá FME en auðvitað segir hann ekki neitt, veit ekki neitt, má ekki segja neitt, sér ekki neitt, heyrir ekki neitt, skrifar ekki neitt og væntanlega vinnur ekki neitt! Flott djob! Væntanlega kemur svo ekki neitt úr þessari rannsókn.
Þessir kúguðu karlmenn 28. desember 2008
Fært af arikuld undir Umræðan. 5 ummæliÉg er latur að blogga þessa daganna. Tel sjálfum mér trú um að ég sé að safna kröftum fyrir komandi blogg eftir áramótin þegar hrunin og þjóðargjaldþrotið fer að bíta fyrir alvöru. Við verðum einnig að gæta þess að halda í húmörinn ef við ætlum að halda andlegri heilsu í gegnum storminn og því hendi ég inn einum góðum brandara:
Stefán setti upp verksmiðju í heimabæ sínum og fór að ráða starfsmenn.
Hann auglýsti í staðarblaðinu og tók fram að hann ætlaði bara að ráða kvænta karlmenn.
Kvenréttindafrömuður bæjarins sá þessa auglýsingu og fannst rétt að tala við Stefán tveim hrútshornum.
Hún hringdi í hann og spurði hann “Af hverju ætarðu bara að ráða kvænta karlmenn?
Er það vegna þess að þú telur konur aumari, heimskari, geðstirðari … eða hvað er málið?
“Nei, alls ekki, kona góð,” sagði Stefán.
“Það er vegna þess að þeir kunna að hlýða skipunum, eru vanir að láta traðka á sér,
vita hvenær þeir eiga að halda kjafti og fara ekki í fýlu þegar ég öskra á þá.
Sannleiksmolar eða grobb? 23. desember 2008
Fært af arikuld undir Umræðan, Vinir og fjölskylda. 6 ummæliEinn af mínum fyndnu vinnufélögunum mínum upplýsti mig um þetta í dag. Varð að deila þessu með ykkur.
Hversu marga karlmenn þarf til að opna bjórdós?
Engan, bjórinn á að vera opinn þegar hún kemur með hann.
———
Af hverju reynir maður ekki við konuna fyrir framan sig í biðröðinni á féló?
Kona sem er í biðröð á féló, getur aldrei haldið þér uppi.
———
Af hverju hafa konur nettari fætur en karlmenn?
Þetta er eitt af grunnatriðum þróunarinnar, sem gerir það að verkum að þær geta staðið nær eldhúsvaskinum.
———
Hvernig veistu hvenær kona er að fara að segja eitthvað gáfulegt? Hún
byrjar setninguna á “Vitur maður sagði eitt sinn við mig…”
———
Hvernig gerir þú við kvenmannsúr?
Þú gerir ekki við kvenmannsúr, það er klukka á eldavélinni
———
Af hverju prumpa karlmenn frekar en konur?
Konur geta ekki þagað nógu lengi til að byggja upp nægilegan þrýsting.
———
Ef að hundurinn stendur bakdyrameginn og konan við aðaldyrnar, hvoru hleypir þú fyrst inn? Hundinum að sjálfsögðu, hann þagnar um leið og hann kemur inn.
———
Hvað kallarðu konu sem hefur misst 95% af gáfum sínum? Fráskilda!
———
Vísindin hafa fundið fæðutegund sem dregur úr kynlöngun kvenna um heil 90%
Fæðan er Brúðarterta.
———
Í upphafi skapaði Guð heiminn og hvíldist.
Þá skapaði Guð manninn og hvíldist.
Þá skapaði Guð konuna.
Síðan þá hefur hvorki Guð eða maðurinn getað hvílst.
———
Af hverju deyja menn á undan konunum sínum?
Þá einfaldlega langar til þess.
———
Róni gekk upp að konu á Laugaveginum og sagði: “Ég hef ekki borðað í fjóra daga!” Konan horfði á hann og sagði: “Ég vildi að ég hefði þennan viljastyrk!”.
———
Sonurinn: Er það satt pabbi, að í sumum ríkjum Afríku kynnist
eiginmaðurinn ekki eiginkonunni, fyrr en hann giftist henni?”
Faðirinn: Það gerist í öllum löndum, sonur sæll”.
———
Karlmaður auglýsti í einkamáladálkinum: “Kona óskast”.
Daginn eftir fékk hann tugi bréfa, sem öllu voru á sama veg: “Þú getur fengið mína”.
———
Besta leiðin til að muna alltaf eftir afmælisdegi konunnar; er að
gleyma honum einu sinni.
Ég hef persónulega reynslu af síðasta atriðinu. Boy oboy, og það gerist bara einu sinni!
Genetísk heimska
Fært af arikuld undir Efnahagur, Stjórnmál, Umræðan. 7 ummæli
Rúmlega 600 milljónir í vexti vegna Impregilomáls Ég stóðst ekki mátið og verð að tjá mig um þetta. Vitleysan og ruglið hjá þessu fyrirbæri sem kallast ríki, embættismenn og ráðherrar tekur engan enda. Það hlýtur eiginlega að vera einhver genetísk heimska sem veldur því hvernig velst í embætti á vegum ríkins hvort sem það eru embættismenn eða ráðherrar. 1,2 milljarða og 600 milljónir í vexti. Svo á að fara rukka veikt fólk við innlögn á sjúkrahús, loka geðdeildum osvfr. Svo hreyta þessi genetísku fífl í okkur að engin sé hæfari til að leiða þjóðina en þeir. Jamm, spurning hvers vegna þeir loka geðdeildum?
Gíslatakan
Fært af arikuld undir Óflokkað. 4 ummæliÞað rann upp fyrir mér nú í morgun að Íslenska þjóðin var tekin sem gísl þegar árið 2000 þegar einkavæðingin hóst fyrir alvöru og jafnvel fyrr þegar öfga frjálshyggjan náði hér völdum. Náðarhöggið kom svo í byrjun okt 2008 þegar bankarnir hrundu og þjóðin með. Gíslatakan hófst með einkavinavæðingu bankana. Þá byrjuðu þessi útrásartröll að víla og díla með sparnað landsmanna m.a. með því að stofna alls kyns sjóði sem áttu að vera 100% öruggir en reyndust í raun og veru ekkert annað en fjársvikastarfsemi þar sem fjármunir þeir sem grandalaust fólk setti í þá var notað til að kaupa bréf í fyrirtækjum eigenda bankana. Tilgangurinn var að ljúga upp gengi bréfana sem seld voru fram og til baka í alls kyns gjörningum. Stofnuð voru alls kyns skúffufélög sem mörg hver hétu og heita FS1…..37. FS stendur líklega fyrir fjár svik. Öll keyptu þau hvert í öðru og seldu og ávalt á hærra verði til að ljúga út meiri lán. Þannig tæmdu tröllin allt fé úr landinu og földu ég veit ekki hvar. Allt gert og framkvæmt markvisst og brotaviljinn einbeittur. Völd þeirra og áhrif í landinu eru ógnvænleg, þeir stýra m.a.s. fréttabirtingum í blöðum og allir fjölmiðlar landsins nema RUV eru í eigu þeirra, þar á meðal þessi vefur sem þetta blogg er á. Stjórnmálalífið er einnig heltekið af tröllunum. Öðru vísi er ekki hægt að sklja aðgerða- og úrræðaleysi stjórnvalda sem ekkert gera annað er setja höft og helsi á líf þjóðarinnar. Neita henni m.a.s. um réttlæti.
Ljósið í myrkrinu er bloggið. Áhrif þess sjást m.a. í brottför tveggja lykilmanna í nýju bönkunum sem tóku virkan þátt í gíslatökunni sem yfirmenn í bönkunum og “masterminds” í ýmsum plottum. Fleiri þurfa að fara. Við megum ekki gefast upp og gæta okkar á Stokkhólmseinkenninu þ.e. ekki samsama okkur gíslatökutröllunum og stjórnmálaflokkunum. Eitthvað segir mér að eftir áramót muni færast fjör í leikinn. Jæja, nú ætla ég að láta af leiðindabloggi næstu 2-3 daga, sona rétt á meðan blá hátíðin er og njóta hennar í botn. Byrja strax í kvöld eftir vaktina, útbý 2 fyllingar í kalkúninn, aðra með píkanhnetum og eina án, hvoru tveggju eru tær snilld. Sýð og flysja slatta af kartöflum, geri karamellu fyrir “ris a la mandl” auk réttarins sjálfs, sýð hangikjötið fyrir jóladag, klára pakka, skreyta jólatréð og taka smá forskot á sæluna og fá mér Sörur og kannski smá konfekt. Áskotnaðist smá spaug eða sannleikann um karla og konur. Set það á bloggið í kvöld. Þar til, bless á meðan.
Fjársvik 22. desember 2008
Fært af arikuld undir Efnahagur, Umræðan. 2 ummæliEgill Helgason á Eyjunni segir berum orðum að hér hafi verið framin fjársvik og það risastór, sjá hér. Landsbankinn hafi viðurkennt þetta sem mistök, já sæll. Mistök að blekkja fólk í stórum stíl? Þetta eru engin mistök. Svo var þessum peningum eytt í að kaupa glötuð hlutabréf og fleiri gerninga í félögum sem eigendur bankana áttu. En þetta var löngu vitað, strax í upphafi hruns og þetta á við um alla 3 bankana. Hef ég eigin reynslu að styðjast við og svo á við um marga ættingja og vini. Maður bara vonar að yfirvöld sýni loks einhvern dug í sér og hefji rannsókn á málinu. Reyndar samkvæmt fréttinni er hún þegar hafin. Það hljóta að vera til gögn t.d. tölvupóstar frá jóni og Gunnu þar sem þau eru hvött til setja sparnaðinn í þessa sjóði. Það hlýtur að fara vel um tröllin okkar þessi jól.
Ég er að spá
Fært af arikuld undir Efnahagur, Umræðan. 2 ummælií hvort útrásartröll, þó lítil séu, þurfi að kúka oftar og meira en aðrir menn og konur? Velti þessu sona fyrir mér í framhaldi af því að fjöldi klósetta í hellum þeirra er í engu samræmi við fjölda íbúa eða fjölda fermetra. Samanber 3 milljarða helli (sjá hér) JÁJ í New York. Í þessum 650 fermetra tröllahelli eru ein 11 klósett. Kannski borða tröllin meira en við hin?
Í dag 21. desember 2008
Fært af arikuld undir Stjórnmál, Umræðan. rita ummælihorfði ég ekki á fréttir. Leit aðeins yfir netið í morgun og helstu bloggin. Í dag fór ég aðeins út með félögum mínum í smá leiðangur fyrir danskt tímarit. Ef það verkefni gengur upp fæ ég kannski leyfi til að sýna lesendum þessa bloggs afraksturinn. Það var gott að gleyma sér aðeins en samt gerðum við félagarnir mikið grín að hruninu enda tengdist verkefnið því. Í kvöld leit á aðeins á netið og mæli með lestri á bloggi Láru Hönnu þar sem hún birtir tvær fróðlega greinar. Við lestur þeirra verður manni ljóst hve máttlausir og gagnslausir þingmenn eru. Enn fremur verður manni það ljóst við lestur þessara greina að umbylting þarf að eiga sér stað ef við ætlum að eiga okkur einhverja von í framtíðinni. Eftir áramót fer maður að pæla í því öllu saman. Annars er sosem nóg vitleysa að blogga um en ég nenni því ekki alveg núna, jólin að koma, mikil vinna framundan ofl. Bless í bili.
Hmmm! Veit einhver hver hann/hún er? Jæja, ég er alla vega íslenskur karlmaður á besta aldri. Ég starfa sem neyðarvörður á 112 og hef gaman af. Hef einar 2 háskólagráður, (en Georg Bjarnferðarson hefur einar 5 háskólagráður). Hef víða komið við í atvinnulífinu og er gangandi reynslubanki. Giftur og við Anna eigum 3 börn. Hafði gaman af stangveiði og skotveiði áður en allt fór að snúast um peninga í þeim greinum. Golfið tók svo yfir mínar tómstundir sem mættu vera fleiri en það er annað mál. Bý á Akureyri, þeim fallega stað á norðurlandi og líkar það vel. Læt þetta nægja sem lýsingu á sjálfum mér, læt aðra um það enda eru aðrir mun dómbærri á mig en ég sjálfur.