Bensi

Hreint og beint

  • bensi

    Ég er "samfélagslegur aðgerðasinni" - og hef áhuga á því að leggja að mörkum þar sem ég bý og starfa.
    Bý með eiginkonu og gömlum hundi. Er að byggja á gamalsaldri.


Orkugeirinn er málið - …. og almannahagsmunir

bensi 4. júlí 2007

Átökin um Hitaveitu Suðurnesja staðfesta með mörgu öðru að orkugeirinn og útrásarvæntingarnar eru framtíðarvettvangur fjármagns og arðsvonar. Um leið sjá menn að söluverð á hlut Akureyrarbæjar og Reykjavíkurborgar í Landsvirkjun var mjög lágt - líklega þannig að tugir milljarðar hafa farið hjá þessum sveitarfélögum. Spyrja má líka hvað þeim gekk til að selja þegar allir áttu að sjá að við værum á þröskuldi nýrra möguleika - bæði í sölu á orku til fleiri aðila en álvinnslu og einnig og ekki síður vegna þess að við eygjum nú möguleika á að standa fyrir þekkingarútflutningi og þróun sem býður upp á mikilvæg fjárfestignartækifæri -með alþjóðlegum fjármagni innan og utanlands.

—-
Viðskiptaráðherra hefur auglýst eftir princip-umræðunni og ákvarðanatöku sem styðst við einhverja heildarsýn og vill stöðva einkavæðingu almannahlutverks vatsveitu, rafveitu og hitaveitu - á Suðurnesjum jafnt sem annars staðar á landinu.

Reynsla annarra þjóða af einkavæðingu orkumála og samgöngukerfis hefur verið slæm - og svo slæm að í USA og Bretlandi grípa menn ítrekað til takmarkandi löggjafar til að stemma stigu við gróðahugmyndum einkakapitalsins og fræg er reynslan af hlut Enron sáluga við að framkalla orkuskort í tilteknum hlutum Bandaríkjanna. Enron hrundi - og takmarkanir á umsvifum einkaaðila í orkugeiranum og sérstaklega takmarkanir á heimildum til að taka hagnað út úr rekstri slíkrar almannaþjónustu - hafa haldið skipulega innreið í ríkjum sem fóru fram úr sér í einkavæðingar-bulli Reagan-Thatcher tímabilsins. Jafnvel á Nýja-Sjálandi og í Chile reyna menn ákaft að bjarga sér undan mistökum og þeirri óskilvirkni - sem græðgisvæðing siðlausra fjárfesta og skrímsla - hefur leitt yfir hagkerfi þessarra landa.

—-
Nú þurfum við að passa upp á okkar framvindu; - gerum það með öflugri greiningu og rannsókn á staðreyndum. Látum ekki frjálshyggju-trúboð og áróður (þó hann komi frá Viðskiptaráði og Alþjoðagjaldeyrissjóðnum) vill okkur sýn.

Sýnist hann Stefán Snævarr alltaf skarpur í sínum greiningum á orðræðunni og bendi á grein hans í Lesbók Morgunblaðsins 30. júní sl. - þar sem hann andæfir enn og aftur yfirborðsvaðli Hannesar Hólmsteins og félaga hans. Einnig er vefur Stefáns oft býsna skemmtilegur - þar sem hann opnar á hugmyndir og skrif annarra - þannig að maður fer að leita.   Minni í því samhengi á ágætan pistil um bók David Harvey, A Brief History of Neoliberalism, sem Stefán birti sl. vetur.

Sjáumst
Bensi

3 ummæli um “Orkugeirinn er málið - …. og almannahagsmunir”

  1. Eyjan » Blog Archive » Bloggrúntur 040707: ritaði:

    [...] Benedikt Sigurðarson bloggar um orkugeirann og almannahagsmuni og er heldur á því að fara rólega í einkavæðingu orkufyrirtækjanna. [...]

  2. Kristín Dýrförð ritaði:

    Kannski einmitt vegna þess að áróðurinn kemur frá viðskiptaráði ber að skoða hann með afar sterkum gleraugum - minnug t.d. umfjöllunar þeirra um skólamál. Auðvitað fer almenn velsæld oftast saman við viðskiptahagsmuni og öflugt viðskiptalíf, en viðskiptahagsmunir fara ekki alltaf saman við almenna velsæld - því miður.

  3. Gústa ritaði:

    Veit einhver hvað Landsvirkjun er að gera með Rio Tinto í Afríku?
    Eru til einhverjir blaðamenn sem eru til í að skoða það og fræða okkur hin um málið?

Rita ummæli

Þú verður að vera skráður inn til að rita ummæli.

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Sjónvarp Útvarp Fréttablaðið
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning