Blommi

Gera grín þegar það á við, eða oftar.

Veiðiferðin

blommi 2. febrúar 2012

Tvær mannætur voru á rölti, einn faðir og einn sonur.  Þeir feðgar fengu það verkefni að safna saman mat handa þorpinu sínu.  Þeir ráfuðu um frumskóginn og leið ekki á löngu þangað til að aldraður Norðfirðingur kom í augsýn.

Sjáðu, þarna er einn! hrópaði sonurinn.

Nei, sagði faðirinn, það er varla nóg kjöt þarna til að fylla magann á hundunum.

Stuttu síðar kom í áttina til þeirra akfeitur Reyðfirðingur og þá byrjaði sonurinn að titra af ánægju.  En hvað með þennan ? spurði hann.

Faðirinn hristi hausinn aftur og sagði:- Nei, ekki þessi heldur.  Við myndum öll dyja úr hjartaáfalli vegna allrar fitunnar sem er á þessum.  Við verðum að halda áfram.

Klukkustund síðar sáu feðgarnir gullfallega konu frá Eskifirði í fjarska.  Sonurinn var orðinn órólegri en nokku sinni fyrr og sagði:- Það er ekkert að þessari.  Étum hana.

Nei, sagði faðirinn enn einu sinni, við étum ekki þessa.

Hvers vegna ekki ?  spurði sonurinn.

Faðirinn svaraði skjótt:- Vegna þess að við ætlum að taka þessa með okkur á lífi í þorpið og éta mömmu þína.

Rita ummæli

Þú verður að vera skráður inn til að rita ummæli.

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Sjónvarp Útvarp Fréttablaðið
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning