Bensi

Hreint og beint

  • bensi

    Ég er "samfélagslegur aðgerðasinni" - og hef áhuga á því að leggja að mörkum þar sem ég bý og starfa.
    Bý með eiginkonu og gömlum hundi. Er að byggja á gamalsaldri.


Auðvitað rétt hjá Ingibjörgu, en Samfylkingin verður að skila sýnilegum árangri . .

bensi 22. nóvember 2008

www.visir.is ,,Fyrst kemur fólkið og svo flokkurinn
  • Það verður að hreinsa út úr Seðlabankanum
  • Það verður að kalla fram ábyrgð forstjóra FME
  • Það verður að tryggja að við skil gömlu bankanna fái fjáraflamenn og græðgishákar ekki að hrifsa til sín bestu bitana og fá fram ómálefnalegar niðurfellingar skulda. 
  • Það verður að frysta verðtryggingar-vísitöluna - og stíga með því bein skref út úr verðtryggðu krónunni - - annars er hætta á að stórir hópa getir ekki borgað af lánum sínum eða beinlínis kjósi að hætta að borga.    Jafnræði verður að tryggja milli lántakenda og fjármagnseigenda og fjármálastofnana -  og það mundi aldrei fyrirgefast Samfylkingunni að veðsetja framtíð barna og ungra með því að láta vísitöluna flytja tjónið af verðfalli krónunnar með tvöföldum þunga til úngra skuldsettra fjölskyldna og láta það sitja þar (en fría fjármagnseigendur við tjónið)
  • Það verður að leggja Íbúðalánasjóði til 20-30 milljarðar strax og tryggja eiginfjárstöðu sjóðsins til að honum verði mögulegt að eflast í þeirri tiltekt sem óhjákvæmileg er og þegar ákveðin með neyðarlögum.
  • það verður að hreins til á hinu embættislega sviði og hinu pólitíska einnig - - ekki af því að einstaklingar hafi sannanlega framið refsivert athæfi - heldur vegna þess að það fólk sem situr getur ekki unnið það traust sem verður að skapa - bæði innanlands og ekki síður í samskiptum við nágrannalönd . . . . .  og fjölþjóðastofnanir.

Það verður að tryggja okkur sýn út úr íslensku krónunni og inn í EVRUNA - með stystu færu leið.

Ingibjörg fær ekkert mjög langan tíma til að ná þessum áföngum;  - ef það tekst ekki þá mun Samfylkingin stíga upp úr ríkisstjórn í febrúar-mars og þá verður kosið í maí.

Takist Ingibjörgu á ná samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn um þessi mikilvægu atriði - - þá situr ríkisstjórnin út árið 2009.

6 ummæli um “Auðvitað rétt hjá Ingibjörgu, en Samfylkingin verður að skila sýnilegum árangri . .”

  1. steini ritaði:

    Þú kallar þig “samfélagslegur aðgerðasinni”
    Veit ekki hvað hefur komið fyrir þig en annað hvort ertu á jötunni eða vonast til að komast á hana.

    Hér áður fyrr hefðir þú látið allt flakka.
    En ert sennilega bara orðinn gamall og lúinn.
    steini

  2. Kristbjörn Árnason ritaði:

    Ingibjörg fær engan tíma til að ná þessum árangri. Ef Ingibjörg Sólrún ætlar ekki að þekkja sinn vitjunar tíma sjálf þá missir hún tiltrú þess fólks sem hefur kosið Samfylkinguna. Það er Samfylkingunni fyrir bestu að biðja strax um umboð kjósenda

  3. bensi ritaði:

    Jú jú; - en ég er á því að ef Sjálfstæðisflokkurinn stígur hvergi til móts við Samfylkinguna og þá pressu sem er innan Samfylkingarinnar - þá hefur Ingibjörg ekki bakland til að bíða fram yfir Evrópuumræðufund Sjálfstæðisflokksins í janúar-febrúar 2009

  4. Kristbjörn Árnason ritaði:

    Þetta er hennar bakland, bakland Samfylkingarinnar eru ekki snoppufríðar yfirstéttarpíkur. Það eru vinnufataklæddir launamenn sem t.d. mæta í kulda og trekk á Austurvöll.
    En vill auðvitað að allt fólk kjósi VG næst.
    Mér fannst hún vera ögn taugatrekkt í ræðunni.
    Hún má gjarnan vera það.
    Hún verður að gera það upp við sig hvorum hún vill fylgja. Íhaldinu eða fólkinu í launamannastétt

  5. bensi ritaði:

    Bíddu við Kristbjörn: - vert er VG að fara?
    . . þeir vilja ekki lán frá IMF
    . . ekki samninga við Evrópuþjóðir
    . . segjast ekki vilja skuldsetja þjóðina - en það er búiða ð því hvort sem okkur líkar betur eða verr
    . . eru líklega hættir að bulla um Norsku-krónuna
    . . þeir vilja ekki leggja verðtryggingu íbúðalána og námslána til hliðar með frystingu vísitölunnar eða niðurfærslu
    . .
    Hvaða bull er þetta með launamannastétt; - það sýnir sig að lægst launaða fólkið hefur alltaf verið að kjósa Sjálfstæðisflokkinn og þeir sem eru minnst menntaðir eru að kjósa Framsóknarflokkinnn alveg fram undir þetta . . . . .

    Venjulegt fólk með góða skynsemi sem vinnur sína vinnu eru launamenn - - - - þetta fólk vill vinna fyrir sanngjörnum launum og taka sinn þátt í að skapa framtíð fyrir bön og barnabörn . .
    . . auðvitað deilum við gremju þeirr og krefjumst aðgerða
    En í bili verðum við að viðurkenna að við fáum ekkert út úr því að ríkisstjórnin segi af sér og kosningabarátta með innihaldslausum yfirboðum taki yfir - - og engar aðgerðir komist til framkvæmda.
    Hver er framtíðarsýnin; - - ég vil fara til samninga með og við Evrópuþjóðir og til fullrar og ábyrgrar þátttöku . . . og ég vil að þjóðin fái slíkan kost fullmótaðan upp á borð.
    Ég hef ekkert að gera með innihaldslausr upphrópanir Steingríms J - - og gef ekkert fyrir hrokafullan málflutning Ögmundar (sem vill endilega verja verðtrygginguna)

  6. Kristbjörn Árnason ritaði:

    Sæll Bensi,
    þetta sem ég hef sagt um að það sé nauðsynlegt fyrir Samfylkinguna endurnýja umboð sitt er mín skoðun og snýst ekkert um VG og loddaraskap Steingríms sem er ótrúlegur og óábyrgur. Það snýst heldur ekki um varðstöðu Ögmundar varðandi verðtyggingarnar, er það allt vegna steinbarnssins sem lífeyrissjóðakerfið er verkalýðshreyfingunni og eftir að eftirlaunakerfi opinberra starfsmanna var breytt í lífeyrirsjóðakerfi eru opinberir starfsmenn komnir í sama vandann og ASÍ félögin . Þetta sjóðakerfi hefur aldrei gengið upp og mun aldrei gera það.
    Nú þessa daganna eru forystumenn ASÍ á ferð um landið og munu þeir ræða verðtryggingar sérstaklega.
    Ég veit að þeir VG menn eru berjast fyrr því við að reyna skapa sér sérstöðu í íslenskri pólitík og hafa verið ótrúlega óheppnir, því þeir hafa veðjað á hverja vitleysuna af annari. Auk þess sem þeir hafa í raun vaðið úr einu í annað. Án þess að ég viti það, finnst mér sem þar innan borðs sé allt logandi í ágeiningi þar sem gömlu þjóðernissinnarnir eru afar ósáttir við þá stefnubreytingu sem er að verða í flokknum gagnvart ESB . Þá eru útleggingar Ögmundar varðandi gjaldeyrissjóðinn s.s. alveg réttar en þær eru fyrst og fremst sögulegt yfirlit. En vegna innanhúsátaka um stefnu er VG í vandræðum. VG felur sig á bak við þetta sögulega yfirlit. Vandræðin snúast ekki einvörðungu um þessi mál , heldur miklu fleiri mál. Í þeirra flokki er vinstri pólitík í raun órædd, vegna þess að sama gamla fólkið heldur einnig þeirri umræðu í gíslingu.
    Þá er komið að stóra vandamálinu, það verða kosningar innan tíðar og líkindi til þess að VG komist í ríkisstjórn hafa aukist verulega. Ef VG verður ekki kominn með alvöru vinstri stefnu fyrir kosningar sem breið sátt ríkir um innan flokksins , mun VG þurfa að bakka úr meira og minna öllum málflutningi sínum sem hefur verið að mestu það sem Steingrímur segir frá degi til dags.
    Til ítrekunar
    Ég er ekki að hugsa um VG, heldur um endurnýjað umboð Samfylkingar hja venjulegum launamönnum sem vill auðvitað ábyrga umræðu um pólitík En þetta sama fólk vill losna við íhaldið út úr stjórnarráðinu. Ég er algjörlega sammála því, að til þess að byggja upp nú eftir hrunið á að halda frjálhyggjuöflunum úti. Einfaldlega til þess að hægt verði að byggja upp félagslegt þjóðfélag á Íslandi upp úr rústunum.
    Ég skil vel að foringi Samfylkingarinna hiki við að taka upp samstarf við Steingrím hann virkar mjög ótrúverðugur til samstarfs. Jafnvel gömlu AB foringjarnir höfðu aldrei uppi svona loddaraskap. Það getur samt orðið hennar hlutskipti í pólitíska lífinu.

Rita ummæli

Þú verður að vera skráður inn til að rita ummæli.

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Sjónvarp Útvarp Fréttablaðið
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning