fara í valmynd

Flutningur 28. 26ú6í 2007

Fært af bjossi undir Óflokkað. rita ummæli

Sigurbjörn Hafþórsson skrifaði nýverið undir samning við blogspot.com um að rita niður hugleiðingar sínar þar, er talið að hann muni fá fúlgu af fjár fyrir þennan samning.

 habboson.blogspot.com.

Bolludagur 28. 4ú2í 2007

Fært af bjossi undir Óflokkað. 4 ummæli

BOLLUDAGUR

.
Í dag fagna Íslendingar því að 150 ár eru liðin frá fæðingu Sveinbjargar Bollu Einvarðsdóttur, en við hana er bolludagur kenndur.

Sveinbjörg er jafnan talin fyrsta konan af almúgaættum sem náði því marki að komast yfir svokallaða kjörþyngd, en það þótti einungis á færi afar efnaðra hefðarkvenna á þeim árum.

Árangurinn þakkaði Sveinbjörg einkum stöðugri rjómadrykkju og selspiksáti og varð lífstíll hennar fljótt fyrirmynd ungra kvenna sem áttu í stöðugri baráttu við að komast í góð hold.

Sveinbjörgu auðnaðist þó ekki að halda lengi í aukakílóin, hún veiktist illa af hjarðsveinasjúkdómi skömmu eftir að hún náði 100 kílógramma markinu – og lést, aðeins 21 árs að aldri, þá 32 kílógrömm.frett_29_bolla1.jpg

Innkaup 28. 9ú12í 2007

Fært af bjossi undir Óflokkað. 5 ummæli

Jæja ég tók bros mitt á ný í kvöld þegar ég horfði á Næturvaktina. Hafði verið í bros-verkfalli frá því miðjan dag í gær þegar Rafa Benitez skeit uppá hársvörð. Ég lofa að ég skal verða duglegri að blogga heldur en ég hef verið undanfarna daga, nu kemur þetta, ég er viss um það.

jul.jpg

Málefni málefnana þennan daginn eru jólagjafainnkaup. Að fara í matvörubúðir er það næst leiðinlegasta sem ég geri. Að fara í verslunarmiðstöðvar eins og Kringluna eða Smáralind eða bara í einhverja búð að kaupa eitthvað er það leiðinlegasta sem ég geri! Það að kaupa jólagjafir er hrikalegt fyrir hvern einasta karlmann á landinu ef ekki bara heiminum. Tilhugsunin við að þurfa fara í einhverja búð, elta konuna um alla búðina, lítandi á klukkuna á mínútu fresti, skoða allt dótið í búðinni, sjá allt fólkið og ég tala nú ekki um að bíða í biðröð við kassann lætur mig fá þennan hrikalega hausverk. En það er bara tilhugsunin.

Þegar þessir hlutir eru framkvæmdir þá bætist við gríðarlegur bakverkur aðeins við það að sjá búðina, magapína og sviti, erfitt verður að anda og maður sér ekkert nema móðu. Þegar þessir hlutir eru búnir þá líður mér eins og ég hafi vakað í 35 tíma en ekki 2-3 eins og þegar ég fór í verslunarleiðangurinn í gær, ekki bætti úr skák að fara heim eftir strögglið og horfa á Liverpool skítléilega, það gekk frá mér. Þetta eru ástæðurnar fyrir því að ég vaknaði um hálf 1 í gær og var farinn að sofa fyrir 11!

Ég þakka guði fyrir að vera langt kominn með jólagjafirnar í ár.

Kv. úr víkinni

shopping.jpg

Mánudagur til mæðu 28. 19ú11í 2007

Fært af bjossi undir Óflokkað. 2 ummæli

Jæja sit við tölvuna klukkan hálf 11 búinn að vera að sprikla síðan klukkan 8 í morgun. Var með íþróttakennslu í dag þannig ég var spriklandi frá 8-14:00 og kom kósveittur heim úr vinnunni, tók hálftíma svefn á þetta áður en ég skellti mer í playstation og síðan tók æfing við klukkan 18:00. Æfingin stóð yfir til 20:15 og þá tóku við lyftingar þannig maður var kominn heim rétt fyrir 22:00, þetta tekur engan smá tíma!

Sit nýbúinn að narta kjúkling og sulla í mér ýmsum prótín drykki, allt reynt til að þyngja kallinn, gengur svona og svona. Er í fríi á morgun þar sem það er starfsdagur, ekki slæmt það. Það er þó í mínum verkahring að keyra vitleysingnum Guðnýju í skólann klukkan 8 svo maður sleppur ekki alveg.

Býst við að morgundagurinn fari í lyftingar og svo þarf ég að redda ískápsmálum, gengur ekki að vera ískápslaus. Stefnir allt í það að maður fari ekkert norður fyrr en í jólafríinu, gengur natturulega ekki, leikir næstu tvær helgar, fyrst við ÍR á föstudaginn aftur, og svo FH sunnudaginn 2.des, þá á ég von á að prótindrykkirnir verði búnir að gera sitt gagn og ég verði orðinn 95 kg af vöðvum svo ég get hent þessum ellismellum í FH af vellinum, hef gert það við pabba síðustu 5 ár svo ég er vanur.

Kv. úr stórborginni 13.000 manns og fjölgar stöðugt eins og þeir segja.

5 mills 28. 12ú11í 2007

Fært af bjossi undir Fótbolti, Vinnan. rita ummæli

Gríðarfínn vinnudagur hjá mér í dag, 8:00 -13:10. Eftir að hafa byrjað fyrstu tvo tímana með 8 bekk í stærðfræðiprófi tók við 4 tímar með 4 bekk sem er afskaplega ljúft, enda mjög rólegt á þessum aldri. Rak augun í fotbolti.net í síðasta tímanum um kl hálf 1 og sá þá að fyrirliði Keflavíkur sé genginn í raðir KR Jónas Guðni. Er að fara á fund á eftir fyrir æfingu og hef grun um að það tengist þessu máli og væntanlega rædd málin vel og vandlega og kannski tilkynntur nýr fyrirliði maður veit aldrei.

Guðjón Árni fær mitt atkvæði það er alveg á hreinu enda toppmaður og gríðargóður bakvörður, mætir alltaf með fyrstu mönnum á æfingu, og er aldrei með nein leiðindi. Toppnáungi.

Er spenntur fyrir þessum fundi, hvað nú? DV segir að Keflavík fái 5 mills fyrir Jónas, á að kaupa hrúg af mönnum eða á að byggja þetta á yngri strákunum, vonandi að maður viti meira eftir fundinn, síðan fer ég á 3 tíma æfingu svo það er planað kvöldið frá hálf 6 - 9. Eitt er víst að ég mun aftur grípa mitt tækifæri þegar það gefst og ekki verra ef það væri nú miðjustaðan.

Nýtt líf 28. 11ú11í 2007

Fært af bjossi undir Óflokkað. 1 ummæli fram að þessu

Er ekki málið að fara segja þetta gott sumarfrí og fara rita eitthvað á þessa síðu annað slagið?

Sit hérna bara með kók í glasi og slappa af yfir netinu, er svona mest að skoða you tube og horfa á tónlistarmyndbönd, vissuð þið að the pretender með foofighters er gríðargott lag? Dúndur.

Er að kíkja á bítlana, pearl jam og sigur rós í leiðinni, chilluð stemning á heimilinu. Eyddi helginni annars í rvk, og gerði lítt merkilegt.

Annars er ég þannig staddur í lífinu þessa dagana fyrir þá sem ekki vita að ég er að kenna, forfallakennari í myllubakkaskóla í 1-10 bekk, fínt stöff, er yfirleitt buinn um 1-2 sem hentar mér gríðarlega vel.

Held ég byrji bara rólega og láti þetta gott heita.

Skandall vikunnar 28. 20ú8í 2007

Fært af bjossi undir Óflokkað. 5 ummæli

Afskaplega þægileg helgi að baki. Föstudagurinn, sem var jú afmælisdagurinn minn, fór mest í hangs á meðan Guðný var í skólanum, slappaði bara af bæði við að horfa á sjónvarpið og vafra a netinu, þangað til kl 7 þá kíkti ég á æfingu, og svo skruppum við í bæinn, þar hittum við Fusa, Gunna og Ragga og var úr því keilukeppni.

 Það þarf ekki að spurja að leikslokum þegar ég á í hlut, sigraði með nærri 40 stiga mun og endaði í 121 stigi að ég held, dáldið frá mínu besta reyndar, þar sem mitt besta er 165 sem ég á örugglega aldrei eftir að ná aftur. Gunni kom annar einhverjum 40 stigum á eftir mér, gaman af þvi.

Laugardagurinn byrjaði með enska boltanum, viðreign Man.City og Man.Utd sem varð mun skemmtilegri að horfa á en ég bjóst við, æðislegt að United gangi svona illa, ég gjörsamlega lifi fyrir það, og aðeins einum manni að þakka að Liverpool eigi ekki möguleika að vera 7 stigum á undan þeim, nánar að honum á eftir. Enski boltinn hélt svo áfram til að verða 7, en þá tók við önnur rvk ferð, nánar tiltekið menningarferð. Við skelltum okkur í bæðinn, röltum um, horfðum á flugeldasýninguna og krúsuðum svo aftur til Keflavíkur.

Sunnudagurinn var svo enþá meiri afslöppun, maður vaknaði snemma og byrjaði að horfa á enska, og horfði á enska þar til komið var að kvöldmatnum, en hann var pantaður í gegnum just-eat.is, snjeeelld að maður þurfi ekki lengur að taka upp símann einu sinni ;P Síðan ætluðum við að fara á Rush Hour 3 í bíó en ég beilaði á því, geymum það þar til á þri-miðvikudag, tókum frekar Norbit á spolu sem var svona þokkaleg, lala, ekker meir en það. Svo er það bara vinna í dag og leikur hjá 2.fl við Hauka á gervigrasinu að Ásvöllum í kvöld.

 Fífl vikunnar er svo Rob Styles, sem hefur eflaust fengið nokkra seðla í vasann fyrir frammistöðu sína á anfield í gær, þvílikur hálfviti þessi maður.

:p 28. 17ú8í 2007

Fært af bjossi undir Óflokkað. 4 ummæli

Jæja þá er maður loksins kominn í þennan stóran hóp kúgaðra karlmanna sem hafa kvenmann inná heimilinu sínu sem stjórnar manni með haðri hendi. Guðný flutt inná mann og núna eyðir maður öllum sínum frítíma í að vaska upp, þurrka af, ryksuga, skúra, sópa, taka til, fara út með ruslið, breyta, setja e-ð saman, taka upp úr töskum, versla, elda, og ég veit ekki hvað og hvað, núna skilur maður loksins hvað orðið kúgaður merkir. Neinei þetta er kannski of gróft sagt, þetta er fínt líf.

Enski boltinn rúllar á fullu, sáttur með Man.Utd þeir eru að gera gott mót, vonandi að þeir haldi bara áfram og missi stig gegn Man.City næstu helgi, gæti orðið strembinn leikur fyrir þá, mínir menn taka á móti Chelsea í hörku leik! Klár 1 til 2-0 sigur minna manna samt, Gerrard setur annað og einhver senter hitt. Gengur ekkert og rekur hjá mínum mönnum í Keflavík, ræðum það bara seinna.  Og KR unnu í gær, já sko, allt getur gerst.

Fríhelgi framundan, og ég er 19 í dag, ekkert plan um helgina, verður eflaust fínasta helgi, nóg af bolta í sjónvarpinu, spá mín í ensku deildinni verður sem hér segir.

1. Liverpool

2. Man.Utd

3. Chelsea

4. NUFC

5. Arsenal/Tottenham

6. Tottenham/Arsenal

————————-

18. Birmigham

19. Bolton

20. Derby

Sjáiði bara til.

Er með draumalið í fantasy.premierleague.com, fékk  31 stig fyrir fyrstu umferð sem var einhver 3-4 stig fyrir neðan meðallag, var ekki sáttur með það, skellti drogba inn í siðustu umferð og fékk 35 stig fyrir hana sem var 9 stigum fyrir ofan meðallag og drogba var með 22 af þeim ekki slæmt það. Sem setti mig upp í 79 sæti í Liverpool deildinni, stefni á topp 10 þar og buinn að stilla upp liðinu fyrir helgina, verður spennandi að sjá hvernig það gengur.

Þangað til næst

Sumarfrí á enda 28. 14ú8í 2007

Fært af bjossi undir Fótbolti. 2 ummæli

Þegar enski boltinn byrjar að rúlla þá byrja ég að blogga aftur. Kominn úr sumarfríi eldsprækur og tilbúinn að rita fréttir líðandi stundar. Gengur upp og ofan hjá 2.fl hérna í Keflavíkinni, vorum að klára tvo leiki um helgina við KA 0-3 tap og Þór 2-4 sigur á akureyri, náði að setja 2 mörk gegn þór sem voru mín 9unda og tíunda mark í sumar, sem er bara djöfull gott að mínu mati, stefnan sett núna að ná sem næst 15 mörkum.

Enski boltinn byrjaði vel, Roy Keane kom sá og sigraði síðustu helgi með 1-0 sigri gegn Tottenham, Poolaranir byrja betur en síðustu 4 ár með 1-2 sigri á villa, og United björguðu helginni með 0-0 stórmeistarajafntefli gegn ekki lakara liði en Reading. Arsenal mega þakka dómaranum fyrir sín 3 stig, gaf þeim víti á silfurfati á örlagastundu enda ekki annað hægt en að vorkenna þessu “efnilega” liði hans Arsene Wengers.

Skellti mér á Valur - FH í undanúrslitum bikarsins í gær, get ekki sagt að ég hafi fengið e-ð fyrir þennan 1200 kall, steindauður leikur, alveg hrikalega ómerkilegur sem endaði með 1-0 sigri fh á síðustu mínútu leiksins.

Held að bloggið í vetur muni vera meira enska boltans tengt en nokkru sinni fyrr því ég held að veturinn gæti orðið góður okkur liverpool mönnum, þó ætla ég að spá 1-1 jafntefli gegn Toulesse á útivelli í forkeppni meistaradeildarinnar á morgun, Peter Crouch setur markið, og við fáum hörkuspennandi leik í seinni umferðinni á anfield.

Í kvöld er leikur Tottenham og Everton, ég þori ekki að veðja á þau úrslit, enda geta bæði lið verið topplið á góðum degi en svo arfa slök þann næsta, spái þó 2-1 fyrir Tottenham, berbatov og robbie keane með mörkin.

Spá mín um lokastöðu úrvalsdeildarinnar verður svo birt á morgun.

Þangað til næst

Sælan 28. 12ú7í 2007

Fært af bjossi undir Óflokkað. 3 ummæli

Í gær vorum við mættir kl 5 við Keflavíkurvöll til að leggja í hann í Laugardalinn til að spila á móti Þrótt í 16-liða úrslitum bikarkeppnarinnar. Fórum með stórri rútu eins og alltaf, og er alltaf geðveik stemning að fara í útileiki með m.fl, er svo mikill klassi yfir öllu, stór rúta, ávextir og íþróttadrykkur, og þegar komið er í búningsklefana er búið að hengja upp og brjóta búningana saman og merkja okkur svæði, svo við þurfum lítið annað að gera en að klæða okkur í búningana, nánast gert það meira segja fyrir okkur, algjör snilld.

En alla vega þegar við vorum kominn í laugardalinn þá var fundurinn haldinn úti á velli, sátum við þarna í blíðunni á meðan kristján kom með barátturæðuna og tilkynnti byrjunarliðið, ég var svo sem ekkert að fylgjast neitt sérstaklega með þegar hann var að tilkynna liðið, enda bjóst fastlega við að vera á mínum stað á bekknum, og brá heldur betur þegar hann tilkynnti mig frammi með Tóta. Held ég hafi aldrei orðið eins stressaður á jafn fljótum tíma, um leið og hann nefndi nafnið mitt fór allt á fullt, og það er yfirleitt fyrir góðu, ég verð yfirleitt mjög stressaður þegar e-ð gott gerist, eins og t.d fyrir stóra Liverpool leiki, ef ég verð ekki stressaður þá vinna þeir ekki, það er bara þannig.

En þetta gat ekki byrjað betur, mark eftir 13.mínútur í fyrsta leik mínum fyrir Keflavík, þótt þetta hafi kannski ekki verið það fallegasta þá var þetta alla vega mark, og ekki með höndinni, vill taka það fram, þetta var gullmjöðmin eða lærið, er ekki viss, en svo var ég bara tekinn út af í hálfleik, eins og Stjáni orðaði það svo skemmtilega í viðtali við gras.is, “Þú gerir tvær breytingar á liðinu, tekur Ómar og Guðmund út og setur Bjarka í markið og Sigurbjörn Hafþórsson inná? “

“Bjarki þar að fá leik ef hann þyrfti skyndilega að spila sem væri ekkert ólíklegt.
Með sóknina þá var Sigurbjörn settur inn til að skora sigurmarkið svo við gætum tekið hann svo aftur útaf í seinnihálfleik.”

Enda erfiður leikur hjá okkur í kvöld hjá 2.fl, leikur við Hauka, 3 leikurinn á 4 dögum hjá mér. Djöfull skemmtileg staðreynd að ég hafði skorað jafn mörg mörk með KS í 4 ár eins og ég gerði á 13 mínútum fyrir Keflavík, en svona getur þetta verið, heppnin er stundum með manni og stundum ekki, þetta féll fyrir mér í gær. Mamma og Pabbi eru á leiðinni suður og verða hjá mér í 8 daga, svo það væri gaman að ná að skora aftur í kvöld, en enþá skemmtilegra hefði verið ef þau hefðu komið degi fyrr og séð leikinn í gær. Vonandi ég hafi bara náð að tryggja mér í hópinn gegn KR á Sunnudaginn. Vill þakka öll símtölin og smsin sem ég fékk í gær, vona bara að þetta endurtaki sig fljótlega, læt fylgja nokkrar myndir með sem ég fékk sendar frá fyrrum framkvæmdastjóranum.

Kv. Bjössi

Markið mark.jpg

mark-vs-%c3%berottur.jpg

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Sjónvarp Útvarp Fréttablaðið
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning