fara í valmynd

Kreppan bítur og það fast 8. september 2009

Fært af arikuld undir Efnahagur. bakvísun

Ég hafði hugsað mér að bregða mér af bæ eins og það er kallað og sækja landsfund Borgarahreyfingarinnar um komandi helgi. Ég hafði einnig hugsað mér að gera helgina að langri helgi og njóta dásemda sunnlennskra golfvalla sona í leiðinni með frúnni og syni en blessuð kreppan er farin að bíta ansi fast og við nánari skoðun á efnahag okkar litlu/stóru fjölskyldu er mér ljóst að af þessari ferð verður ekki. Maður verður víst að setja aðra og dýrmætari hluti í forgang s.s. fæðu og húsaskjól.

Mér bauðst frítt far þegar ég orðaði þessa hluti við einn góðan vin og félaga og myndi þá sleppa öllu flandri á golfvöllum eða hverju öðrum óþarfa sem ferðalögum fylgir og í fyrstu þáði ég það. Við enn nánari skoðun og íhugun tók ég þá ákvörðun að sleppa einfaldlega þessari ferð þó mér þyki það ansi hart en það árar illa í samfélaginu og ég er ekki þar undanskilin. Ég hef hreinlega ekki geð í mér að ferðast suður og eyða 3 heilum dögum þar án þess að geta veitt sér nokkuð í mat og drukk eða hverju öðru sem fylgir löngum ferðalögum.

Ég ætla samt ekki að skrifa einhverja vælufærslu, langt því frá, ég hef ennþá nokkuð örugga vinnu og hef ennþá til hnífs og skeiðar eins og það er orðað. Það er einfaldlega þannig að í kreppu sem þessari þá er ferðafrelsið eitt af því fyrsta sem skerðist alvarlega hjá sauðsvörtum almúganum sem ég tilheyri. Ég er einfaldlega of blankur í dag og verð að eiga eitthvað lítliræði til að lifa af það sem eftir lifir september. Ég veit að svipað er ástatt hjá mörgum öðrum þessa daganna. Sífellt meira og meira fer af laununum í afborganir af lánum og slíku, vöruverð hefur rokið upp og launin standa í stað og lækka í raun og veru því blessuð yfirvinnan hefur dregist verulega saman hjá flestum ef ekki öllum. Þá er þetta frá og ég ræði það ekki meira. Búið og takk fyrir, ég hef tekið ákvörðun og að öðru leit höfum við það fínt.

Svona er ísland í dag og nú fara kvöldin að verða dimm og minni tími til að leika sér á kvöldin. Ég hef af ásettu ráði leitt hjá mér kreppuna í sumar enda ákveðin í því að njóta þess meðan hægt er en nú mun ég hafa meiri tíma til að setjast niður á kvöldin þegar ég er heima og ekki að vinna og taka upp þráðin að nýju á blogginu.

Ummæli»

1. Ragnhildur H . - 8. september 2009

Ef ´þú vissir um allt sem öryrkjar verða sleppa , ekki held eg að þeir hafi ferðast mikið i sumar !
Þeir mega vist þykjast góðir ef þeir sleppa við að deyja drottni sinum þegr dimmir og vetrar Eg held að ekki hafi rikisstjorn ne aðrir samúð með þvi !!!!!!! ne miklar áhyggjur

ÞÓ eru örorku og ellilifeyrisþegar um 34 þusund manns minnir mig á landinu , en milli kosninga mega þeir eta það sem úti frys !
En það eiga kanski eftir að hrökkva einhver atkvæði út i VETUR !!
Þá lettir á fóðrum felagsmálageirans , þar sem ráðherra boðar enn meiri niðurskurð neð hausti ! Þetta er nyja Island !!!

2. arikuld - 8. september 2009

Það er örugglega rétt hjá þér Ragnhildur, ég veit líklega minnst um það. Og ríkisstjórnin og herra hennar AGS er næsta víst slétt sama. Framferði stjórnvalda gagnvart þeim sem minna mega sín er til skammar. Ég vona að okkur takist að búa til fegurra ísland en það sem nú blasir við okkur.
kv, Ari

3. Ágúst - 11. september 2009

Ekki missa vonina Ragnhildur!
Þrengingin er agarinn og leiðbeinandinn.

Ef nálaraugað er nógu vítt til að komast í gegnum þrengingarnar þá er lærdómurinn líka nægur til að greina það sem stenst eldraunirnar!

Nýtið tækifærið til lærdóms, og nýtið lærdóminn til dóms.
Þannig verður þú að gagni í gildu taumhaldi!

Dómurinn dæmir milli þess hæfa og óhæfa!

4. Siggadís syss - 15. september 2009

Essku bró minn - þótt atvinnulaus sé og eigi lítið eftir af mínum reikningi eftir að mar er búinn að greiða greiðsluþjónustuna þá hefði ég viljað deilt með þér dinner eða svo ef af þessari ferð hefði orðið. Ég bý nefnilega svo vel að eiga mann sem fær útborgað í Evrum - svo það reddar okkur algerlega - en á sama tíma þá er leiðinlegt að gleðjast yfir gengi krónunnar þegar allt er að fara til andsk…

Hvað sem öllu auratali líður þá er alltaf eitthvað gott á boðstólnum hjá litlu syss og þið ætlíð velkomin í dinner, kaffi, bröns, kökur… það er sama hvar mar er - ætíð þarf mar að borða ;)

Knús í hús!

5. arikuld - 18. september 2009

Takk systir góð. Hafði einmitt hugsað mér að kvabba á þér við þetta tækifæri en geymi það þar til síðar.
kv, ari

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning