Sérstakur 27. febrúar 2009
Fært af arikuld undir Óflokkað. 4 ummæli
Ólafur fær auknar heimildir til að rannsaka bankahrunið saksóknari er að fá auknar heimildir til að afla gagna, kalla eftir gögnum og upplýsingum osvfr. Megum við þá fara búast við að útrásaröflin þurfi að skýra sitt mál? Ætli það fari ekki að fara um ýmsa næstu vikurnar? Skyldi verða aukning á miðasölum til útlanda hjá flugfélögunum í kjölfarið aðra leiðina? Fer Ólafur Haukur ekki að ráða fleira fólk til sín? Ég væri alveg til í að ljá honum hendi frítt meira að segja svona á milli vakta!
Ísland - vesturhérað Noregs!
Fært af arikuld undir Stjórnmál, Umræðan. 7 ummæliHér er svo smá samsæriskenning í tilefni dagsins: Steingrímur j. vill að við tökum upp norska krónu og hefjum margháttað samstarf við þá eðalþjóð. Ingimundur, fyrrum seðalbankastjóri hóf störf í norska seðlabankanum í vikunni. Norðmaður tók við íslenska seðalbankanum í dag. Áður en þessu ári lýkur verður Ísland orðið hérað í Norgegi. Steingrímur verður skipaður héraðsstjóri, Ólafur Ragnar Grímsson verður skipaður hirðfílf Noregskonungs. Norska verður annað aðaltungumál í hinu nýja vestur-héraði. Bara svona smá spaug
Vorhreingerningar 26. febrúar 2009
Fært af arikuld undir Óflokkað. 5 ummæli
Seðlabankastjórar reknir eru hafnar í stjórnkerfinu. Það er hart að það þurfi að breyta lögum til að vanhæfir menn geti vikið. Eflaust hafa þeir Ingimundur og Eiríkur unnið gott starf áður fyrr þegar allt lék í lyndi og hagkerfið var fyrirsjáanlegt með sínum aflabrestum og átökum á vinnumarkaði sem enduðu yfirleitt með gengisfellingu til að lækka launin. Stofnunin einfaldlega brást hlutverki sínu og hefur síðan árið 2001 ekki náð neinu af sínum markmiðum eftir að hagkerfið var opnað og varð flóknara. Þegar svo er þá verða menn einfaldlega að víkja.
Það er eftir sem áður mikið verk óunnið í tiltekinni sem bíður. Stjórnsýslan þarfnast endurnýjunnar. Það mun ekki ganga að hafa innan hennar einstaklinga sem litaðir eru af fortíðarspillingunni og hefðum hennar, svo geðslegar sem þær eru. Flokkarnir þurfa að endurnýja forystu sína, dusta rykið af hugsjónum sínum og hugsa stefnuskrár sínar upp á nýtt. Loks þurfa þeir að biðja þjóðina afsökunar af fullkominni auðmýkt. Flokkarnir eiga að vera þjónar þjóðarinnar - ekki herrar.
Herr Davíð Oddsson 25. febrúar 2009
Fært af arikuld undir Efnahagur, Stjórnmál, Umræðan. 2 ummæliÞað er eins og að reyna selja sand í Sahara að blogga eitthvað um Herr Davíð Oddsson eftir Kastljósviðtalið í gærkvöldi, það margir hafa tjáð sig um það og það er varla á það bætandi. Samt ætla ég að bæta aðeins við um nokkur atriði sem fram kom.
Í fyrsta lagi hélt Davíð því fram að hann og seðlabankin hefðu varað við hugsanlegu hruni allt frá árinu 2006. Sé svo er hljóta menn að spyrja sig af hverju engin brást við af neinni alvöru? Var seðlabankinn ekki marktækur? Ótrúverðugur? Eða trúðu menn frekar orðum stjórnenda bankana? Sé þetta rétt þá fer ekki á milli mála að stjórnvöld klikkuðu algerlega.
Sömu orð Davíðs eru einnig mikil áfellisdómur yfir síðustu ríkisstjórnum sjálfstæðisflokks, framsóknarflokks og samfylkingarinnar. Önnur þeirra er ríkisstjórn sem Davíð myndaði sjálfur með framsóknarflokknum. Það sem mér finnst athyglisverðast við þessa fullyrðingu hans er hvað hún segir okkur um þá stjórnmálaflokka sem setið hafa í ríkisstjórn og þá stefnu sem þeir hafa framfylgt. Tvær ríkisstjórnir ákváðu að hafa orð Davíðs og seðlabankans að engu sé eitthvað til í orðum Davíðs. Það er alvarlegt mál. Þessir 3 flokkar reyndust van- og óhæfir til leiða þjóðina í svokölluðu góðæri þar sem aðgerðaleysi, rangar ákvarðanir og stefnuleysi lögðu grunn að því hruni sem þjóðin upplifir og mun þurfa þola í langan tíma. Í þessum fullyrðingum felst einnig hörð gagnrýni á hans eigin flokk og þá stefnu sem hann sjálfur lagði grunn að í sinni tíð sem formaður sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra. Niðurstaðan er því þessi: þessir 3 flokkar reyndust gagnslausir í fölsku góðæri, ráðalausir í hruninu og hafa ekki getu né hæfni til að leiða þjóðina í þeirri uppbyggingu sem framundan er nema þeir endurnýji alla sína forystu, skeri á öll tengsl við útrásaröflin og stjórnendur gömlu bankana. Geri heiðarlega upp fortíðina og biðji þjóðina afsökunar opinberlega sem og umheimin líka.
Í öðru lagi varpaði Davíð fram þeirri sprengju að ýmsir aðilar í embættismannakerfinu og ýmsir stjórnmálamenn hefðu fengið óeðlilega fyrirgreiðslu í gömlu bönkunum og að það þyrfti að rannsaka. Þetta er allsvakaleg fullyrðing og verður að kanna. Gerist ekkert í þeim málum fljótlega þá er annað af tvennu ljóst: Davíð er klikkaður og ekkert að marka hann eða spillingin svo víðtæk að samfélaginu er ekki viðbjargandi nema til komi utanaðkomandi aðstoð, bæði til að rannsaka spillinguna og til að halda samfélaginu saman. HFF.
Draumfarir Ara 24. febrúar 2009
Fært af arikuld undir Umræðan. 2 ummæliSamfélagsleg ábyrgð 20. febrúar 2009
Fært af arikuld undir Umræðan. 20 ummæliHversu oft höfum við ekki heyrt fólk í stjórnunarstöðum hjá einkafyrirtækjum segja opinberlega að þeirra eina hlutverk væri að hámarka hag hluthafa og ekkert annað hefur haft neina merkingu né tilgang. Einkum og sér í lagi hefur þetta fólk gengt stöðu fjármálastjóra eða þá hárri stöðu í fjármálafyritæki. Sýn þeirra á lífið og tilveruna hefur snúist um þetta eitt. Hluthafar hafa vel flestir hafa kinkað kolli og litist vel á þessa afar þröngu rörsýni og sýn á starf þeirra. Lengi vel gekk þetta viðhorf eða á meðan vel gekk og lítið þurfti að hafa fyrir hlutunum, bara færa debit og kredit og keyra uppgjör á nokkura mánaða fresti. Það var talið hrein snilld. Þetta var kennt í fjármálafræðunum innan viðskiptafræðinnar. Jæja, ég ætla ekki að gera lítið úr fjármálafræðunum, þar er margt annað gagnlegt kennt.
Ég sérhæfði mig í þeim anga viðskiptafræðanna sem lúta að mannauðsstjórun og stjórnun og stefnumótun. Þar var tekin annar póll í hæðina. Þar hlaut maður þjálfun í að líta á heildarmyndina þ.e. fyritækið, starfsfólkið, viðskiptavinina, fyrirtækin sem veittu fyrirtækinu þjónustu, stofnanir samfélagsins og samfélagið sjálft. Skiptu þessu upp í nær- og fjærumhveri en ég ætla ekki að útlista það nánar í þessu bloggi. Markmiðið var að marka fyrirtækinu stefnu í samræmi við samfélagið í heild sinni, hvert samfélagið stefndi, tilhneigingar innan þess, (trends), uppbyggingu þess, þarfir fólksins, fyrirtækjanna,framtíðarhorfa og jafnvel hver pólítíkin í samfélaginu er, svo eitthvað sé nefnt. Innan þessara fræða víkkuðu fræðimenn út hugtakið “hluthafar” (shareholders) yfir í hugtakið “hagsmunaaðilar” (stakeholders) þ.e. allir þeir sem hugsanlega gætu átt einhverja hagsmuna að gæta í sambandi við fyrirtækið. Þá tóku menn inní jöfnuna auk hefðbundina hluthafa þ.e. þeirra sem áttu hlutabréf í fyritækinu, viðskiptavini, önnur fyrirtæki, stofnanir samfélgasins, almenning og loks samfélagið í heild sinni. Þessi nálgun á stjórnun og rekstri fyrirtækja heillaði mig. Mér fannst og finnst hún mannleg og uppbyggileg.
Því miður átti þessi nálgun ekki marga aðdáendur eða öllu heldur hún komst ekki til skila þegar á reyndi vegna tíðarandans í útrásinni. Þar komst aðeins eitt að: að hámarka hag hluthafa hvað sem það kostaði. Til allrar ólukku þá misnotuðu nokkrir einstaklingar sér trúgirni almennings og samfélagsins og misnotuðu þessa nálgun á hag hluthafa og blekktu samfélagið til að hámarka sinn eigin hag, við könnumst orðið vel við afleiðingarnar.
Okei, en hvað er ég að vilja með þessu bulli? jæja, það sem ég vildi sagt hafa að nú loks í kreppunni þá er eins og hugur fólks sé farin að hneigjast í þá átt að líta á heildarmyndina þ.e. að hagur okkar allra er nátengdur og er ein keðja sem ekki má í sundur slíta. Fjármálatröllin slitu keðjuna í sundur og lögðu þar með samfélagið í rúst. Einn okkar dýrmætasti lærdómur af þessum hörmungum verður sá að hér eftir hljóta menn að spyrja sig:
- mun minn hagur og hluthafa vænkast af fyrirtækinu?
- mun samfélagið hagnast á því að ég stofni/reki þetta fyrirtæki?
- mun starfsfólkið hagnast á því?
- munu önnur fyrirtæki hafa hag af því?
- munu aðrar stofnanir samfélagsins hafa hag af fyrirtækinu?
Fyrirtæki framtíðarinnar mega ekki gleyma því að samfélagið skapar þeim aðstæðurnar til að vaxa og dafna. Samfélagið leggur þeim til inniviði samfélagsins sem gerir fyrirtækjunum kleift að starfa, menntar starfsfólkið, sér þeim fyrir löggælsu, heilbrigðisþjónustu og öllu því sem þarf til að byggja samfélag. Samfélagið samanstendur af neytendum og þ.a.l. markaði sem fyrirtækin starfa á og fá sínar tekjur af. Því þurfa öll fyrirtæki að sýna samfélagslega ábyrgð sama hvað þau heita, gera og standa fyrir. Tek það svona fram í lokin að ég var lélegur stjórnandi í þau fáu skipti sem ég hafði með stjórnun að gera, ég hlustaði of mikið á umhverfið og þá sem unnu með mér, ég stjórnaði því ekki, heldur reyndi að leiða og leyfa jafningjum mínum að njóta sín. Það þótti ekki smart.
Nunnan og presturinn
Fært af arikuld undir Óflokkað. 1 ummæli fram að þessuAðalspaugarinn á neyðarlínunni er hafsjór af gríni, hann er ávallt brosandi og heldur uppi góðum móral. Menn eins og hann eru dýrmætir, ekki síst á tímum sem þessum. Okkur þykir vænt um hann. Hann er auk þess fljótastur okkar að boða sjúkrabíla og aðra viðbragðsaðila af stað í bráðatilvik. Flottur fýr hann Siggi Ott. Ég er áskrifandi af bröndurum hjá honum og ætla að láta lesendur þessa bloggs njóta þess með mér.
Lexía 2:
Prestur bauð nunnu far. Hún settist inn og krosslagði fætur, sem varð til að bera fót hennar. Presturinn missti næstum stjórn á bílnum. Eftir að hafa náð stjórninni aftur, strauk hann hendinni laumulega upp eftir fæti hennar. Nunnan sagði þá: “Mundu eftir Orðskviðunum 10:4″. Presturinn dró að sér hendina, en þegar hann skipti um gír strauk hann hendinni aftur upp eftir fæti hennar. Aftur segir nunnan: “Mundu eftir Orðskviðunum 10:4″. Presturinn afsakaði sig og sagði: “Fyrirgefðu systir, holdið er veikt”. Er þau renna í hlað við klaustrið andvarpar nunnan þunglega og fer sína leið. Þegar presturinn kemur í kirkjuna flettir hann upp Orðskviðunum 10:4. Þar stóð: ” Snauður verður sá, er með hangandi hendi vinnur, en auðs aflar iðin hönd”.
Boðskapur sögunnar:
Ef þú ert ekki vel upplýstur í starfi þínu gætirðu misst af stórkostlegum tækifærum
Sumt breytist ekki 19. febrúar 2009
Fært af arikuld undir Stjórnmál, Umræðan. 4 ummæli
Aðhyllist ekki pólitík reykfylltra bakherbergja - hættur í framsókn Um tíma þá vonaði maður að framsókn væri að hressast. Ég skildi þó ekki þá ákvörðun Þráins að fara fram en sé í dag að hann er hugsjónamaður sem ekki lætur buga sig. En eins mann grunaði líka þá held ég að gamla framsókn sé í fullu fjöri og muni ekki breytast, bara komin í ný föt! Lýðræði- my ass! HFF.
Að grípa tækifærin 18. febrúar 2009
Fært af arikuld undir Umræðan. 2 ummæliAðalspaugarinn á neyðarlínunni sendi mér þennan:
Lexía 1:
Maður fer í sturtu rétt í þann mund, er konan hans er að ljúka sinni og dyrabjallan hringir.
Konan vefur um sig handklæði og hleypur til dyra.
Hún opnar hurðina og úti stendur Biggi úr næsta húsi.
Áður en henni tekst að koma upp orði segir Biggi: “Ég gef þér hundraðþúsund ef þú lætur handklæðið falla”.
Hún hugsar sig um smá stund og lætur svo handklæðið falla og stendur nakin fyrir framan Bigga. Eftir nokkrar sekúndur lætur Biggi hana fá hundraðþúsund og fer.
Konan vefur handklæðinu aftur utan um sig og fer aftur inn.
Þegar hún kemur inn á bað spyr eiginmaðurinn: “Hver var þetta?”
“Þetta var Biggi í næsta húsi”, svarar hún.
“Frábært”, segir maðurinn, “nefndi hann eitthvað um þessi hundraðþúsund sem hann skuldar mér?”
Boðskapur sögunnar:
Ef þú deilir mikilvægum upplýsingum varðandi lán og áhættu með hluthöfum tímanlega geturðu verið í aðstöðu til að koma í veg fyrir óþarfa afhjúpun
íslenskir stjórnmálamenn 17. febrúar 2009
Fært af arikuld undir Óflokkað. 4 ummæli
Björgvin vill fyrsta sætið í Suðurkjördæmi halda að þeir séu ómissandi, að þeir geri aldrei mistök, að þeirra sé alltaf þörf, sama hvaða vitleysu þeir gera. Án þess að skammast sín hið minnsta bjóða þeir sig fram hver um annan þveran eins og ekkert hafi í skorist. Mér býður við þeim. það þarf að fara tukta þá soldið til. Það stóð til að tengja þessa færslu þessari frétt, til vonar og vara set ég inn krækju.
Hmmm! Veit einhver hver hann/hún er? Jæja, ég er alla vega íslenskur karlmaður á besta aldri. Ég starfa sem neyðarvörður á 112 og hef gaman af. Hef einar 2 háskólagráður, (en Georg Bjarnferðarson hefur einar 5 háskólagráður). Hef víða komið við í atvinnulífinu og er gangandi reynslubanki. Giftur og við Anna eigum 3 börn. Hafði gaman af stangveiði og skotveiði áður en allt fór að snúast um peninga í þeim greinum. Golfið tók svo yfir mínar tómstundir sem mættu vera fleiri en það er annað mál. Bý á Akureyri, þeim fallega stað á norðurlandi og líkar það vel. Læt þetta nægja sem lýsingu á sjálfum mér, læt aðra um það enda eru aðrir mun dómbærri á mig en ég sjálfur.