Brjálað að gera
11. febrúar 2012Ég skrapp aðeins til Cancun, Mexíkó um daginn og síðan hefur rútínan mín verið í skralli. Kannski bara gott. Afslappandi að vera ekki alltaf með óskrifað blogg yfir hausamótum
En þetta stendur allt til bóta.
Ég skrapp aðeins til Cancun, Mexíkó um daginn og síðan hefur rútínan mín verið í skralli. Kannski bara gott. Afslappandi að vera ekki alltaf með óskrifað blogg yfir hausamótum
En þetta stendur allt til bóta.
Velkomin á þessa skelfilega ljótu síðu.
Ég held ég líti á það sem áskorun að læra á þetta nýja blogg og reyna að gera svolítið vistlegt hér með tímanum. Svo sé ég bara til…
Annars ætti ég að vera að halda upp á langþráðan íþóttaárangur þessa dagana. Í gær mætti ég í Klifurhúsið í fyrsta skipti eftir mót (ný uppsetning) og tók allar hvítu (léttustu) leiðirnar sem upphitun. Þetta er stig sem mig hefur dreymt um að komast á. Til þessa hafa hvítu leiðirnar verið mér næg áskorun fyrstu dagana eftir mót. Kannski eru þær óvenju léttar núna en samt sem áður. Ég er komin upp í næsta þrep, úr neðstu tröppu í þá næstneðstu