Efnahagslegir flóttamenn. 5. ágúst 2009
Fært af arikuld undir Óflokkað. 4 ummæliÞessa bloggfærslu setti ég á vísisbloggið mitt þann 24 nóvember 2008. Enhverra hluta vegna finnst mér hún eiga betur við í dag í ljósi þessarar fréttar:
“Allir eða a.m.k. flestir kannast við hugtakið “pólítískir flóttamenn,” hugtak sem notað er yfir fólk sem flýr sitt heimaland vegna þess að það telur sig og sína ekki örugga í heimalandi sínu. Hefur sætt ofsóknum af ýmsu tagi vegna stjórnmálaþátttöku sinnar eða fyrir það eitt að hafa aðrar skoðanir en valdhafar. Nú fer líklega að fæðast nýr hópur flóttamanna en af öðrum ástæðum en pólítískum. Sá hópur fólks hefur það eitt til saka unnið að vera fætt á íslandi, alist þar upp, hlotið menntun sína, lifað og starfað og helgað landinu krafta sína.
Sú risavaxna kjaraskerðing sem framundan er, verði ekkert róttækt að gert, mun að líkindum búa til stóran hóp íslendinga sem sjá ekkert annað í stöðunni en kjósa með fótunum þ.e. flýja land. Þennan hóp má þá skilgreina sem “efnahagslega flóttamenn.” Þessi hópur mun verða sá hópur íslendinga sem missir allt sitt í þeirri kreppu sem framndan er þ.e. missir vinnu, húsnæði og verður gjaldþrota í kjölfarið. Kreppan er víst bara rétt að byrja. Hversu stór þessi hópur mun verða er ómögulegt að spá um. En stór verður hann. Þær minningar sem þessi hópur tekur með sér héðan verða nöturlegar, gjaldþrota land, gjörspillt stjórnkerfi, spilltir stjórnmálaflokkar, vanhæfar ríkisstofnanir eins og seðlabankinn og fjármálaeftirlitið, ömurlegt og vanhæft bankakerfi, lamað þing og þingmenn osvfr. Hugsanlega verður það þannig hjá mörgum að þeir komist hreinlega ekki, hafi einfaldlega ekki efni á því. Þar með sjáum við hið gamla vistarband birtast okkur aftur en í örlítið breyttri mynd.
En það er ljós í myrkrinu, hreyfing er að myndast meðal fólksins. Fólk er farið að mótmæla ofríki, vanmætti, spillingu, þögn og aðgerðaleysi stjórnvalda af meiri krafti með viku hverri. Alls kyns hreyfingar og hópar fólks eru að myndast um hin ýmsu málefni hvort sem þau lúta að stjórnmálum, atvinnumálum, menningu, fræðslu um efnahagsmál því eðlilega vill fólk reyna skilja því fór sem fór. Það skyldi þó aldrei fara svo að fólkið reynist ríkisstjórninni snjallara og taki til sinna eigin ráða og hagi sínum málum eftir sínu höfði en ekki ríkisstjórnarinnar?”
Kveðja að norðan.
Hmmm! Veit einhver hver hann/hún er? Jæja, ég er alla vega íslenskur karlmaður á besta aldri. Ég starfa sem neyðarvörður á 112 og hef gaman af. Hef einar 2 háskólagráður, (en Georg Bjarnferðarson hefur einar 5 háskólagráður). Hef víða komið við í atvinnulífinu og er gangandi reynslubanki. Giftur og við Anna eigum 3 börn. Hafði gaman af stangveiði og skotveiði áður en allt fór að snúast um peninga í þeim greinum. Golfið tók svo yfir mínar tómstundir sem mættu vera fleiri en það er annað mál. Bý á Akureyri, þeim fallega stað á norðurlandi og líkar það vel. Læt þetta nægja sem lýsingu á sjálfum mér, læt aðra um það enda eru aðrir mun dómbærri á mig en ég sjálfur.