fara í valmynd

Gleðileg Jól !! 23. desember 2008

Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli


Badboy lokar árinu með jólakveðju og mun ekki blogga aftur fyrr en seint í janúar. Nú er að hefjast mikill lokasprettur hér í DK en 5.janúar tekur við vinna og venjulegt líf á klakanum. Badboy óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Kveðja Badboy.

Stefanía er Byggingarfræðingur 20. desember 2008

Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli


já nú er konan mín búin með skólann og hefur undir beltinu gráðu sem gerir hana formlega að byggingarfræðingi VÚHÚ HELL YE. Stelpan geri sér lítið fyrir og fékk 10 sem samkvæmt gamla/kerfinu er 3000 en er bara 10 í nýja kerfinu. Badboy smælar nú út í eitt og er yfir sig fullur af stollti, þetta hefur verið gríðarlega erfiður tími og efnahagsástandið heima hefur ekki hjálpað til. En sá hlær mest sem síðast hlær og ég ætla að skella upp úr í kvöld á mínútu fresti. Í kvöld verður nefnilega farið í árlegt julefrokost hjá engum öðrum en MIX MASTA JONNI AND SÍERRA í Hosen Mosen en kvöldið í kvöld lofar mjög góðu. Í næstu viku verður svo bara pakkað niður og stefnan fyrir alvöru sett á klakann.

Kveðja Baboy.

Ólafur Stefánsson 16. desember 2008

Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli


Óli fer ekki til Dk en hann fer til Þýskalands og mun spila með sama liði og Guðjón Valur spilar með. Rhein Neckar Löwen mun því fanga Óla en hann er talinn besti handboltamaður í heiminum og voru menn mjög spenntir fyrir því að fá hann til Danmerkur. Í fréttunum í kvöld voru menn mjög fúlir yfir því að það væri búið að strika yfir upphaflegt plan og í staðinn færi hann til Þýskalands þar sem menn ganga með svínasnitzel í vasanum. Það kom einnig fram í fréttum TV2 að mönnum hefði hlakkað mikið til að fá Óla til Danmerkur og kynnast honum persónulega en því miður verður það að bíða betri tíma.

Kveðja Badboy

Happy Go Lucky !! 15. desember 2008

Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli


Þessi mynd kom mér alveg svakalega á óvart með öllu tilheyrandi. Leikurinn í myndinni er alveg ótrúlega góður og sagan af sama skapi skrítin og góð. Hér er á ferðinni kennari sem hefur gaman af öllu og brosir í gegnum lífið. Þeir sem svo koma inn í hennar líf verða að brosa með því hún er bara þannig típa. Þetta lullar síðan svona áfram í næstum klukkutíma og ég var alveg við það að fara að slökkva á ræmunni og horfa á The Dark Night í fimmta skiptið. En á þessum tímapunkti ákveður aðalpersónan að hún verði að taka ökuprófið, ökukennarinn mætir á svæðið og myndin tekur flugið. Smá þróun tekur við en þetta endar allt saman í algjöru rugli og virkinlega gaman að sjá hvernig myndin túlkar umhverfið og hvað allt getur verið niðurdrepandi ef maður virkilega er að leita af því. Ökukennarinn verður svo aðalpersónan í myndinni og langt síðan maður hefur séð þvílíka geðveiki hjá persónu í kvikmynd. Badboy mælir með þessari mynd yfir jólin - hún skilur mikið eftir.

Kveðja Badboy

Beck með The Flaming Lip 12. desember 2008

Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli


Beck hefur verið í miklu uppáhaldi hjá Badboy í mörg ár. Þessi listamaður hefur sent frá sér margar góðar plötur og alltaf eitthvað nýtt og skemmtilegt á ferðinni. Flaming Lip er svo grúbba sem ég hef haft á hausnum þegar ég hef verið úti að hlaupa hérna í DK, Beck hefur nú farið í samstarf með þeim og persónulega líst mér ótrúlega vel á útkomuna.

Út frá þessum link er hægt að hlusta og horfa á fullt af samsuðu þessa tveggja.

Beck and Flaming Lips-Lost cause

Kveðja Badboy

Badboy fréttir.

Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli


Badboy hefur síðustu daga verið á fullu í því að plana heimkomu í Janúar. Bjarni málari ( MC. Pensill ) er byrjaður að mála íbúðina á Lækjargötunni en hann er eini málarinn sem ég þekki sem er litblindur. Vona að hann sé að nota hvíta málningu og hann sé í réttri íbúð en hann var víst á vergangi í gær að leita af íbúðinni. Mazdan er líka seld hérna í DK en þessi bíll hefur reynst okkur afar vel og ég vona að hann standi sig eins vel fyrir næstu eigendur, sérstakt blogg verður póstað um bílinn í næstu viku en þess má geta að ég er búinn að kaupa aðra Mazda bifreið á Íslandi. Í dag á Badboy því tvær sexur og mjög líklega er Einar bróðir að færa sig yfir í Mazda merkið þegar þetta er skrifað. Útskrift hjá Stefaníu og Rússa er svo á næsta leiti en við höfum ákveðið að taka áramótin með Rússa og fjölskyldu annað árið í röð. Hlakka mikið til að halda upp á lok þessa árs og byrja nýtt á Íslandi þar sem grasið er grænt og allir eru svo fallegir.

Góða helgi kveðja Badboy.

Saison Bjór 10. desember 2008

Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli


Það er ekki einfallt mál að hanna umbúðir utan um bjór en hérna er nokkuð alveg nýtt í þessum málum. Einfallt og apótekalegt er það sem einkennir Saison en þetta er tilraun til þess að breyta alveg því sem telst hefðbundið í bjórumbúðum. Þetta tekst fullkomlega og Badboy sér þetta fyrir sér í búðum.

Lovely P - tékkaðu á conseptinu.

Kveðja Badboy

FH vinnur með einu ” aftur “ 8. desember 2008

Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli


Já í gær fór fram leikurinn sem undirritaður var búinn að bíða eftir í nokkuð langan tíma. Reyndar gat ég ekki horft á leikinn en fékk svona óbeina lýsingu í gegnum msn en sú aðferð virkaði bara nokkuð vel. Um leið og leikurinn var flautaður á var það deginum ljósara að FH ætlaði ekki að láta Haukana fá þennan leik gefins. Haukarnir voru skrefi á eftir allan leikinn og þeir áttu líklega aldrei að fá neitt fyrir sinn snúð. Sem Haukamaður fer þetta ótrúlega mikið í taugarnar á mér en sem áhugamaður um handbolta verður maður að dást að þessu unga og efnilega FH-liði sem ætlar eftir þetta tímabil að vera mikið meira en efnilegt. Hjá FH hafa menn greinilega farið réttu leiðina í því að byggja upp lið sem hefur hjarta og sál, þetta er mjög sennilega það sem vantar hjá Haukum á þessu tímabili. Haukarnir virðast vera á sjálfskiptum bíl sem hefur litla vél og eyðir ekki mikið af bensíni, líklega eru þeir á Toyota Prius. FH er hins vegar á beinskiptum sérsmíðuðum sportbíl sem spólar af stað með græjurnar í botni og eyðir fullt af bensíni en þar á bæ hafa menn bara gaman af því að fara hratt yfir og sá möguleiki gæti verið fyrir hendi að bílinn fari bara á næsta vegg og allt dæmið gæti sprungið í tætlur. Þetta element gerir það að verkum að menn eru skíthræddir við þetta FH-lið og vita að til að vinna verður að gefa allt í leikinn, við erum að tala um slagsmál, svita og blóð. Badboy óskar FH til hamingjum með sigurinn og þetta frábæra lið. Haukarnir fá þau skilaboð frá mér að fara beint í vélina og setja á hana flugvélarbensín því annars verður ekkert úr þessu tímabili. Aron K. er auðvitað maðurinn sem getur reddað þessu og fyrst bikarinn er úr sögunni er bara um eitt að ræða fyrir okkur Haukamenn á þessu tímabili.

Kveðja Badboy.

Nixon

Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli


Þetta merki ætlar heldur betur að koma sterkt inn fyrir jólin, í byrjun var þetta fyrirtæki sem hannaði eingöngu úr og gerði það mjög vel. Fyrsta Nixon úrið sjá ég líklega fyrir svona þremur árum og það var einmitt rétt fyrir jólin. Nú hafa þessir snillingar farið út í framleiðslu á allskonar dóti og Badboy er mjög sáttur við þá þróun. Á heimasíðu Nixon er hægt að tékka á öllu því nýjasta en þess má geta að þetta er Hipp Hopp merki og alls ekki svo dýrt. Mæli með Nixon í jólapakkann í ár.

Kveðja Badboy.

Krónan að koma á óvart ? 5. desember 2008

Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli


Nú er Badboy ánægður með gang mála í fyrsta skipið í langan tíma. Krónan hefur rokið upp og virðist ætla að hrista af sér ruglið sem gengið hefur á síðustu tvo mánuði eða svo. Spurning hvort þetta sé lognið á undan storminum og gengið eigi eftir að hríðfalla seinna í þessum mánuði. En fyrir utan hvað það er leiðinlegt að tala um peninga þá höfum við strákarnir verið sudda veikir síðustu tvo daga en eins og krónan þá erum við líklega að komast yfir það versta þegar þetta er skrifað.

Kveðja Badboy

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning