Bensi

Hreint og beint

  • bensi

    Ég er "samfélagslegur aðgerðasinni" - og hef áhuga á því að leggja að mörkum þar sem ég bý og starfa.
    Bý með eiginkonu og gömlum hundi. Er að byggja á gamalsaldri.


Glampandi Pollinn gárar fugl , ,

bensi 18. mars 2010

 

Hávellan er sá fugl í minningum bernskunnar úr Mývatnssveit sem er fyrsti vorboðinn; með sitt a.a. álla . . Í morgun var hópur kominn á Pollinn - frábært í ládeyðunni. :

Glampandi Pollinn gárar fugl,

grámann úr sinni rekur.

Fegurðin deyfir frétta-rugl,

fögnuð í brjósti vekur

                                        Í gær var þetta:

17.03.2010:

Það var dimmt yfir í morgun og ég lenti í hremmingum hjá sjúkraþjálfaranum. Beit saman tönnum þannig að jaxlarnir standa ekki nema hálfir upp úr - enn í kvöld:

Gat ekki komið frá mér stemmingunni fyrr en ég var búinn að fá mér Parkódín Forte og rauðvínsglas:

Görótt þokan grúfir yfir,

gránar dagur hver,

Óháð veðri ástin lifir, 

inni´í sjálfum mér.

Fært undir Óflokkað | Engin ummæli »

Dýrðin við Pollinn og fegurð sem er engu lík

bensi 15. mars 2010

 

 

 

Ég nota myndavél - en hef líka verið að reyna að fanga og tjá í orðum þá ótrúlegu fegurð og miðsvetrarkyrrð sem speglar himin og sólarljós í Pollinum.

Nota þessa aðferð markvisst til að bægja frá mér pólitísku þunglyndi og niðurdregnum hugsunum - þegar ég fylgist með afar laklegri frammistöðu ríkisstjórnar og ráðherra jafnaðarmanna og sósíalista.  

Málflutningur oddvita vinstri manna og ráðleysi  - er hörmulegt - og hroki fjármála-, félagsmála- og efnhagsmálaráðherranna er ámælisverður - og þarf tafarlaust að víkja fyrir jákvæðri og stefnumiðaðri hófsemd og góðviljaðri rökræðu.  

Verst er að bæjarstjórnarframboð Samfylkingarinnar er sama marki brennt - - sjálflægni og hroka - og ræði ég ekki sérstaklega framkomu og samskiptasnið oddvitans.   Mönnum sem vilja leggja að mörkum er sýndur fingur - undir borðið - með beinum og óbeinum hætti.

 

Dýrðin við Pollinn er hins vegar algerlega ótrúleg þegar lognkyrran og bjartur himinn spilar saman. 

Hef verið undirlagður af stemmingu og jákvæðum huga upp á síðkastið.    Pólitískur aulagangur getur ekki eyðilagt fegurð himinsins og dásemd náttúrunnar - og það veltur á okkur sjálfum að samþykkja ekki þann yfirgang sem getuleysið hellir yfir okkur - alla daga.

Svona er náttúrsýnin í minni útgáfu; -  dýrðin, fegurðin og góður hugur allt um kring

 

 

 

 

 ———— 

Sólin geislum signir fjörð,

sálir orku hleður.

Mikið fegrar móður jörð,

magnað gæðaveður.                    15.mars 2010 

——————–

Frá lækni mínum:                           13.mars 2010

Legið hafð’ann lengi særður,

linnt’ei eymdarvælinu,

unz farlama af fegurð ærður

fram hann spratt úr bælinu.PP 

———————–

Fjörðurinn umlukinn fjallahring,

fegurðin augað grípur.

Árdagsgeislarnir allt um kring,

umvefja tinda´og gnípur.                  14. mars 2010.  

———

Við birtu á himni og bjarma af sól,

og blíðu í morgunhúmi,

og fegurð sem umlykur byggð og ból,

bjartsýnn ég sprett úr rúmi.                12. mars 2010. 

—————————–

Við Pollinn er dýrðin af draumum svo rík,

og dásemd að líða með blænum.

Akureyri er engu hreint - lík,

með ást minni svíf ég í bænum. 10. mars 2010

—————–

 

Til góðra vina á laugardagskvöldi 12. mars. Vísa á korti (Ekki VISA-korti).

Á glampandi degi með góðum vin,

er gaman og ánægjan mest,

að dreypa á pela eða drekka gin,

þá er dýrðlegt að beisla hest.

 

Ég er eiginlega staðráðinn í því að halda þessu áfram.   Þannig mun mér takast að útiloka það illgjarna og heimskulega sem pólitískt öngstrætis-orðræða í mars 2010 hellir yfir okkur.

Myndasíðurnar hans Jóns Inga Cesarssonar eru önnur birting þessarrar sömu dýrðar: DÆMI

Fært undir Óflokkað | Engin ummæli »

Fær Guðmundur ríki allt - en Valdís almenningur ekkert hjá Arion?

bensi 12. mars 2010

Verulega athygliverð frétt á Pressunni:

Nákvæmlega það sem við höfum verið að vara við í marga mánuði - mismunun og geðþóttaákvarðanir - í þágu þeirra sem skuldsettu sig til Helvítis.   Þarna er ríkisstjórnin að bregðast almenningi.  Íhlutandi aðgerðir ríkisvalds í þágu almennra lántakenda eru mjög brýnar fyrir hagkerfið allt og fyrir samheldnina í samfélaginu.  mega ekki dragast stundinni lengur - jafnaðarmenn og félagshyggjufólk í öllum flokkum verður að taka fram fyrir hendurnar á ófærum ráðherrum sem hafa tekið að sér blóðuga málsvörn fyrir hagsmunum kröfuhafa og fjármagnseigenda.

Fréttin er svona á Pressunni

Lán færð yfir í ríkisbankana á hálfvirði: Ungur lyfjafræðingur vill hlut í því en fær ekki svar

Arionbanki naut mestra afskrifta þegar lán til viðskiptavina voru færð yfir í nýju bankana. Valdís Beck, liðlega þrítugur lyfjafræðingur og markaðsfulltrúi, sendi bankanum fyrirspurn fyrir mánuði og spurði hvort hún fengi ekki að njóta afslátta bankans í neinu. Ekkert svar hefur borist.Morgunblaðið segir frá því í dag að lán til viðskiptavina hafi verið færð á meira en helmingsafslætti yfir í nýju bankana í október 2008. Lánabækur hafi verið færðar yfir á 31-47% afslætti. Þetta byggir blaðið á uppgjörum NBI (Landsbankans), Íslandsbanka og Arionbanka fyrir síðustu mánuði ársins 2008.

Mest er afskriftin hjá Arionbanka, en í uppgjörinu kemur fram að bókfært virði útlána og krafna á viðskiptavini bankans hafi verið ríflega 1.230 milljarðar króna þegar lánin voru færð frá Kaupþingi til nýja bankans. Lánin eru hins vegar færð til bókar á 384 milljarða króna. Einnig kemur þar fram að lán til einstaklinga hafi numið um 11% af heildarlánum til viðskiptavina, eða um 37 milljörðum króna, miðað við virði þeirra á bókum bankans í lok árs 2008. Um 75% þeirra lána eru sögð vera í skilum.

Valdís útskýrði í tölvupósti til Arionbanka hinn 8. febrúar sl., sem Pressan hefur fengið aðgang að, að hún hefði ekki mikið milli handanna, leyfði sér varla að fara í bíó, hvað þá frekari barneignir, og bað umboðsmann viðskiptavina á skrifstofu bankastjóra að útskýra misræmi milli viðskiptavina bankans.

Mig langar að biðja þig um að útskýra fyrir mér hvers vegna ég sem tók 80 % lán (ISK) fæ engar niðurfellingar en nágranni minn, Guðmundur ríki í einbýlishúsahverfinu með góðu tekjurnar og jeppann í innkeyrslunni sem tók 100% lán fyrir allt of hátt verðlögðu einbýlishúsinu sínu, fær núna niðurfellingu á sínum skuldum? 80% lánið mitt og lánið hans Guðmundar ríka hafa hækkað hlutfallslega jafn mikið og afborganir að sama skapi. Ég veit líka að Guðmundur ríki á fullt af digrum sjóðum í banka. Hann fær niðurfellingu en ekki ég, hvers vegna?

Valdísi var lofað svari hið fyrsta. Ekkert bólar á því, nú rúmum mánuði síðar.

Fært undir Óflokkað | 2 ummæli »

Dýrð við Pollinn . . .

bensi 11. mars 2010

Stemmingin hljóp með mig;  -tvo daga í röð vegna góðviðrisins og fegurðarinnar hér við Pollinn.

Bý alveg sérstaklega vel að útsýni frá skrifstofunni  - þegar vel viðrar - yfir Pollinn af 4. hæð.  Eftir áskorun þá varð þetta svona;

Dýrðin við Pollinn af draumum er rík,

og dásemd að líða með blænum.

Akureyri eru engu hreint lík,

með ást minni svíf ég í bænum.

 

Læknir minn,sem er auk þess hagyrðingur og áhugamaður um skæting í morgunsundinu, fékk greinilega áhyggjur;  taldi að svo tilfinningaríkan kveðskap væri ekki að finna nema hjá skáldum sem væru aðframkomin heilsufarslega - kannski með berkla - eða væru orðin máttfarin af langstæðu hungri og vosi.

Lífsviljann í honum ætti að styrkja,

og ugg ég í sálu mér finn,

Því farlama skáldið er farið að yrkja,

fallega um kaupstaðinn sinn.

Fannst ég alveg mega til að deila þessu með blogg-lesendum - þar sem enn einn dýrðardagur er kominn að síðdegi - og fegurðin við Pollinn ætti að hvetja alla til að elska og fagna og kveða niður aulaganginn og illskuna sem hér hefur ráðið mánuðum og missirum saman.

:-)

 

 

Fannst alveg tilvalið að deila þessu með ykkur blogglesendum - - þar sem enn einn dagurinn öðrum betri er runnin að síðdegi - og fegurðin við Pollinn lætur engan ósnortinn.

Fært undir Óflokkað | 1 ummæli »

Þingmannastjórn? - til að leysa stjórnarkreppu.

bensi 9. mars 2010

Sé ekki að neitt bendi til þess að meirihluti hafi verið staðfestur að baki sitjandi ríkisstjórn á þeim dögum sem liðið hafa frá þjóðaratkvæðagreiðslunni.

VG segist styðja stjórnina en skilyrðin flögra yfir - enda ekkert á borðinu um það að efnisleg lausn liggi fyrir á ICESAVE - eða öðrum málum.

Jóhanna og Steingrímur eru þannig ekki að leysa stjórnarkreppuna - með þingmönnum VG - og Jóhanna er heldur ekki að ná sambandi yfir til annarra flokka.    Hluti af vandamálinu liggur innan VG og í samskiptum formanns þess flokks við eigið fólk og hvernig hann hefur misnotað það endurtekna svigrúm sem Samfylkingin hefur veitt honum.  Annar hluti af vandamálinu liggur í því að Jóhanna og Steingrímur geta tæpast talað við formenn Sjálfstæðisflokks og þingmenn hreyfingarinnar  - og alls ekki við Sigmund Davíð.

Sigmundur Davíð er að líkindum orðinn vandamál í Framsóknarflokknum - - sem þarf að ganga yfir á þeim bæ.  Hann er hins vegar ein af staðreyndum stjórnmálalífsins í augnablikinu.

Hrunskýrslan vofir yfir og stressar alla stjórnmálamenn meira og minna.  Sjálfstæðisflokkurinn virðist hugsa sér að gera Geir Haarde og Árna Matt að blórabögglum fyrir þátt flokksins í hruninu á síðustu metrum og í gegn um skelfingarnar.   Í Samfylkingunni hafa áhrifamiklir aðilar greinilega hugsað sér að freista þess að skilja Ingibjörgu Sólrúnu eftir með “Svarta-Pétur” fyrir hönd flokksins og fórna kannski Björgvin G Sigurðssyni ef það reyndist óumflýjanlegt.   Hvort tveggja viðhorfið kann að reynast háskalegt fyrir flokkana - og skilja eftir alvarleg sár og enn meira vantraust innan og utan valdastofnana.

Staðan er að mínu mati eftirfarandi;

  • steingrímur og Jóhanna eru ekki fær um að leiða saman meirihluta - til að ná lyktum í ICESAVE - með óbreyttu sniði.   Þau þurfa því að stíga til hliðar og aðrir að taka við.
  • Formenn stjórnarandstöðuflokkanna eru ekki færir til að kalla sína flokka að jákvæðri vinnslu með Samfylkingu og VG - án þess að ríkisstjórn Jóhönnu biðjist lausnar.
  • Kosningar núna - í skýrslufárinu - og með allt óklárað eru óðs manns æði - sem gerir allt sem er slæmt bara verra.
  • Allir stjórnmálaflokkarnir þurfa einhverja mánuði til að endurskipuleggja sína forystu, kjósa nýja formenn og varaformenn og stilla upp nýju liði - með umtalsverðum áhafnarskiptum.    Mörg ný andlit í framlínu stjórnmálanna eru alger forsenda þess að almenningur verði reiðubúinn að setja traust sitt á stjórnmálastéttina - smám saman á næstu missirum.
  • ICESAVE verður að leysa - og ljúka samningum og fjármögnun lánalína frá vinveittum löndum.
  • Endurskipulagning skulda hjá fyrirtækjum og fjölskyldum þarf að ganga með miklu skipulagðari hætti - og almennum aðgerðum - og lögbinda verður bætta réttarstöðu lántakenda og loka þarf gjaldþrotalögum með mannvirðingu að leiðarljósi.
  • Stjórnlagaþing, stjórnarskrárbreytingar, persónukjör og sjálfstæði dómstóla verður að fá áfanga

Þingmannastjórn: sem væri borin uppi af Samfylkingunni - og starfaði að afmörkuðum verkefnum fram á haust: - er sá möguleiki sem vert er að skoða.    Þá þurfa allir formenn flokkanna að víkja til hliðar - og mögulega varaformenn einnig.  Þingmenn úr öllum flokkum kynnu að geta myndað vopnahlé og gert bandalag - um þinglega vinnslu afmarkaðra mála - og ákveðið nýjar kosningar að tíma liðnum.  Kosningadagur gæti þess vegna verið ákveðinn fyrirfram t.d. í október 2010.

Það er ekki einsdæmi í íslenskri stjórnmálasögu að formenn flokka víki til hliðar til að leysa ágreining - og leysa stjórnarkreppu.

Ólafur Thors og Hermann Jónasson sátu ekki í ríkisstjórnum undir forsæti hvers annars eftir “þjóðstjórnina” 1942 - en þingmaðurinn Steingrímur Steinþórsson var forsætisráðherra 50-53.   Hermann Jónasson hvarf úr ríkisstjórninni eftir að Ólafur Thors tók við forsætinu 1953-1956.

Ólafur Thors formaður Sjálfstæðisflokksins var heldur ekki í Stefaníu (1947-1949) - og ekki Hermann Jónasson formaður Framsóknarfl heldur (leiðrétting bætt inn 12.03 2010 e. ábendingu Jóns Sig).

Gunnar Thoroddsen leysti stjórnarkreppu 1980 - með því að mynda ríkisstjórn með Framsókn og Alþýðubandalagi - og nokkrum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins.  Og Þorsteinn Pálsson var sem formaður Sjálfstæðisfl. um tíma utan ríkisstjórnar.

Kreppur þessarra fyrri tíma sem hér er vísað til hafa líklega verið miklu minni en sú kreppa sem nú stendur yfir.

Staðan núna er slæm - orðræðan ónothæf og Morfís-stællinn sem tekur sig alltaf upp aftur og aftur - er búinn að teyma formenn og lykilþingmenn í flokksbuxunum og með flokksgleraugun út í ófæru.   Lengur verður ekki við unað.

Óhefðbundin nálgun er langlíklegust til árangurs í þessarri þröngu stöðu .   Í því felast tækifærin svo vitnað sé til brýningar varaformanns Samfylkingarinnar www.dagur.is

Fært undir Óflokkað | 2 ummæli »

Formannskjör í Samfylkingunni verður sett á dagskrá?

bensi 7. mars 2010

 

Erum við að bíða eftir því að Samfylkingin setji formannskosningu á dagskrá?  Er ríkisstjórnin ekki búin að vera?

Nánar: www.bensi.is

Fært undir Óflokkað | 2 ummæli »

Er tími Jóhönnu. . . . . endanlega farinn?

bensi 5. mars 2010

Hef miklar áhyggjur af því að Jóhanna Sigurðardóttir sé að bregðast mikilvægum skyldum sínum - við þjóð sína og við jafnaðarmenn.   Það er þyngra en tárum taki ef arfur Jóhönnu leysist upp í ráðleysi og gráma - og rágjafar hennar - eða spunameistarar - skjóta hana pólitískt út með vondum ráðum og sjálflægum kjánaskap.

Vona að viðræður haldi áfram eftir helgi 

Jóhanna hefur verið baráttumaður fyrir því að tekið skyldi upp beint lýðræði - með þjóðaratkvæðagreiðslum - og hefur flutt um það frumvörp með beinum og óbeinum hætti á liðnum árum.

Jóhanna lagði fram frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðsluna  - og dagsetti hana.

Jóhanna hefur marglofað réttarbótum og endurnýjun á stjórnarskrá og nú er komið að fólkinu að fá að taka þátt í atkvæðagreiðslu - um einstakt mál.

Nú talar Jóhanna gegn sjálfri sér og sínum eigin hugmyndum - - og áhugamálum.

Málfutningur Jóhönnu hefur verið dapurlegur - alla ICESAVE-þrautagönguna, og ekki síst eftir að forsetinn tók fram fyrir hendurnar á hinum tæpa meirihluta Alþingis - - undir pressu frá áskorun frá 50-60 þúsund kjósendum - þarna í kring um áramótin.

Frá fyrstu dögum ríkisstjórnar SF og VG lét Jóhanna það gott heita að málið færi á forræði VG - og þaðan af hefur málið verið umlukið þeim veikleika sem “andstöðuhyggja” Vinstri Grænna ber í sér.

Jóhanna lét steingrími j eftir að halda málinu í sínum þrætufarvegi - í allt sumar og fram á allan vetur.

Dugnaðar-hamagangur steingríms j - villir um fyrir mönnum - hann lítur út fyrir að vera að vinna alla daga maðurinn - kófsveittur og með uppbrettar ermarnar - fram á kvöld og allar helgar - - önugur og þreyttur og með skætingstón þegar spurt er hvort þetta fari nú ekki allt að koma . . . eða hvort VG skili sér ekki í atkvæðagreiðslunni.

steingrímur segist alltaf vera að vinna - -og Jóhanna segir að unnið sé dag og nótt í öllum ráðuneytum: við að bjarga heimilunum í landinu - - -  það sé alltaf verið að koma til móts við “þá verst settu” . . .  en samt fjlgar bara og fjölgar þeim sem eru í vandræðum og ekki sjá fram úr . . . og þessi þjóðráð virðast meira og minna hafa verið blekkingar og spuni.    Gylfi Magnússon - virðist bæði ábyrgðarlaus og ósnertanlegur - talar af drýldni við almúgann - og félagsmálaráðherrann virðist uppteknari af eigin speglimynd heldur en þeim ískalda raunveruleika sem allur almenningur býr við.

Það er óboðlegt að svo stórt mál sem ICESAVE skuli nokkurn tíma hafa verið í forræði fjármálaráðherra eins og sér - -en ekki hjá forsætisráðherra og utanríkisráðherra Samfylkingarinnar.    Það er líka reyndar algerlega óskiljanlegt að forsætisráðherra Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra Samfylkingarinnar hafi látið það gerast að Brusselviðmiðin hafi verið að engu höfð - þar sem ESB hefði verið skilgreindur aðili að lúkningu máls.   

Hvers vegna í ósköpunum var ESB ekki kallað að borði til að hjálpa til við hagfellda lúkningu málsins?

Og  nú er Jóhanna farin að dissa almenning - - sem hefur beðið eftir tækifæri til að greiða atkvæði um alvarleg mál - hún ætlar að sitja heima.

Þetta gengur fram af mörgum: - jafnvel þeim sem hafa stutt hana fram að þessu

BBB

OA

GG

Fært undir Óflokkað | 5 ummæli »

Samfylkingin fokkar tækifærum

bensi 3. mars 2010

Á www.bensi.is

Fært undir Óflokkað | Engin ummæli »

www.bensi.is

bensi 2. mars 2010

Nú skrifa ég þessa dagana - - á www.bensi.is

. . . um forystuleysi í stjórnmálum (hér)

Fært undir Óflokkað | Engin ummæli »

Orðræðan um skuldaskil og tekjugrunn; Guðmundur Andri og Jónas Kristjánsson

bensi 25. febrúar 2010

www.visir.is Við búum öll í gulri rennibraut

Skemmti mér nett í morgun við að lesa grein Guðmundar Andra Thorssonar um “tekjugrunn” og “skuldastöðu” sveitarfélags - með afleiðingar hrunsins á baki íbúanna.

Vandamál  þar sem stökkbreytingu gengistryggðra lána sveitarfélagsins er vísað á íbúa þess eina sveitarfélags - og með því inn í persónulegan fjárhag allra fjölskyldna á Álftanesinu.  

Þórðargleðin og umræðuhrokinn - sem Guðmundur Andri tekur Jónas Kristjánsson sem dæmi um - eru út um allt.   Látið eins og venjulegur íslenskur almenningur hafi skuldsett sig til Helvítis - og það sé bara gott á þá sem sitja uppi með skuldir sem þeir geta engan vegin látið rekstur sinn og tekjugrundvöll standa undir . .  eftir hrunið.

Vandamálið er númer eitt auðvitað gengisviðmiðun lánasamninga og hrun krónunnar og með því um leið verðtrygging innlendra lána og stökkbreyting höfuðstóls.  Þetta allt með samdrætti  í vinnu, veltu og tekjum okkar allra . . .

Ríkisstjórn jafnaðarmanna og sósíalista hafnar samábyrgð’ samfélagsins á afleiðingum hrunsins - hafnar því að glíma við endurskipulagningu skulda með þeim “Norræna félagshyggju” grunni sem þeim var ráðlagt strax frá upphafi.  Þess í stað er vandanum vísað á hvern og einn -  á einstakar fjölskyldur sem gerðu sínar áætlanir í góðri trú - á venjuleg fyrirtæki í rekstri sem tóku sín lán til eðlilegra og mikilvægra framkvæmda á þeim kjörum og skilmálum sem bestir buðust - - vísa vandamálum til íbúa einstakra sveitarfélaga - - -

Álftanes er fyrst og fremst í symbólskri stöðu sveitarfélagsins - fyrst til að vera skilið eftir á ísnum.      Með því eru ábyrgðarmenn og hagsmunaaðilar í sveitarfélaginu settir í súpuna án þess að geta varið sig eða sinn fjárhag - og án þess að geta einu sinni flutt í burtu.

Svona eru einstök fyrirtæki og einstakar fjölskyldur líka settar  - út um allt land . . . . . .

Þarna eru okkar menn í stjórnmálaforystunni að bregðast illa Guðmundur Andri . . . . . og við því verðum við að bregðast á pólitískum og samfélagslegum forsendum . .  Takk fyrir greiningun.

Fært undir Óflokkað | Engin ummæli »

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning