Bensi

Hreint og beint

  • bensi

    Ég er "samfélagslegur aðgerðasinni" - og hef áhuga á því að leggja að mörkum þar sem ég bý og starfa.
    Bý með eiginkonu og gömlum hundi. Er að byggja á gamalsaldri.


Ung kona skrifaði Guðmundi Gunnarssyni til fyrir skætinginn

bensi 18. nóvember 2008

Fannst næstum “þakkarvert” að Guðmundur Gunnarsson skyldi senda mér skæting fyrir framlag mitt í Silfri Egils sl. sunnudag.    Guðmundur er eins og fleiri úr verkalýðsforystunni að verja verðtrygginuna út í eitt - - og telja sig eflaust vera að gæta “hagsmuna lífeyrissjóðanna” - - sem er sjálfsagt gott og blessað en . . . . !  Spyrja má þá hvað með hagsmuni þeirra sem standa undir greiðslum í lífeyrissjóðina og eiga í framtíðinni að vera hinir virku á vinnumarkaði?  Hvað með unga fólkið - fjölskyldurnar sem eiga börnin og þurfa að koma þeim til þroska - - og verja húsnæði sitt fyrir vísitöluhækkunum?

Ein ung kona skrifar Guðmundi áhugaverðan pistil undir bloggið hans og leyfi ég mér að vísa á það hér . .  og afrita:   ég hef engu við að bæta en þetta sjónarmið skýrir við hverju ég er að vara . . .

Ég og kærastinn minn keyptum 3ja herbergja íbúð og borguðum helminginn úr eigin vasa eins og þú forðum! Við höfum að vísu hurðir en þær eru eins og annað naglfast frá 1930. Húsgögnin eru gamalt gefins drasl frá foreldrum okkar “frekjunum”. En þetta er ósköp krúttlegt (sem hæfir víst okkar kynslóð) við höfum jú hvort annað og börnin okkar 3. Við hjólum í nám og vinnu til að þurfa ekki að reka bíl. Laun einu fyrirvinnunnar (hitt er enn í námi) fara í að borga af íbúðinni, námslánunum og leikskólagjöldin auk þess sem við kaupum mat í grunnskólanum fyrir elsta barnið. Aukavinna er af skornum skammti. Tannlækningar og annar lúxsus er eitthvað sem við höfum ekki einu sinni látið okkur dreyma um.

Núna mun það gerast að íbúðin okkar mun hríðlækka í verði. Lánin okkar munu snarhækka á meðan. Eftir mjög skamma stund eigum við ekkert í íbúðinni og nokkrum mánuðum síðar þurfum við að borga til að komast út á götu. Á meðan munu ömmur og afar barnanna okkar sitja í sínum skuldlausu eignum og leggja áfram til fyrir efri árin. Það eina sem skyggir á gleði þeirra verður að barnabörnin verða ÖLL flutt úr landi ásamt foreldrum sínum - því við höfum ekkert að gera á Íslandi lengur. Við erum vel menntuð, svo til nýkomin heim úr námi og eigum því mjög auðvelt með að flytja út aftur. Þar höfðum við það betra fjárhagslega, þótti ósköp notalegt að vera á góðum leigumarkaði og höfðum mun meiri tíma með börnunum okkar. Nákvæmlega sömu sögu er að segja af svo til öllum vinum okkar.

Stolt okkar yfir því að vera Íslendingar er löngu farið hvort eð er. Því var sturtað niður í gróðærinu þegar hrokinn var að fara með ráðamenn og útrásarvíkinga. Það er best að flýja sem fyrst með börnin svo þau upplifi þjóðerni sitt annað.

Ég vona bara að það verði gleðilegt á lífeyrinum og að símasamband við útlönd haldist svo þið getið rifjað upp barnsraddirnar við og við.
Þið getið þá sagt þeim fallegu sögurnar af því þegar þið höfðuð tuskur fyrir hurðar og máluðuð gólf.. alveg sjálf.

Vinnandi námskona með börn, buru, Íls, Lín og vegabréf!

Ein ummæli um “Ung kona skrifaði Guðmundi Gunnarssyni til fyrir skætinginn”

  1. Hildur ritaði:

    Hjartanlega sammála, er í sömu stöðu og get á nokkrum sekúndum fundið amk 10 aðrar fjölskyldur á sama róli og með sömu hugsanir.

Rita ummæli

Þú verður að vera skráður inn til að rita ummæli.

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Sjónvarp Útvarp Fréttablaðið
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning