fara í valmynd

Krónan okkar - alheimskróna? 1. nóvember 2009

Fært af arikuld undir Alþjóðamál, Efnahagur, Stjórnmál, Umræðan. bakvísun

Ég verða að viðurkenna það að ég skil ekki þessa útlendinga sem tala illa um krónuna okkar. Annað eins hagstjórnartæki þekkist ekki í hinum stóra alheimi. Hún fellur um 100% á einu ári gagnvart öðrum lélegri gjaldmiðlum til mikilla hagsbóta fyrir útflutningin. Krónan tryggir það að launahækkanir ná aldrei tilgangi sínum og því er hægt að leggja niður ýmis óþarfa hagsmunasamtök sem aftur myndi spara mikla fjármuni. Bara spurning um tíma hvenær við stígum það skref.

Krónan stuðlar að minni innflutningi sem aftur styrkir innlenda framleiðslu og gerir okkur því sjálfbærri. Með því komumst við hjá því að styrkja og auka atvinnu hjá þessum útlendingum sem tala illa um okkur og krónuna okkar.

Það besta við krónuna okkar er hin fræga verðtrygging sem gulltryggir verðmæti hennar þ.e. verðgildi hennar er ávalt í hæstu hæðum til mikilla hagsbóta fyrir fjármálafyrirtæki og lánveitendur. Verðtrygging sér til þess að þeir sem lána fé fá höfuðstól lánanna margfaldan til baka, langt umfram þá sem lána í löndum þessara útlendinga í prumpgjaldmiðlum eins og evru, dollar og pundum. Verðtryggingin sér til þess að heimskir lántakendur sjá alrei lækkun á höfuðstól lánsins, sama hvað þeir rembast við að greiða lánið niður og eru í skilum. Þess vegna er ég ekki að fatta þessa útlendinga. Aular!

Krónan okkar er jafnvel sjaldgæfari en demantur og því ættum við að selja hana sem tækifærisgjafir erlendis, sem trúlofunar- og giftingarskart fyrir þennan almenning þarna úti, krúnudjásn fyrir liðið með bláa blóðið og loks sem mont- og stadusgjafir fyrir fræga, fína og fallega fólkið. Þarna liggja gríðarleg tækifæri. Við ættum kannski að láta útrásarvíkingana okkar góðu vita af þessum tækifærum?

Hmm, eða ættum við kannski bara að halda henni fyrir okkur og verða enn ógisslega ríkari með krónunni okkar? Segja engum frá dásemdum hennar? En væri það ekki pínu eigingjarnt?

Ummæli»

1. siggibergbui - 1. nóvember 2009

Þetta er sko jákvæð grein um annars umdeilt fyrirbrigði.Í öllum bænum ekki láta útrásavíkingana vita af minni ágætu krónu sem ég fel í hægri buxnavasanum.

2. Arinbjörn Kúld - 2. nóvember 2009

Nei Siggibergbúi, við skulum gæta þess vandlega að þegja yfir þessu leyndarmáli. :-)

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning