ToneMatrix 13. apríl 2009
Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli
Þetta er algjör snilld - Badboy var fastur í þessu nokkuð lengi.
Fangi í bíl ! 5. apríl 2009
Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli
Hérna er nýtt stuff frá Badboy. Fullt af efni til á disknum bara ekki tími til að vinna úr þessu.
Bið kærlega að heilsa öllum - kveðja Badboy.
Páskabloggið
Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli
Badboy fréttir eru nokkuð margar þessa dagana og listinn lengri en ég nenni að telja upp hér. Um síðustu helgi var farið í brettaferð til Akureyrar sem var vægast sagt vel heppnuð. Vel grilluð dagskrá varð svo til þess að ég steinlá eftir vinnu á mánudaginn með 39 stiga hita og tilheyrandi svitarugli. Á miðvikudaginn lenti ég svo í því að vera meðstjórnandi í Bingói en hef ég ekki gert áður. Það hefur greinilega verið þannig í gegnum árin að ef einhver hefur sagt Bingó þá hef ég sagt nei takk. Badboy var samt að fíla þetta í botn og með góðum félagsskap gekk þetta bara allt vel. Undirritaður fór líka í hláturskast og þurfti að taka pásu við upplestur talna. Núna er bara komið páska frí og Badboy ætlar að nota tímann til að klára lausa enda hérna heima og klippa efni sem nú er orðið ansi mikið úr kennslunni. Eftir páska eru það svo próf/kennsla, aðalfundur Samfés og undirbúningur fyrir skólaslit. Í sumar ætlar svo Badboy að halda námskeið sem verður auglýst síðar. Stefnan er sett á að nota bloggið sem beina tengingu við námskeiðið.
Gleðiðlega páska - kveðja Badboy.
Badboy er bloggsíða verkamanna.