Bensi

Hreint og beint

  • bensi

    Ég er "samfélagslegur aðgerðasinni" - og hef áhuga á því að leggja að mörkum þar sem ég bý og starfa.
    Bý með eiginkonu og gömlum hundi. Er að byggja á gamalsaldri.


REI spillingin - ekki mútur?

bensi 9. apríl 2009

www.visir.is Bjarni Benediktsson: Risastyrkur ekki tengdur REI

Maður verður alveg undrandi þegar í ljós kemur að einstök fyrirtæki hafa borið fé á stjórnmálaflokka.  Ekki batnar það  - með lykilmenn grunsamlega tengda einstaklingum í forystusveit Sjálfstæðisflokksins og tengingu við afgreiðslur og verkefni - eins og REI.   Og ekki megum við gleyma því að einkavinavæðing bankanna og ránið á sparisjóðunum var í fersku sambandi. 

Við vitum auk þess núna að Björgólfarnir skulda ríkinu enn vegna kaupanna á Landsbankanum sem nemur hálfu kaupverðinu . . eftir tugmilljarðar hafa verið teknir út úr hinum fallna banka.   Einkavinavæðingi fór nefnilega þannig fram að bankarnir lánuðu völdum hópum til að kaupa í hinum bankanum - sem síðan aldrei var greitt til baka . .eins og nú sést.   

Vafasöm höndlun Valgerðar Sverrisdóttur á málefnum Eglu ehf Ólafs Ólafssonar - undir handarjaðri Framsóknarflokksins - við kaupin á Búnaðarbankanum - þar sem því var logið að franskur stórbanki væri leiðandi um ráðgjöf við verkefnið og látið í veðri vaka að hann yrði samstarfsaðila - - og svo “gervibankinn” Hauch Aufhauser eða hvað hann nú heitir.    Við hljótum að spyrja hverjir fjármögnuðu Framsóknarflokkinn í þessum aðdraganda . . . og í eftirleiknum . . . .

Von er að spurt sé þegar horft er á 30 milljóna greiðsluna frá FL til Sjálfstæðisflokksins;  hvar var Inga Jóna eiginkona formannsins og um tíma stjórnarmaður í FL-Group?  hvar var Guðlaugur þór þá stjórnarformaður OR? - hvernig varð REI tengingin til Orkuveitu Reykjavíkur til?

Ég hef lengi verið talsmaður þess að fyrirtæki á markaði og í almannaeigu móti sér skýra stefnu um samfélagslega þátttöku - m.a. með fjárstuðningi við stjórnmálflokka - þar sem ekki er verið að hygla sjónarmiðum heldur efla þátttökumöguleika í lýðræðislegu starfi.   Flokkar og samtök geti sótt stuðning - með opinberum hætti  til slíkra aðila . . . en á sama tíma taki stjórnir félaganna með ábyrgum hætti fram fyrir hendur framkvæmdastjóranna að þessu leyti: - og beinlínis banni þeim að hygla eða múta . . . . .

Ekki mundi ég kveinka mér í sporum fyrrverandi formanna og framkvæmdastjóra Samfylkingingarinnar - að upplýsa um styrki til þess flokks:  - og ef eitthvað í slíka líkingu og þessar stórgreiðslur Landsbanka og FL til Sjálfstæðisflokksins er þar að finna:  - þá taka menn bara aðleiðingunum af því.

2 ummæli um “REI spillingin - ekki mútur?”

  1. carlos.annáll.is - » Skuldir og greiðslur ritaði:

    [...] Carlos @ 13.09 9/4/09 Við vitum auk þess núna að Björgólfarnir skulda ríkinu enn vegna kaupanna á Landsbankanum sem nemur hálfu kaupverðinu . . eftir tugmilljarðar hafa verið teknir út úr hinum fallna banka.   Einkavinavæðingi fór nefnilega þannig fram að bankarnir lánuðu völdum hópum til að kaupa í hinum bankanum - sem síðan aldrei var greitt til baka . .eins og nú sést.   Bensi í dag [...]

  2. JR ritaði:

    Einkavinavæðingin fór fram með sóma !

    Notast var við lygar og blekkingar við einkavinavæðinguna.
    Einkavinirnir áttu svo aldrei pening fyrir kaupunum , sem við þurfum síðan að borga líka !

    Hvers vegna eru allir svona hræddir við utanaðkomandi aðili til að skoða fjármálastofnanir hér á landi ?

    Jú, þetta er allt sami klúbburinn og þar eru peningar í flokkssjóð ávísun á fyrirgreiðslu !

Rita ummæli

Þú verður að vera skráður inn til að rita ummæli.

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Sjónvarp Útvarp Fréttablaðið
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning