TIL ÞEIRRA SEM HAFA EKKI SKILIÐ VERKEFNIÐ.

Ung kona var að endurnýja ökuskírteinið sitt á lögreglustöðinni og þjónustufulltrúinn spyr hana um starfsheiti.

Konan hikar, óviss um hvernig hún eigi að skilgreina starfsheiti sitt.

Þjónustufulltrúinn spyr aftur: “Ertu með starfsheiti eða ertu bara……? “ Auðvitað hefi ég starf segir konan þá, ég er móðir”.

Við skráum nú það ekki sem starfsheiti en ég get svo sem sett, “húsmóðir”. Sagði þjónustufulltrúinn og það vottaði fyrir samúð í röddinni.

Nokkrum vikum seinna var sama kona í svipaðri aðstöðu en núna á bæjarskrifstofunni. Fulltrúin , greinilega “career”kona spyr um starfsheiti.

Eitthvað fékk ungu konuna til að svara snögg að bragði, “Ég er verkefnastjóri á sviði uppeldis- og mannlegra samskipta.”

Fulltrúinn hikaði eins og hún hefði ekki heyrt titilinn og konan endurtók hægt og rólega.

Fulltrúinn skrifaði titilinn og einhvernvegin breyttist viðmótið á örstundu.

“Mætti ég spyrja þig hvað þú gerir í starfi þínu”, spurði fulltrúinn greinilega með nýjum áhuga.

Yfirveguð svaraði unga konan að bragði; “Ég stunda langtíma rannsóknir á mínu sviði(hvaða móðir gerir það ekki ?) bæði innan rannsóknarstofunnar og á vettvangi, (venjulega kallað bæði inni og úti): Ég hef þegar fengið fjórar viðurkenningar fyrir störf mín (s.s fjórar dætur).

Þetta starf er eitt af þeim mest krefjandi á mannúðarsviði (er einhver ósammála?).

Vinnudagurinn hjá mér fer aldrei niður fyrir 14 tíma (24 tímar nær því).

Starfið mitt er mun meira krefjandi en flest störf á sviði viðskipta en launin eru ánægja meira en fjárhagsleg.

Einhver ný virðing var í rödd fulltrúans, hún kláraði að fylla út skjalið og stóð svo upp og fylgdi ungu konunni að dyrunum, opnaði þær fyrir hana og kvaddi.

Þegar konan ók inn innkeyrsluna heima hjá sér uppveðruð af þessum nýja heillandi “career” fögnuðu henni við heimkomuna þrír aðstoðarmenn verkefnisins þ.e. á aldrinum 13, 7 og 3ja ára. Uppi á efri hæðinni heyrðist í nýjasta tilraunamódelinu ( 6 mánaða) í verkefninu.

Henni leið eins og hún hefði skorað stórt í skriffinnskuveldi kerfisins og var nú skráð innan kerfisins mun virðulegri en “bara ein mamman enn”.

Móðurhlutverkið !!!! Þvílíkur ferill og sérstaklega þegar svona virðulegur titill er komin á skrifstofuhurðina ( útidyrnar).

 

Hér vinnur:

 

Anna Guðrún Grétarsdóttir

Verkefnastjóri á sviði uppeldis og mannlegra samskipta. 

 

*****

Eigið góðan dag í dag :)

 

 

FJÓRAR GÓÐAR DÆMISÖGUR FYRIR SÁLINA :)

Ég má til með að deila með ykkur þessari frábæru grein , góð lesning fyrir þá sem lifa í svartnætti og sjá ekkert nema neikvæðni framundan.

Endilega lesið dæmisögurnar fjórar, þær eru allar góðar fyrir sálina .

Verði ykkur að góðu .

Hér kemur svo lesningin.  1233377

****

Eigið góðan dag í dag :)

SÍÐASASTA MEÐLAGSGREIÐSLAN.

“Binna mín”, segir Gúndi gasalegi við dóttur sína á 18 ára afmælinu,

“taktu þessa ávísun, færðu mömmu þinni hana og segðu henni að þetta sé síðasta meðlagsgreiðslan sem hún á nokkurn tíma eftir að fá frá mér og sjáðu svipinn á henni ! “

Binna gerir það og segir við mömmui sína: “Mamma! Pabbi sagði að ég ætti að láta þig fá þessa ávísun og sjá svipinn á þér þegar ég segði þér að þetta væri síðasta meðlagsgreiðslan sem þú fengir frá honum.”

“Sagði hann það já,” segir Badda bleika, “ viltu þá ekki fara og sjá svipinn á honum þegar þú getur sagt honum að hann sé ekki pabbi þinn…..”

****

Eigið góðan dag í dag :)

BJÓR EÐA ?.

Gúndi gasalegi og Badda bleika voru að verlsa þegar Gúndi teygir sig í bjórkassa og leggur hann í körfuna.

“Hvað heldur þú að þú sért að gera spyr Badda.”

“Þetta er á tilboði, 24 baukar á 3600 kall.” Svarar Gúndi.

“Láttu kassann aftur á sinn stað, við höfum als ekki efni á þessu, segir Badda með þjósti og þau halda áfram að versla.

Nokkru síðar tekur Badda upp andlitskrem á 7200 kr. og setur í körfuna.

“Hvað heldur þú að þú sért að gera ?” Spyr Gúndi.

“Þetta er uppáhalds andlitskremið mitt. Það gerir mig svo fallega.” Svarar Badda.

“Það gera nú líka 24 baukar af bjór og þeir kosta helmingi minna!”

Samkvæmt upl. frá bæklunardeild Landsspítala Háskólasjúkrahúss,

Er Gundi allur að koma til.

*****

Eigið góðan dag í dag :)

SNILLDAR PICKUPPLÍNA.

Gundi gasalegi ungur og sjálfsöruggur kemur inn á krá og sest við barinn, við hliðina á mjög fallegri ungri konu.

Hann lítur snöggt á hana og síðan á úrið sitt.
Konan sem var engin önnur en Badda bleika tekur eftir þessu og spyr: “Er kærastan sein?”
“Nei,” svarar Gúndi, “ég keypti þetta snilldar úr um daginn og ég var að prófa það.”
“Og hvað er svona mikil snilld við þetta úr?” spyr Badda forvitin.
“Það notar alfa bylgjur til að senda mér hugskeyti,” útskýrir Gúndi.
“Og hvað er það að segja þér núna?”, spyr Badda.
“Nú, það heldur því fram að þú sért ekki í neinum nærbuxum…”.
Badda flissar og segir: “Jæja já, en það hlýtur að vera bilað, því ég er í nærbuxum!”
“Æi — úrið hlýtur að hafa flýtt sér um klukkutíma !!”

****

Eigið góðan dag í dag :)

Í BURTU ALLA HELGINA.

Gúndi gasalegi  er búinn að vinna seinnipart föstudags.
En í stað þess að fara heim, fer hann í skotveiði með félögum sínum og er í burtu alla helgina.
Þegar Gúndi loksins kemur heim seint á sunnudagskvöldi, búinn að taka vel áðí og eyða meirihlutanum af vikulaununum, tekur mjög reið eiginkona á móti honum í forstofunni.

Badda bleika skammaði hann rækilega og spyr síðan: “Hvernig fyndist þér, ef ég léti mig bara hverfa og þú sæir mig ekki í tvo til þrjá daga ?

“Mér væri sko alveg sama , svaraði Gúndi í hroka tón”

Nú mánudagurinn kom og leið án þess að hann sæi Böddu sína og þriðjudagur og miðvikudagur.

Allt við það sama,  ekki sá hann Böddu sína.

Það var ekki fyrr en á fimmtudag að bólgan fór að hjaðna og hann sá örlítið út um vinstra augað.

****

Eigið góðan dag í dag :)

ÓVÆNT HEIMKOMA.

Kvöld eitt kom Badda bleika af námskeiði utan af landi – fyrr en ætlað var – og opnaði svefnherbergisdyrnar hljóðlega.
Undan sænginni blöstu við henni fjórir fætur ….. í stað tveggja!
Henni sortnaði fyrir augum og varð viti sínu fjær.

Badda greip hornaboltakylfu og gjörsamlega sleppti sér - lamdi ótal högg í sængina með kylfunni … og það af öllu afli.

Að því búnu, stormaði hún í átt að eldhúsinu – til að róa sig.
Situr þar þá ekki elskulegur eiginmaður hennar Gúndi gasalegi, niðursokkinn í tímarit.
Gúndi lítur upp og segir: “Sæl elskan, … foreldrar þínir eru í heimsókn og ég bauð þeim að hvíla sig í hjónarúminu okkar.

Ertu búin að heilsa þeim”?!!!

****

Eigið góðan dag í dag :)

MÁLUNUM REDDAÐ SNARLEGA .

Gúndi gasalegi var staddur ásamt þrem kunningjum, þeim Tomma túttu, Villa vává og Alla ógurlega, á barnum þegar sími sem lá á borðinu hjá þeim hringdi.
Við 3 hringingu teygði Gúndi sig í símann.
Uppspennt konurödd sagði háum róm fasteignasalinn hringdi og spurði hvað við vildum varðandi bústaðinn á Þingvöllum.
Keyptu hann elskan sagði Gúndi
Konann : Hvað verður þá um pelsinn sem þú ætlaðir að gefa mér í tilefni dagsins ?
Taktu hann líka elskan sagði Gúndi .
Hvað um Kanaríferðina?
Nú hvað,,, Auðvitað förum við í hana svarar Gúndi að bragði.
Konan kvaddi glöð í bragði og Gúndi lagði símann á borðið.
Kunningjarnir sátu agndofa yfir þessari auðlegð og litu spyrjandi á Gúnda.
Eftir andartaks þögn sagði Gúndi í hálfum hljóðum hver skyldi eiginlega eiga þennan anskotans síma?
****
Eigið góðan dag í dag :)

BESTA KYNLÍFIÐ ?

Gúndi gasalegi og Tommi tútta vinur hans sátu og voru að diskutera hvað þeir hefðu nú lært að kynnum sínum við konur og þetta var útkoman hjá þeim.
Aldrei stunda kynlíf með lögreglukonu, eina sem hún segir er bara “STOPP”…..
Aldrei með afgreiðslukonu, eina sem hún segir er “GJÖRÐU SVO VEL og viltu poka”……
Aldrei með kennslukonu, hún bendir á þig með vísifingri stanslaust eins og hún sé að leiðrétta þig…….
Enn leikskólakennslukonan er best - vegna þess að hún segir “ohhhhhh hvað þú ert nú duglegur…….. nú skulum við gera þetta einu sinni enn !!
****
Eigið góðan dag í dag :)

 

EFNAHAGSMÁLIN Í HNOTSKURN.

Efnahagsmálin í hnotskurn!
Við erum stödd á Hótel Lukku.

Maður greiðir hótelstjóranum 10 þúsund (tíkall) fyrir sína gistingu. Hótelstjórinn setur tíkallinn í vindlakassa og bregður sér frá.

Nærstaddur náungi sá þetta og stal tíkallinum og hljóp út!
Fór svo með tíkallinn til slátrarans og borgaði þar sína skuld.
Slátrarinn fór með tíkallinn til hnífakaupmannsins og borgaði þar sína skuld.
Hnífakaupmaðurinn fór í vændishúsið og borgaði fyrir dráttinn í gær, Tikall.

Vændiskonan fór í dótabúðina og gerði upp sína skuld.

Karlinn í dótabúðinni fór á Hótel Lukku , hitti eiginkonu hótelstjórans, og borgaði henni gamla skuld með tíkallinum.

Hún setti tíkallinn í gamla vindlakassann.

Um kvöldið kíkti hótelstjórinn í vindlakassann og sá að ekkert vantaði .

Hann var alsæll með afrakstur dagsins!

Og það voru fleiri .

****

Eigið góðan dag í dag :)

HAGSTÆÐUR VÖRUSKIPTAJÖFNUÐUR?

Badda níska kemur til Gúnda bakara og ætlar að versla sér rjómatertu, hún spyr hvað tertan kosti ?

Hún kostar 2000 kr. segir Gúndi.

Áttu ekki einhverja ódýrari spyr Badda níska?

Gúndi bakari segist selja henni tertuna á 1500 ef hann megi þukla á öðru brjóstinu á henni…

Badda níska jánkar og þegar því er lokið þá segist Gúndi selja henni kökuna á 1000 ef hann megi þukla á hinu brjóstinu líka.

Badda lítur til dyranna og segir já ok…

En núna segist Gúndi bakari ætla að selja henni tertuna á fimm hundruð kall ef hann megi láta vininn rétt aðeins innfyrir…

Badda níska segir að hann verði þá að draga fyrir og læsa og láttu hann bara fara alveg inn.. ég fæ bara vínarbrauð fyrir afganginn.

****

Eigið góðan dag í dag :)

BETRUN EÐA EKKI ?


Gundi okkar gasalegi og eitt af hans vandamálum.

Kæru vinir, mig langar að deila með ykkur reynslusögu um akstur og áfengi.

Allt of algengt er að fólk komist í kast við laganna verði á leið heim eftir að hafa hitt félagana yfir bjór.
Til að sýna betrun og gott fordæmi hef ég tekið mig á í þessum málum.

Á föstudaginn var hitti ég félagana á öldurhúsi og fékk mér helst til mikið neðan í því.

Nokkra bjóra, eitthvað af vodka og rauðvínsglas, sem var næstum ódrekkandi.

Í lok kvöldsins gerði ég nokkuð sem ég hef aldrei gert áður.

Ég tók strætó heim.


Ég komst klakklaust til míns heima, sem kom mér verulega á óvart því ég hef aldrei ekið strætisvagni áður og man í raun ekkert hvar ég fann þennan strætisvagn.

*****

Eigið góðan dag í dag :)

SVO, SVO SATT !!!

 

Væri ekki gott ef fólk hefði þetta á bak við eyrun?

 

“Það þarf meiri kjark til að segja satt en ljúga,
sjálfstraust til að efast, þegar aðrir trúa,
djörfung til að mæla gegn múgsins boðun,
manndóm til að hafa eigin skoðun.”  

**** 

Eigið góðan dag í dag :)

SUMT BER AÐ ÞAKKA EN ANNAÐ EKKI.

Álfur litli fékk að fara í berjamó með mömmu og pabba og þegar heim var komið fékk hann berjaskyr með rjóma.

Honum hafði verið kennt að þakka Guði fyrir matinn og að lokinni máltíðinni spennti hann greipar og sagði:„Þakka þér Guð fyrir rjómann og skyrið.

“En berin tíndi ég sjálfur.“

***

Eigið góðan dag í dag :)

Í TILEFNI DAGSINS :)

Badda bleika og Gúndi gasalegi sátu við sjónvarpið.

Badda segir: Ég er þreytt og klukkan orðin margt, svo ég ætla inní rúm.

Hún stóð upp, fór inní eldhús og útbjó nesti fyrir börnin, losaði poppkornsskálina, tók kjöt úr frystinum fyrir morgundaginn, athugaði hvað væri eftir af morgunkorni í pakkanum, fyllti á sykurkarið, setti sykur og skeiðar á borðið og gerði kaffikönnuna tilbúna.

Svo setti hún föt í þurkarann, setti þvottavélina af stað, straujaði skyrtu eiginmannsins festi á hana tölu.

Tók saman dagblöðin sem lágu á gólfinu, safnaði saman leikföngunum sem lágu á borðinu og setti símakrána niður í skúffu, vökvaði blómin, tók úr uppþvottavélinni og hengdi síðan upp handklæðin svo þau yrðu þurr fyrir morgundaginn.

Hún stoppaði við skrifborðið og skrifaði miða fyrir skólann, setti pening á borðið fyrir börnin og tók svo upp bók sem var undir stólnum.

Hún skrifaði afmæliskort til vinkonu sinnar og setti frímerki á það.

Svo skrifaði hún minnismiða og lagði við hliðina á dagbókinni sinni.

Síðan fór hún inn á baðherbergi, þvoði sér, setti á sig næturkrem og burstaði tennurnar og greiddi sér.

Þá hrópaði Gúndi úr stofunni, bíddu ég hélt að þú hefðir verið að fara að sofa.

Já svaraði Badda, og hellti vatni í hundadallinn, setti köttinn út og gekk úr skugga um að dyrnar væru læstar.

Loks kíkti hún á börnin, talaði við eitt þeirra sem var enn að læra.

Í svefnherberginu stillti hún svo vekjaraklukkuna , tók til föt fyrir morgundaginn og tók loks rúmteppið af rúminu.

Á sama tíma slökkti Gúndi á sjónvarpinu og sagði við sjálfan sig, nú fer ég að sofa og það gerði hann.

Þessi frásögn er til heiðurs öllum konum.

Til hamingju með daginn konur.

P.S. svo eru mennirnir hissa á því að konurnar sofni strax og þær sjá koddann sinn, og sumar helst áður en þær sjá koddann.

****

Eigið góðan dag í dag :)