Hitablogg. 15. maí 2009
Fært af badboy undir Óflokkað. rita ummæli
Já nú er 18 stiga hiti á klakanum og við ætlum að vinna evróvisión á morgun eða grand prix bla bla show eins og Danir kalla þetta. Svo er það í fréttum helst hérna hjá Badboy að hann er orðinn 33 ára gamall en fagnaði því með því að verða sudda veikur og liggja upp í rúmmi allan afmælisdaginn. Skólinn og félagsstarfið gengur bara mjög vel þessa dagana en það síðarnefnda endar með pompi og koddum í kvöld. Þegar skólanum verður svo slitið verður Badboy kallaður til verks á ný hjá ÍTK en ég og Birgir Rafn munum stjórna kvikmyndanámskeiðið á vegum Kópavogsbæjar þetta árið en skráning er víst búinn að vera mjög góð ( solid stuff ). Nú ætlar gamle gamle að gíra sig upp í síðasta kvöldið hjá Fönix og taka svo gott evróvision kvöld á þetta á morgun. Bið að heilsa öllum sem lesa bloggið en sérstaklega vil ég senda henni Önnu B í Odense krafta fyrir annað kvöld en ég veit að þar er mikil spenna fyrir þessari alræmdustu söngkeppni fyrr og síðar.
Kveðja Badboy.
Badboy er bloggsíða verkamanna.