fara í valmynd

Faðmlag frá Badboy 14. nóvember 2008

Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli


Badboy ætlar að bjóða öllum faðmlag sem vilja. Ísland er komið í algjört rugl og sennilega eru nokkrir menn búnir að rústa orðspori okkar Íslendinga það sem eftir er. Björgólfur eldri var í Kastljósi áðan og fyrri hluti viðtalsins var bara nokkuð góður en seinni hlutinn varð honum ekki til bóta að mínu mati. Um leið og ég vorkenni honum nokkuð mikið þar sem hann er greinilega vel grillaður eftir þetta allt saman þá finnst mér hann eiga skilið nokkuð harða gagnríni fyrir sín störf. Badboy þolir ekki þá staðreynd að líklega voru menn að spila eftir einhverjum reglum en þær eru svo óskýrar að enginn veit hvernig á að túlka þær. Icesave hefur svo einnig haft þau áhrif að vinur minn Pim sagði mér á MSN að hann kæmi aldrei aftur til Íslands vegna þess hvernig menn hafa hagað sér á Íslandi í sambandi við innistæður í Hollandi. Þetta er bara sorglegt og menn eru brjálaðir út af því hvernig við höfum komið fram síðustu vikur. Persónulega finnst mér Bretar og Hollendingar hafi mikið fyrir sínu máli og það gangi ekki að skilaboðin frá okkur séu þau að við ætlum bara ekki að borga. Badboy er farinn í bloggfrí og mun ekki posta fyrr en í byrjun desember næst.

Kveðja Badboy.

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning