Það er ekki hlutverk Ingibjargar Sólrúnar að þjóna hagsmunum Sjálfstæðisflokksins sérstaklega
bensi 4. janúar 2009
Segir Ingibjörgu Sólrúnu vinna gegn ESB umsókn Aldeilis furðulegt að heyra Sjálfstæðismenn ýmist móðgast eða kvarta undan því að formaður Samfylkingarinnar tjái sig um ESB á grundvelli margyfirlýstrar stefnu flokks síns.
Ármann Ólafsson toppar næstum Sigurð Kára með kerlingarnöldri og bulli um að Samfylkingin eigi ekki að ítreka sína stefnu - - eða halda sinni stefnu til haga gagnvart Sjálfstæðisflokknum - af því að slíkt spilli fyrir samstöðu á Landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Þvílíkt endemis bull.
Þetta sýnir enn og aftur að fjölmargir forystumenn Sjálfstæðisflokksins halda að það eigi að snúa stjórnmálum landsins og fréttaflutningi um hagsmun Sjálfstæðisflokksins - á kostnað allra annarra hagsmuna. Þessi forréttindahyggja er ekki ný af nálinni - - og með þess háttar bull komust þeir allan tímann sem þeir voru í samstarfi við Framsóknarflokk Halldórs og Valgerðar . . . enda að lokum engin leið að sjá að Framsóknarflokkurinn hefði nokkra aðra stefnu en Sjálfstæðisflokkurinn eða ríkisstjórnin.
Ingibjörg Sólrún verður að halda sínu striki og árétta stefnu Samfylkingarinnar - - og stilla upp þeim mun sem er á meginlínum í stefnu flokkanna . . . . . . þó hún framfylgi auðvitað sameiginlegri niðurstöðu flokkanna og ákvörðunum ríkisstjórnarinnar þegar það á við.
Ég er "samfélagslegur aðgerðasinni" - og hef áhuga á því að leggja að mörkum þar sem ég bý og starfa.
4. janúar 2009 kl. 19.30
Sameiginleg niðurstaða ríkistjórnarinnar er að gera ekki neitt,ríkisstjórninn fordæmir ekki slátrun ísraelsmanna á saklausum borgurum palestínu,hvað hefur þessi stjórn gert í hruni efnahags landsins,auðmenn sleppa með allt sitt,alþýðan á að borg sukk þeirra,og nú á að afstrika skuldir útgerðarinnar hvejir skildu þurfa að þrífa skítin eftir þá,jú sennilega alþýða þessa lands,er ekki komið nóg hversu lengi ætlar Ingibjörg að halda lífi í handónýtri stjórn er samfylkingin svona hrædd við kostningar.