stúdentapólitík

4. febrúar 2009 kl. 15.53 eftir bjorningi

Í dag og á morgun eru kosningar til stúdentaráðs háskólans. Litli frændi minn sem er á kafi upp fyrir haus í þessu, hringdi í gær til að fræða mig um áherslumuninum á röskvu og vöku þetta árið. Mér skylst að aðalágreiningurinn standi um gjaldtöku á 50 bílastæðum sem eru fyrir utan aðalbygginguna. Það er, röskva vildi taka gjald fyrir stæðin, en vill ekki kannast við það núna.. Þannig að ágreiningurinn er meira hvort að röskva hafi einu sinni, einhvern tíman, um daginn viljað taka gjald fyrir þessi 50 stæði.. Fylkingarnar eru hins vegar núna sammála um að slík gjaldtaka fari verulega í bága við hagsmuni stúdenta.

Svo hef ég einnig heyrt að röskva vilji slökkva á einhverri bónvél sem er víst að gera alla brjálæða…

Ég ætla samt að kjósa vöku, fyrir frændann. Þannig að þessi bónvél verður bara að vera í gangi eitthvað áfram.

Ranglæti heimsins

29. janúar 2009 kl. 3.39 eftir bjorningi

Eins ömurlega og við höldum að við höfum það hérna á klakanum, þá eru, ótrúlegt en satt, staðir þar sem lífið er líklega ögn verra,.

Einn af þessum stöðum, leyfi ég mér að fullyrða, er Palestína. Ranglætið sem saklausir íbúar Vesturbakkans og Gaza þurfa að þola er ekki hægt að lýsa með orðum. Eflaust hafa flestir fylgst með atburðunum sem þar hafa átt sér stað, án þess hafa skilið þá til fulls. Sem er skiljanlegt. Ég ætla þrátt fyrir það, ekki að fara mikið í forsögu átakana en fyrir áhugasama bendi sérstaklega á umfjöllun 60 minutes sem er einkar upplýsandi. Eigilega bara alveg agndofa upplýsandi. Það má segja að umfjöllunin skilur mann eftir með algjörlega enga trú um að “deilan” leysist.

Sem tilvonandi sérfræðingur í nágrannarétti get ég ekki sagt annað en að sambýli Ísraela og Palestínumanna er eitt versta dæmi um nágrannaerjur í sögunni. Eitt er að deila um land sem maður telur sig eiga vegna þinglýstra eignaheimilda, annað að deila um land sem maður telur að guð sjálfur hafi lofað sér.

Eina mögulega lausnin sem ég sé fyrir mér, er að Guð, hver sem hann er, opni himnana, stíga til jarðar og taki grímuna af sér. Eftir það þarf hann að sýna öll sín bestu töfrabrögð, lyfta sjónum, breyta vatni í vín, sprengja musteri, ganga á vatni, endurlífga nokkra vitleysinga og helst þarf hann að gera það undir dúndrandi englasöng. Síðan þegar allir eru sannfærðir, þá mætti hann segja, nokkuð staðfastur; “andskotinn hafi það, hættið þessari vitleysu”.

Þetta er ekki bara það skynsamlegasta heldur það eina í stöðunni. Þetta Ísrael-Palestína er einfaldlega búið að vera eitt stórt klúður guðs. Svo erum við Íslendingar að kvarta undan lélegri forystu.

Eitt í viðbót, rétt áður en guð býr sig til heimferðar, mætti kvikindið líka troðfylla drekasvæðið af olíu. Alveg troðtroðfylla. Það væri vel þegið…

Hjálp

27. janúar 2009 kl. 3.51 eftir bjorningi

Eru ekki örugglega til nógu margir björgunarbátar á skerinu..nei bara spyr

annars er þetta óþarfa stress allt saman því hamingjan er hugarástand,. eins og einhver sniðugur sagði einhvern tímann, til að vera hamingjusamur þarftu tvennt af þessu þrennu; einhvern til að elska, góða vini og góða atvinnu sem þú hefur metnað fyrir., Annað er aukaatriði..

þar sem allir eru að verða atvinnulausir eða þurfa að vinna skidejob til að eiga fyrir mat þá mæli ég með að íslendingar fari út og finni sér einhvern til að elska, það ætti ekki að vera erfitt, nóg af elskulegu fólki þarna úti.. hinsvegar þeir sem eiga ekki góða vini núna munu líklega aldrei eignast þá…nei ég segi svona, það hlýtur að reddast líka..

ég hef eigilega ekkert meira að segja til að laga báttið en þetta er líklega meira en nógu erfitt heimaverkefni fyrir næsta tíma.. þeir sem ná ekki að klára verkefnið ætla ég að ráðlegg að finna björgunarbát áður en þeir klárast…

ég er samt með eitt í viðbót sem bætir líklega ekki ástandið hjá einum eða neinum.. en það er gott að vita að maðurinn getur flogið.. án hjálpartækja..

Herra Barack

21. janúar 2009 kl. 3.15 eftir bjorningi

Þar með er það staðfest, Norðlendingur ársins, með töluverðum yfirburðum meira segja, er matreiðslumaðurinn. Hann fékk fjögur og hálft atkvæði, Stella frænka 2 atkvæði og aðrir minna.. Það var ánægjulegt,. Auðveldar verðlaunaafhendingu töluvert ,,ekki að það skipti máli..

Annars er lítið að frétta,. Lífið heldur áfram í sínum vanagangi, eins langt og það nær.. Þrátt fyrir að alþingishúsið hefur verið undir árás í allan dag þá skal ég viðurkenna að hugurinn hefur meira leitt til afríska Bandaríkjamannsins sem tók við valdamesta embætti heimsins í dag., Því þrátt fyrir að útlitið sé ekki bjart í samfélagi Íslendinga eða öðrum samfélögum heimsins þá gerir þessi embættistaka það að verkum að dagurinn í dag er betri en dagurinn í gær.

Hann hikstaði samt á embættiseiðnum. Ástæðan var víst að forseti Hæstaréttar Bandaríkjanna fór með hann vitlaust. Það var líka Bush sem réð hann..Viðbúið að það myndi klikka. Það er ekki mikið sem hefur gengið upp hjá þeim manni..

Maður finnur það samt, að mikill meirihluti allra er sannfærður um að Obama verði stórkostlegur forseti. Líklega vegna þess að hann er mælskur skratti og kann körfubolta., Ég skil það vel, maður fær það á tilfinninguna að hann hafi alltaf rétt fyrir sér. Sem er kostur.. Það breytir því ekki að það eru öfl í þessum heimi sem meira segja Obama hefur enga stjórn á.. Það skiptir nefnilega ekki alltaf máli þótt maður hefur rétt fyrir sér..

Það er sérstaklega tvennt sem ég sé fyrir mér að gæti valdið alvarlegri beyglu á tandurhreina skjöldinn, þ.e. fyrir utan þetta með kókaínið og grasið. Í fyrsta lagi er vél efnahagslífsins flókinn fjandi, og hann tekur við henni ekki bara höktandi heldur alveg við það að vera kaput., Ekki láta blekkjast, þótt að allir hafa skoðanir á því, þá veit í raun enginn með vissu hvernig á að gera við vélina, hvorki Obama, né prófessorinn í hagfræði í Cambridge Háskóla eða Seðlabankastjórinn í Líbanon. Það er ástæða fyrir því að aldrei í sögu mannkyns hafa fundist tveir hagfræðingar sem eru sammála um meira en það hvernig eigi að skipta um dekk, og það með herkjum. Nei þetta er bara spurning um að opna húddið, fikta í því sem maður heldur að sé í lagi að fikta í og vona það besta…. Það getur að sjálfsögðu farið á hvorn veginn sem er. Það breytir því ekki að arfleið Obama sem forseta mun líklega alfarið fara eftir því hvernig gengur að gera við kvikindið. Sem er reyndar eins og að binda fyrir augun á stýrimanninum, senda hann í brimrótið og láta hann bera ábyrgð á því ef illa fer. Ósanngjarnt, en þannig er það bara…

Hitt sem gæti drullað Obama verulega út er hryðjuverkabaráttan. Við, þessi sem vitum muninn á réttu og röngu, vitum að er ekki rétt að pynta fólk, það er heldur ekki rétt að halda því föngnu án dóms og laga, hvort sem það er í Kúbu eða annar staðar. Það breytir því ekki, að það er töluvert líklegra til afreka í baráttunni gegn hryðjuverkum, að fleygja sem flestum í fangelsi, njósna um sem flesta, pynta sem flesta, og almennt taka mannréttindi þeirra sem líta út eins og hryðjuverkamenn og troða þeim þar sem sólin skín ekki ..

Ég skal taka dæmi, við vitum að það er barnamorðingi sem býr í smábæ, en höfum ekki hugmynd um hver hann er. Hann er búinn að myrða fimm börn. Bæjarfélögin í kring er í lamasessi..Vænlegast væri náttúrulega að henda öllum íbúum smábæjarins í fangelsi. Eða pynta þá alla í von um að einhver viti eitthvað…Það þýðir samt ekki að það sé rétt að pynta saklaust fólk eða henda því í fangelsi, þetta vitum við alveg.. En hvað gerist þegar sjötta barnið deyr og það sjöunda. Áttunda og níunda..Og við erum búin að fækka grunuðum í 50… W. Bush myndi ekki finnast neitt að því að senda alla 50 til Kúbu með poka á hausnum..Jafnvel ekki þér heldur.

það sem ég er að segja, er ef það verður framið stórt hryðjuverk í Bandaríkjunum, þá munu spjótin án efa beinast að herra Obama..Því þrátt fyrir allt, þá hefur mannskepnan takmarkaðan áhuga á mannréttindum annara þegar vinir, ættingjar, kunningjar eða jafnvel bara samlandar eru að deyja.

Eins og ég segi, það er nefnilega ekki alltaf nóg að hafa rétt fyrir sér, stundum þurfa hlutirnir bara falla fyrir mann., Stöngin inn, stöngin út. Þá er ekkert hægt að gera annað en að treysta á að guðirnir elski mann..

Kannski eru þetta óþarfa áhyggjur, amma Obama býr í strákofa í Afríku og maðurinn er orðinn forseti Bandaríkjanna,. Það er ekki eins og guðunum virðist líka illa við hann,. Vonum að það haldist sem lengst….

10 bestu myndirnar 2008

14. janúar 2009 kl. 1.19 eftir bjorningi

Kvikmyndaspekúlantinn og lærlingurinn, emmson rivers plataði mig til að velja með sér 10 bestu myndir ársins 2008. ég var nú meira en lítið til í það, hafði ekkert betra að gera, þið skiljið, og hvað gerir maður ekki fyrir emmasinn. datt líka í hug að það væri athyglisvert að sjá muninn á mínu áliti og sérfræðingsins. við rivers höfum lengi vitað að þótt að kvikmyndasmekkur okkar er keimlíkur þá er einn reginmunur sem felst í því að emmson finnst leiðinlegar myndir vera góðar myndir, meðan ég er meira fyrir þær skemmtilegu..

að því sögðu þá eru þetta myndirnar hans rivers:

10. No country for old men
Fín en róleg mynd um fjöldamorðingja. Kannski of mikið að segja aðþað sé ferskur blær yfir henni. En það er eitthvað ferskt við hana.

9. Eastern promises
Viggó í topp formi. Brútal og skemmtilegt action

8. I am legend
Fín mynd um Palla sem var einn í heiminum, en var það svo ekki, væriofar ef að það væri ekki fyrir tölvugerðu zombieana.. hræðilegagervilegt.

7. Reykjavík Rotterdam
Loksins almennileg íslensk spennumynd með mátulegan skammt af spennu oghúmor.

6. Tropic thunder
Bráðfyndin og vel leikin gamanmynd sem að allir ættu að hafa gaman af.Ég og kuss fórum tvisvar á hana, aðallega út af því að RaggmannPjé hló svo mikið í fyrra skiptið að við misstum af mörgumbröndurum.

5. Iron man
Vel útfærð ofurhetjumynd með Downey. Frábær.

4. Juno
Ein af þessum krúttmyndum í anda Little miss Sunshine. Lágstemmdariþó.

3. Dark knight
Besta Batman myndin til þessa. En samt ekki eins góð og menn héldufram. En frábær engu að síður.

2. The Assassination of Jesse James by the Coward Robert Ford
Hádramatísk og frábærlega vel leikin, segir frá Robert Ford og JesseJames. Mjög fallega tekin, hver rammi listaverk.

1. In Bruges

Klárlega besta mynd ársins. Ógeðslega svartur húmor í bland viðspennu. Óvæntasta ræma síðustu ára.

ekkert út á þetta að setja,.allavega ekkert til að gera grín að. nema ég sofnaði yfir þessari jesse james mynd., og no country for old man var skelfilega leiðileg..en þetta fer nú oft eftir því í hvaða stuði maður er í þegar maður byrjar glápið.. leiðilegustu myndir geta stundum verið skítsæmilegar ef maður er nógu lágstemmdur,..eins og gerðist líklega með alla heimsbyggðina þegar hún horfði á þessa no country mynd…

.. en þær myndir sem mér fannst standa uppúr sem gleðigjafar árið 2008 eru:

10. 21.

Fín ræma, pínu of löng.. en fín

9. Rambo
fullur salur af strákum, eina stelpan í salnum var fyrir framan mig og var í snake allan tíman,. segir það ekki allt.

8. cloverfield
ef vondi kallinn hefði verið aðeins raunverulegri þá hefði þessi mynd verið top nodge..

7. forgetting sarah marshall
nett rómantísk gamanmynd,. ótrúlegt en satt, það dettur náttúrulega alltaf inn ein og ein..

6. brúðguminn

snilldar íslensk bíómynd,. bara að ég velji íslenska mynd á topp 10 lista yfir árið er mikið hrós.

5. Bank job
bara fínasti krimmi.

4. Dark knight
ég þarf samt líklega að sjá hana aftur, ég var ekki alveg með hugann við hana,. en ég man samt eftir töfrabragðinu með blýantinn. snilld

3. taken

sá hana bara í síðustu viku. skólabókardæmi um góða afþreyingu, láta vondu kallana vera bara nógu vonda og góða kallinn nógu klikkaðan., vuella..

2. James Bond.

ekki jafn góð og casino,,. en æi james bond,. hlakkaði til í marga mánuði og varð ekki fyrir vonbrigðum, það er bara nóg..

1. in bruges.
sammála emmson,. meistaraverk. svartur húmor, gott handrit og gert nógu mikið grín af dvergum.. fer í sama flokk og trainspotting,lock stock, snatch, boondock saints, reservior og pulp,og jafnvel ofarlega í þeim flokki.. það er góður flokkur..

en ég skora á þá sem hafa ekkert að gera að skella inn sínum topp 10 lista hérna í kommentakerfið,. það er aðeins erfiðara en maður heldur,. svo þeir sem eiga eftir að kjósa norðlending ársins hérna fyrir neðan,. það er harður slagur milli kokksins og stellu frænku og spennan í algleymingi,. annars bætti ég við tveim tilnefningum í kommentin ef þið tókuð ekki eftir því…

Norðlendingur ársins

11. janúar 2009 kl. 19.45 eftir bjorningi

þetta er ágætt en sitt sýnist hverjum og ég er á því að það vantar nokkra og nokkrar góða og góðar sem hafa afrekað mikið á árinu. Það er því nauðsynlegt að bjóða upp á annan norðlending ársins. Kjós away.

Emmson Rivers.

Fyrir gerð verðlaunamyndarinnar “yfirborð” og stuðlað að framgangi Alfa rómeó á leiklistarsviðinu

G.Víðir og Óskar Sigurðsson
Fyrir að hafa haldið vinnunni á árinu. Einnig á G. Víðir heiðurinn á Þryms búningunum sem hafa hlotið mikið lof hjá tískugúrúum.

Kokkurinn
Stórt ár hjá stráknum, Ólympíugull og rússneskir bikarar á hillunni fyrir ofan sjónvarpið bera vitni um það. Sterkur kandítat.

Dj
Fyrir stórkostlega frammistöðu í áramótaskaupinu sem vakti athygli langt út fyrir landsteinana.

Helga Einarsdóttir
Fyrir að verja heiður íslenskra kvenna á körfuboltasviðinu. Fyrsti landsleikurinn af mörgum kominn í hús

Stella frænka
Fyrir að vera ósamvinnuþýð og illa rötuð samkvæmt akureyrskum læknum sem náðu engan veginn að hægja á konunni frekar en aðrir, þrátt fyrir að skipta um kúlulið í mjöðminni á henni.

Sá hlýtur titilinn norðlending ársins sem verður fyrstur í 5 atkvæði. Annars verður enginn norðlendingur ársins 2008 og ég hendi bikurunum í ruslarennuna.

2009

8. janúar 2009 kl. 18.14 eftir bjorningi

2008 var skítt.. fyrir utan að Þrymur varð utandeildarmeistari í körfubolta. Sem var náttúrulega stór dagur í sögu íslensku þjóðarinnar.
Svo minnir mig að ég hafi farið á skemmtileg þorrablót.. það er líklegt.
Annars var ég ekki nógu duglegur að blogga til að muna meira athyglisvert á árinu..

2009 verður fínt, byrjar allavega ágætlega. Liverpool á toppnum. Bíllinn í lagi og á vetrardekkjum. Allt annað er aukaatriði

Hef samt sterkan grun um að þegar 2010 gengur í garð þá verður ýmislegt öðruvísi..nema að Liverpool verður ennþá efst í ensku deildinni og bíllinn verður í lagi og á vetrardekkjum. Og þar sem allt annað er aukaatriði þá meiga hlutirnir breytast eins og þeir vilja…

Eina markmiðið sem ég setti mér var að gera armbeygur og bæta við einni armbeygu á hverjum degi. Gerði s.s. 8 armbeygur í dag., skítlétt..býst samt við að desembermánuður verði erfiður..

Annars bara gleðilegt ár.. og allt það

Hlátur í boði Þúrör

22. desember 2008 kl. 21.48 eftir bjorningi

Snilldarfyrirbæri þetta youtube. Það er líka algjörlega allan fjandann að finna þarna. Kæmi mér ekki á óvart þó að ég myndi einn daginn rekast á mína eigin fæðingu þarna. Jú reyndar myndi það koma mér óvart. En samt ekki,. Jú það kæmi mér á óvart

En sem dyggur aðdáenda þúrörsins þá ætla ég að velja þrjár fyndnustu klippurnar sem ég hef rekist á þarna í óreiðanum. Þetta eru samt örugglega ekki fyndnustu klippurnar, bara þær sem ég man eftir núna ofan á hausnum á mér, eða on the top af my head..

í þriðja sætið er ein vinsælasta klippan frá upphafi á þúrörinu og ég efast ekki um að flestir íslendingar eru búnir að rekast á hana einu sinni tvisvar. Þetta er sagan af bræðrunum charlie og harry en harry verður fyrir því skelfilega óhappi að charlie bítur í puttan á honum. á 30 sek má sjá, ótrúlega margar mannlegar tilfinningar, gleði, reiði, stríðni, forvitni, hlátur, sorg, illgirni og ást, og allt með áströlskum hreim. sykursætt, svona fyrir dömurnar að sjálfsögðu

Í öðru sæti er myndband af þýskum brúðkaupssöngvara með geggjaðan möllet og já.. Stundum er ekki til orð í íslensku tungumáli, eða í neinu öðru tungumáli sem ég kann,.. fólk verður eigilega bara að sjá þetta .

Og í fyrsta sæti er það redneckinn sem er með að mér sýnist, kennsluhorn hvernig eigi að gera heimatilbúinn flugeld. Ef charlie er fyrir stelpurnar þá er þessi klippa fyrir strákana..Þetta er óeðlilega fyndið

En svo ég vaði úr einu í annað þá kemst ég loksins heim á morgun og æi,. það verður voða gott. Þótt það sé orðið mikið jólalegt hérna í Skollaskjóli, jólahreingerning, gyðingaljós, heill kassi af jólabjóra, hangikjöt í ískápnum og whatnot.. Við splæsum reyndar ekki í jólatré en ég skreytti bara vínskápinn í staðinn,. og það er nú ekki verra.

Annars bara, gleðilegur jólarinn..

ort í sandinn

15. desember 2008 kl. 18.48 eftir bjorningi

Þá fer að líða að því Kokkurinn komi heim úr útlandaförinni, konum þessa lands til ánægju og yndisauka..svona gerist þetta hratt maður.. ætli maður verði þá ekki að venja sig við að loka klósetthurðinni aftur,því miður. já það eru ekki alltaf jólin.

Annars vann ég stöðumælasektarmál fyrir hann meðan hann var úti.. 2500 kall sem hann sleppur við og viðurkenning fyrir því að grasbalinn fyrir aftan Sögu er einkabílastæðið hans.. Þetta var erfitt og strembið mál en hvað gerir maður ekki fyrir leigusalann sinn sem á stærsta vínsafn allra íslendinga sem eru fæddir árið 1981.

Annars hef ég ekki farið út fyrir hússins dyr í meira en mánuð núna,.fyrir utan vikuferðin í hofsós., mastersritgerðin maður,. ég er líka orðinn meira en lítið þreyttur,. sérstaklega þar sem ég er illa haldinn af því að geta ekki sofið.. ég gekk meira segja svo langt að hringja í lækni, spurði hvort hann ætti ekki eitthvað í pokahorninu.. Hann ráðlagði mér að setja geirmund á fóninn, helst “ort í sandinn”., bara passa mig á að hlusta ekki á “nú er ég léttur”, þá myndi ég aldrei sofna… já nei, ég er ekki að ljúga, menn fá samt ekki mörg stig fyrir giska á hver læknirinn minn er

annars er ég lítið stressaður, ekki langt í að maður skreppi í fjallaloftið.. þar sefur maður yfirleitt eins og ungabarn,.

svo er derrick dáinn,. maður hefði haldið ef einhver ætti að sleppa við þau örlög, þá væri það derrick,. en það er greinilega ekkert heilagt..eeeeekkert.

Elliær

8. desember 2008 kl. 0.28 eftir bjorningi

Það er sérkennilegur galli við mannshugann, þegar hann grípur misvitra lagabúta og spilar þá aftur og aftur í hausnum á manni þangað til að maður er við það að ærast.. í sama skilning og elliær. ekki elli mongó, heldur elli kennt við háan aldur. semsagt ufsilon LL. eins og skemmtistaðurinn við Po ufsilonLL inn á akureyri., eða “núna fara a ufsilonLL ir krakkar út að leika sér”… reyndar væri það óþarfi þar sem allir hefur bara eina merkingu. but you catch my drift.

En já með misvitra lagabúta, þá var ég með hið eiturfagra lag sex on fire með kings of leon svona líka á dúndrandi heilanum í heilan mánuð. Sem var reyndar ágætt, því það er gull af lagi og ég var líka, hvort sem er að heyra það í tíma og ótíma. Fyrir utan að það fjallar um kynsjúkdóm þá er það svalasta lagið á árinu..

En núna þá er ég með lagið All the single ladies put your hands up, if you like it then you should have put a ring on it með beyonce,. sem er svakalega kjánalegt. .og þó, kynsjúkdómur eða allar einhleypar konur að setja hendur í loftið,. líklega svipað kjánalegt..

Allt fínt að frétta úr kópavoginum og chicago,. reyndar veit ég ekkert um chicago nema kokkurinn var á lífi á fimmtudaginn. treysti á að hann sé það ennþá núna..

svo á ég tvö kíló af brúntertu og nokkra lítra af out of date mjólk ef einhver vill.,. jólin maður




Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning