Obama og Biden 6. nóvember 2008
Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli
Ótrúlegt en satt þá hefur svartur maður verið kosinn forseti Bandaríkjana. Ég hafði persónulega ekki haldið að það væri hægt en hann sannar það með þessu að það er allt hægt. Obama hefur reyndar gert svipaða hluti áður og hefur unnið nánast allt sem hann hefur ætlað sér að vinna, hann hefur aðeins einu sinni tapað í stóru framboði. Í Harward var hann fyrsti svarti einstaklingurinn til að vera kosinn formaður árgangsins og tala menn um það enþá daginn í dag hvað það var mikið afrek. Biden hefur hins vegar bara verið að chilla á meðan Obama gjörsigraði gamlan og ég held þreyttan Maverick og lélegan frambjóðenda til varaforseta. Biden er þekktur fyrir það í BNA að tala af sér og segja tóma þvælu inn á milli og því var honum haldið utan við mesta fjölmiðlafárið. En svona í heildina þá var þetta yfirburðar framboð hjá Obama og í lokinn engin spenna á ferð. Badboy óskar BNA til hamingju með þessa nýju stefnu.
Kveðja Badboy.
Badboy er bloggsíða verkamanna.