Monkey business !!!
blommi 10. febrúar 2012
Sveitarfélagið Norðurþing íhugar nú að kaupa jörðina Grímsstaði á Fjöllum með láni frá Huang Nubo og leigja honum hana síðan.
Hvað er eiginlega í gangi þarna á Norðurlandi. Fyrst eru það Vaðlaheiðargöngin sem verið er að smygla inn, fram fyrir aðrar vegaframkvæmdir með undarlegum útreikningum um sjálfbærni og nú þetta mál með Grímsstaði.
Mér vitanlega var búið að hafna sölunni til Nubo en hvað er þetta eiginlega. Er verið að smygla einhverju framhjá núna með að taka peninga úr einum vasa Kínverjans og troða landareigninni niður í hinn vasa hans.

