Ósáttur Badboy 9. nóvember 2008
Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli
Nú er þetta orðið svo togað og tosað eitthvað allt saman. Fréttir frá Íslandi eru ekki skemmtilegar þessa dagana og virðist fréttaflutningur af klakanum alveg kominn í skít vegna ástandsins. Í fjármálageiranum eru menn alveg orðnir ruglaðir og algjört caos farið í gang. Fangageymslur eru yfir fullur og lögreglan orðin skíthrædd við ástandið. Badboy ætlar að tippa á það að löggan verði komin með byssur um mitt næsta ár. Spurning hvort almenningur verði ekki líka kominn með byssur um mitt næsta ár. Bílafloti Íslendinga er nú orðinn að alþjólegu gríni og það eina sem okkur dettur í hug að gera er að brenna þá til kaldra kola. Badboy er yfirleitt bjartsýnn náungi og ætlar að halda því áfram en hvers vegna eru menn ekki að svara spurningum þjóðfélagsins, ég er því miður kominn á þá skoðun að okkar fólk á þinginu verði að víkja og nýtt fólk taki við. Formaður yfir nýrri ríkisstjórn á að vera Steingrímur J. en hann virðirst nú vera eini maðurinn sem talar ekki tungum þessa dagana.
Kveðja Badboy.
Badboy er bloggsíða verkamanna.