fara í valmynd

Jhonas Badboy 25. febrúar 2009

Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli


Þetta er mynd sem ég fann ofan í skúffu en það er svoldið langt´s síðan ég mixaði Jonna inn á myndir sem voru teknar af Sebastian Tellier. Annars er Badboy að jafna sig eftir veikindi og ætlar að skella sér til vinnu á morgun. Badboy biður að heilsa út til DK ef þið eruð enþá að lesa bloggið.

Kveðja Badboy.

Badboy TV

Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli


Badboy hefur verið að kíkja undir steina hér og þar síðustu daga. Nú er svo komið að með öllum örðum verkefnum sem ég er að fást við þessa dagana ætla ég að opna sjónvarpsstöð á netinu. Mjög fljótlega ætla ég að senda út fyrsta Badboy þáttinn en þeir verða líklega 5 talsins svona til að byrja með. Badboy TV mun svo bjóða upp á beinar útsendingar frá hinum og þessum atburðum í blandið við vistað efni.

Hér er hægt að skoða demoútgáfu af síðunni.

Kverða Badboy

Badboy - upptökur á Rúv í gær. 24. febrúar 2009

Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli

Badboy var að taka upp um helgina en þetta var sennilega flottasta og besta Samféshátið sem ég hef komið að. Um 4500 unglingar voru mættir á hátíðina og ótrúlegt hvað þetta fór allt saman vel fram. Söngkeppnin var líka til fyrirmyndar en þar komu fram atriði af öllu landinu. Ragnhildur S hafði svo samband í gær en hún var að vinna innslag fyrir Kastljós og auðvitað var hlaupið til handa og fóta til að redda myndefni.

Hérna má nálgast videóið

Kveðja Badboy.

Snorri Badboy 15. febrúar 2009

Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli


Nú er Badboy kominn í stuð og er að taka til í þeim möppum sem þurfa að víkja fyrir mikilvægari hlutum. Þessi mynd er að Snorra meistara en hann er mikill meistari. Hann er hér greinilega að meistarast eitthvað. Má segja að þetta sé meistaraverk.

Kveðja Badboy.

Nýjar myndir

Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli


Badboy hefur verið kaldur síðustu tvo mánuði en ætlar að bæta verulega úr því á næstu vikum. Hér er mynd frá því um áramótin en Badboy var þá í góðu yfirlæti hjá Rússa sem býr í DK.

Kveðja Badboy.

Hafnarfjörður er málið !

Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli


Næsta vika verður sú erfiðasta í langan tíma vegna fjölda verkefna sem þarf að tækla. Skólinn er alveg á fullu fyrir vetrarfrí en til viðbótar verður Sköpunardagur ÍTK og hápunktur Samfés eða hátiðin um næstu helgi. Badboy verður því heldur betur að halda vel á spilunum í næstu viku. Biggi Rafn er á Ítalíu eins og er en hann fór að horfa á MÍLAN VS. INTER og það verður gaman að heyra sögurnar frá þeirri ferð. Svo er planið að Klúbburinn Búkurinn verði með partý á Lækjargötunni næsta laugardag en þá verður boðið upp á humarsúpu. Gestalistinn verður heldur betur VIP en þetta eru þeir sem hafa fengið boð JK, LINDA, GUDNI K, BIGGI og DAGMAR.

Kveðja Badboy.

Heitur pottur og bretti !! 8. febrúar 2009

Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli


Um helgina var haldin útskriftarveilsa fyrir Stefaníu en það kom bara mjög vel út. Um 50 manna veisla var dregin upp í töskunni og margar mjög góðar kökur. Jón Karl og Linda voru hjá okkur á laugardaginn og var spilaður einn leikur af Mæju sem fór í algjört rugl en Linda vann svo með einhverju rugli sem ég skil eiginlega ekki. Allavega eftir Mæju fórum við á Cafe Aroma þar sem Dj Júlli var í essinu sínu vægast sagt en það var svo mikið af fólki þarna í gær að staðurinn var gjörsamlega að springa. Stefanía gerði sér svo lítið fyrir og fékk vinnu um helgina sem þýðir líklega að hún sé með þeim fyrstu úr sínum bekk sem kemst í vinnu. Badboy biður að heilsa í bili og ætlar að pósta mikið í næstu viku en það er fullt af nýju stöffi að bíða eftir færslum.

Kveðja Badboy

Hvernig komst þú þarna upp ? 5. febrúar 2009

Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli


Badboy er sáttur við gang mála á Íslandi þessa dagana. Haukar voru að detta aftur í gang og þeir verða Íslandsmeistarar eins og ég spáði fyrir þegar tímabilið byrjaði. Nýja Ísland er líka komið í gang og allt svindlið er að svo stöddu á leiðinni út í sjó. Í kvöld var svo sagt frá því að Baugur væri að fara niður eins og allt annað en að mínu mati var það bara spurning um tíma. Við fjölskyldan erum svo nánast búin að koma okkur 100% fyrir en það á bara eftir að fínpússa. Badboy ætlar svo að skella sér á bretti á morgun en það er í fyrsta skiptið á þessum vetri. Brettið er tilbúið og nýju skórnir eru komnir í töskuna.

Kveðja Badboy.

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning