“Helvítis fokking, fokk” og Guðmundur Steingrímsson
bensi 6. janúar 2009
Gengur til liðs við Framsókn Ég hef verið svolítið hugsi eftir að ég heyrði það sem fréttir að Guðmundur Steingrímsson væri búinn að segja sig úr Samfylkingunni í gær. Svo heyrði ég að hann “ætlaði í gönguskóna sína til að heimsækja Framsókn” . . . .
- Var Guðmundur búinn að halda uppi einhverjum tilteknum málflutningi - innan Samfylkingarinnar - eða utan?
- Var einhver málefnalegur ágreiningur við lykilfólk í Samfylkingunni?
- Lenti þeim saman Degi B Eggertssyni 100-daga borgarstjóra og aðstoðarmanni hans?
- Fékk Guðmundur ekki tækifæri til að láta til sín taka í starfi og hlutverkum innan Samfylkingarinnar?
- Lenti Guðmundur í “einelti” - eða útilokun í flokknum og fékk “ekki að vera með í partýinu”?
- Ætlar Guðmundur að endurreisa einhvers konar “félagshyggju” í Framsókn og endurvekja “samnings-stjórnmál´” í anda Steingríms Hermannssonar?
Ég hef svosem ekki orðið var við neitt slíkt: og ef málefnalegur ágreiningur var til staðar milli Guðmundar og flokkshestanna í Samfylkingunni þá væri áhugavert fyrir mig og marga aðra sem hafa viljað sjá tilteknar áherslur springa út í flokknum að vita hver sá ágreiningur kann að hafa verið.
En það er líklega léttara að komast á framfæri innan svo fámenns flokks sem Framsókn er orðin. Við ættum kannski að hugleiða það hin sem eigum engan skipulagðan klíkuhóp að baki okkur í Samfó!
Kannski var þetta allt saman bara svona “helvítis fokking fokk” - - og verður hvorki Guðmundi né gömlum vinum hans í Framsóknarflokknum til framdráttar.
Ég er "samfélagslegur aðgerðasinni" - og hef áhuga á því að leggja að mörkum þar sem ég bý og starfa.
6. janúar 2009 kl. 19.55
Ég hev skorað á friðelskandi fólk,farið úr framsókn.Sjálfstæðisflokkurinn át ikkur í Irak.Nú er framsókn bara frosin úrgangur stríðsafla sjálfstæðismanna.