Bensi

Hreint og beint

  • bensi

    Ég er "samfélagslegur aðgerðasinni" - og hef áhuga á því að leggja að mörkum þar sem ég bý og starfa.
    Bý með eiginkonu og gömlum hundi. Er að byggja á gamalsaldri.


Tillögur Jóhönnu verða auðvitað til bóta . . . . en bara í bili . .

bensi 15. nóvember 2008

meðan verið er að fella niður alla verðtryggingu fjárskuldbindinga og koma okkur inn í EVRU umhverfið.

Á mbl.is er að finna útreikninga á því hvernig heimilt verður að fresta hluta verðbóta af íbúðalánum.   Ekki er vafi að til skemmri tíma mun mörgum gagnast þessi afsláttur af greiðslu verðbótaþáttarins . . .  en hér er bara um frestun að ræða - -sem getur á endanum leitt til þess að frestaður verðbótaþáttur lengi í lánstímanum.

Alveg hiklaust gott og blessað til bráðabirgða; en

  • vertryggingin gerir óþolandi mismunun milli skuldara og fjármagnseigenda;  áhættan verður áfram öll hjá skuldurum - og bankar og fjármálastofnanir verða áfram nær ónæmar fyrir áhættu vegna verðbólgu
  • hvers vegna skyldi sá sem skuldar 30 milljónir fá að fresta miklu stærri fjárhæðum en sá sem lætur sér nægja að skulda 15 milljónir?   Getur ekki verið að rétt sé að heimila einungis frestun fastrar fjárhæðar etv. 25.000 pr. mánuð eða 300.000 pr. ár sem mundi muna meiru fyrir þá sem minna skulda og minna eiga . . . . .

Það sem eftir stendur er samt sem áður tregða stjórnvalda til að vinna að því að afnema verðtrygginguna - - eða frysta vísitöluna með lögum.  Ástæður slíkrar tregðu virðast einkum vera vegna hagsmuna Lífeyrissjóðanna.    Hvers vegna skyldu lífeyrissjóðirnir ekki taka þátt í því tjóni sem við stöndum nú frammi fyrir?

Réttlætiskennd mín segir að tjóni þjóðfélagsins verði nú að skipta með jafnræði aðila í huga;  - jafnræði milli skuldara og skuldareigenda og ekki síður með jafnræði milli kynslóðanna.    Hvers vegna skyldi “Frekjukynslóðin” sem koma sér fyrir í húsnæði á tímum neikvæðra vaxta og pólitískrar skömmtunar - - sem fékk óverðtryggð námslán og endurgreiddi franskbrauðsverð á hverju ári meðan þeir nenntu því . . . - hvers vegna skyldi þessi kynslóð ekki slá af sínum kröfum um verðtryggðan lífeyri og umtalsverðan séreignarsparnað?

Er eitthvert réttlæti í því?  Ég segi nei; - - stór hópur af þessu fólki var einmitt auk þess fyrstur til að sækja sér verðtryggða ávöxtun innlána - - og sækja sér tekjur á hlutabréfamarkaði og í hávaxtareikninga - og hefur nú borgað einungis 10% skatt af þeim tekjum um skeið.   Fékk aukinheldur skatt-endurgreiðslu um árabil . . .  eða styrk til að kaupa skráð hlutabréf……

N’u bregður einnig svo við að þessi eldri kynslóð hefur í auknum mæli tileinkað sér það viðhorf að í stað þess að leggja umtalsverðar fjárhæðir til barna sinna og barnabarna - - og lifa spart á efri árum - þá hefur þessi hópur nú í mörgum tilfellum fest sig í sjálflægu lúxusdekri - - og sett sér að eyða jafnvel fram úr hófi - - “njóta eigna sinna” - - - fremur en láta renna til yngri og óborinna afkomenda.

Þetta viðhorf er afar langt frá því hógværa og sparsama viðhorfi sem flestar fyrri kynslóðir - sem nú eru að kveðja - - viðhorfi sem fyrirleit eyðslu og óhóf en virti sparnað og hófsemd - vildi jafnvel fremur leggja öðrum en hrifsa til sín . . . lifði við lítið og var í raun nægjusamt..

Þessi “græðgisvæddi hópur” eldri borgara þarf að mínu mati að leggja sinn skerf að mörkum með því að taka á skerta verðtryggingu - - um tíma og hraðferð út úr verðtryggingunni - - þeirra hlutur verður síðan vel tryggður þegar við stígum í alvöru inn í nýja mynt.  

Það á að mínu mati að vera verkefni Jóhönnu og míns fólks í Samfylkingunni stemma stigu við græðginni - líka hjá “frekjukynslóðinni” - - og alveg óskiljanlegt að forysta launþega skuli leggjast á sveif með þessarri frekju og gleyma jafnræði kynslóðanna alveg í þessu efni.

2 ummæli um “Tillögur Jóhönnu verða auðvitað til bóta . . . . en bara í bili . .”

  1. Viðar Magnússon ritaði:

    Jæja Bensi þú hefur sem sé verið erlendis hin síðustu ár og ekki haft neitt samband hingað heim.
    Þú manst greinilega ekki eftir því að Kratarnir voru alveg himinlifarni yfir einkavæðingu bankanna og að “markaðurinn” ætti að ráða för það væri best í því þóðfélagi sem þeir ætluðu að byggja upp.
    Ég sagði vinnufélaga mínum fyrir viku síðan að þessar björgunaraðgerðir yrðu eins og nú er komið framm að það á að lengja í snörunni svo að við rétt stöndum í tærnar en við skulum sko fá að borga allar óreiðuskuldirnar og kratarnir( samfylkingarfólk) komast ekki hjá því að axla sína ábyrgð.

  2. Bensi ritaði:

    Missi punktinn hjá þér Viðar. Um að kratarnir hafi verið ánægðir með einka-vinavæðingu til handvalinna vildarvina eða þann eftirlitsramma sem settur var upp.
    Mín afstaða er alveg klár: - það þarf að kalla eftir því að öll sú fjárhagslega ábyrgð sem einstakir athafnamenn bera á hruni bankanna verði framkölluð og að aðrar eignir þeirra komi til skila við uppgjör. Fyndist eðlilegt að stjórnendur Landsbankans verði sóttir til saka vegna þeirrar áhættu sem þeir tóku með ICESAVE.
    Ég held að það hljóti líka að vera alveg óhjákvæmilegt að kalla eftir ábyrgð þeirra sem sitja í Seðlabankanum og FJármálaeftirlitinu - og á fyrsta stigi með því þeim verði vikið úr embætti og síðan ætti að láta reyna á lagalega ábyrgð þeirra þegar öflug rannsókn með aðstoð erlendra sérfræðinga hefur farið fram . . . . Kerfisfall bankanna stafar einkum og kannski eingöngu af ICESAVE skandalnum - -og af því klúðri situr þjoðfélagið allt með hundraða eða þúsunda milljarða tjón í fjármunum og slíkan álitshnekki að áratugir munu líða áður en það verður bætt - - - og líklega verður það aldrei bætt.
    Mótmæli því að nokkuð í stefnu Samfylkingarinnar geri það að verkum að pólitískt beri Samfylkingunni að taka á sig beina ábyrgð á hruninu - - -en það kann hins vegar að vera að ábyrg viðskiptaráðherra á klúðri fjármálaeftirlitsins sé slíka að hann verði að segja af sér - - amk. ef hann vveitir Jónasi Fr. Jónssyni ekki tafarlega lausn frá störfum

Rita ummæli

Þú verður að vera skráður inn til að rita ummæli.

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Sjónvarp Útvarp Fréttablaðið
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning