Vanhæf ríkisstjórn? 3. júní 2009
Fært af arikuld undir Efnahagur, Stjórnmál, Umræðan. 4 ummæliEftir fréttir dagsins í dag þar sem Jóhanna segir að taka verið ríkisfjármálin “fastari tökum” og að “vandin sé mun meiri en hún átti von á” hef ég orðið talsvert hugsi. Það læðist að mér mikill efi um að ríkisstjórnin muni ráða við vandann, að hann sé miklu mun stærri en hún hefur gert sér grein fyrir. Fyrir hrun afneitaði þáverandi ríkisstjórn vandanum, við þekkjum öll þá sögu. Í hruninu og eftirleik þess var þáverandi ríkisstjórn engu hæfari til að ráða við vandann. Þjóðin varð öskureið og það skiljanlega. Við fengum kosningar og fengum Samfylkingu og Vinstri-grænum meirihluta á þingi.
Á þeim stutta tíma sem liðin er eftir kosningar hefur þjóðin verið í eins konar millibilsástandi og hefur gefið nýrri stjórn tækifæri til að taka á vandanum. Lausn ríkisstjórnarinnar virðist vera sú að færa vandan yfir á herðar almennings sem átti litla sem enga sök á vandanum aðra en þá að treysta stjórnmálamönnum sínum fyrir stjórn landsins og trúa orðum bankana um snilli þeirra.
Undanfarnar vikur hefur ríkisstjórnin boðað mikin niðurskurð á fjárframlögum til velferðamála. Þjóðin hefur sætt sig við þann boðskap vitandi það að einhverjar fórnir þurfi að færa til að greiða fyrir mistök og vanhæfni fyrri stjórnmálamanna. Hversu mikil sú fórn ætti að vera hefur hins vegar verið nokkuð óljóst og því erfitt fyrir hinn óbreytta íslending að átta sig því sem er í vændum og er ég þar ekki undanskilin. Nú hefur komið í ljós að vandin og niðurskurðurinn sem er boðaður er miklu mun meiri en upplýst var. Ekki er laust við að um mann læðist nokkur hrollur við þennan boðskap. Enn hefur ekki verið látið uppi í hverju þessar aðgerðir felast eða í hve miklu magni en ljóst að ekkert okkar hefur upplifað slíkt áður.
Ég óttast það að þegar hinn óbreytti íslendingur fái að heyra hversu mikinn niðurskurðurinn verði muni honum bregða all svakalega. Þegar hann svo gerir sér grein fyrir að hann eigi að greiða skuldir bankana og erlendra “fjárfesta” (jöklabréfin og fleira í þeim dúr), þá muni reiðin, sem nú liggur í dvala, magnast og það verulega. Reiðin verður ekki minni þegar hann gerir sér grein fyirr því að samfélagið sem hann og forfeður hans hafa byggt upp undanfarna áratugi verði rifið niður og velferðakerfið sem hann hafði byggt upp með mikilli báráttu og elju verði rústir einar. Sjálfur samfélagssáttmálin er í hættu.
Er þessi ríkisstjórn jafnvanhæf og sú fyrri? Verður stórsköddun á samfélaginu það sem koma skal? Er það nauðsynlegt til að byggja upp nýtt og betra samfélag? Ég er ekki svo sannfærður um það - nema við náum um það samkomulagi meðal þjóðarinar. Til þess þarf þjóðin réttlæti. Réttlætinu verður að fullnægja svo við náum sáttum og getum byggt samfélagið upp á ný. Við skulum aldrei gleyma því að hér var framin glæpur af áður óþekktri stærðargráðu og því þufum við og eigum að fá réttlæti. Við skulum heldur aldrei gleyma því að þáverandi stjórnvöld máttu og áttu að vita hvað væri í vændum og áttu að bregðast við en kusu að gera það ekki.
Mun búsáhaldabyltingin hefjast að nýju í haust eða fyrr?
Hmmm! Veit einhver hver hann/hún er? Jæja, ég er alla vega íslenskur karlmaður á besta aldri. Ég starfa sem neyðarvörður á 112 og hef gaman af. Hef einar 2 háskólagráður, (en Georg Bjarnferðarson hefur einar 5 háskólagráður). Hef víða komið við í atvinnulífinu og er gangandi reynslubanki. Giftur og við Anna eigum 3 börn. Hafði gaman af stangveiði og skotveiði áður en allt fór að snúast um peninga í þeim greinum. Golfið tók svo yfir mínar tómstundir sem mættu vera fleiri en það er annað mál. Bý á Akureyri, þeim fallega stað á norðurlandi og líkar það vel. Læt þetta nægja sem lýsingu á sjálfum mér, læt aðra um það enda eru aðrir mun dómbærri á mig en ég sjálfur.