Miðnæturhraðlestin

21. maí 2007 kl. 23.37 | 4 ummæli

Miðnæturhraðlestin

Ég frétti af því út fyrir landsteinana að mér hafi verið varpað upp á bíóskjá í Háskólabíói í ísklifurljósmyndakeppni Íslenska alpaklúbbsins. Ég sá strax fyrir mér hetjulega mynd þar sem ég hangi yfir hyldýpi en bít á jaxlinn. Svo kom hins vegar í ljós a að myndin er ekki fyrirtaks hetjuleg. Ég er norpandi í skafrenningi uppi undir fossinum, helst á svipinn eins og ég sé þarna vegna hópþrýstings eingöngu.

Þetta var samt áður en við lögðum af stað. Skömmu áður en ég áttaði mig á í miðju klifri að broddarnir á öðrum fætinum héngu laflausir… og litlu áður en snjóflóðið féll í öðru gili frá okkur, einmitt þar sem við héldum að vinir okkar væru að klifra. Ég hef sjaldan séð partí leysast jafnhratt upp í glundroða. Slökkt á öllum símum í næsta gili og engin leið að vita hvort það væri eðlilegt eða ekki. Þannig að við sigum niður í snarhasti.

Undir fossinum var snjólæna sem virtist ekkert allt of traust fyrst maður var búinn að sjá eina spýju fara. Ég fikraði mig löturhratt niður með klettaveggnum, reyndi að flýta mér án þess að fara mér að voða. Hafði í huga að ég vildi hafa öruggt tak ef þessi snjór færi líka af stað. Hugsaði samt um fátt annað en það sem maður hefur lært, að 90% þeirra sem grafast í snjóflóðum eru látnir á innan við 15 mínútum, það væri ef til vill glugginn sem ég hefði til að hjálpa vinum mínum. Skynsemin fékk þó að ráða því það versta sem maður getur gert er að bæta við vandamálið.

Innan skamms sáum við þrjár fígúrur fikra sig niður að bílunum og vissum að við gátum dregið andann léttar. Hef aldrei verið fegnari að sjá þessa stráka.

Allt þetta rifjaðist upp þegar ég sá myndina þar sem ég stend í skafrenningnum með húfuna oní augu.

16. maí 2007 kl. 23.35 | 5 ummæli

Hvurslags undarlegt þrumuveður er það þegar eldingarnar liggja láréttar á himninum og það heyrist ekki einu sinni þruma? Getur einhver fengið Sigga storm til að kommenta á þetta og útskýra þetta fyrir mér?

Geir ákaft fagnað…

13. maí 2007 kl. 21.07 | 3 ummæli

Það sem stendur upp úr eftir þessa kosninganótt sem ég fylgdist með úr fjarlægð er þessi hrifnæma mynd af Geir H. Haarde, manninum sem ætlar að halda áfram að leiða ríkisstjórnina, í faðmlögum við… sætustu stelpuna á ballinu?

Annars á Rut Úlfsmóðir afmæli í dag, til hamingju.

Ég er endalaust að útskýra nafnahefðina íslensku, af því fólk er svo ofandottið yfir 16 stafa nafninu mínu. Það virkar akkúrat öfugt á arabísku, þar kenna stoltir foreldrar sig gjarnan við elsta strákinn. Þannig að Rut, þú getur kallað þig Rut Úm Úlfur og Stebbi getur verið Stefán Abú Úlfur.

Merkisdagur

12. maí 2007 kl. 8.51 | 1 ummæli

Kjördagur… nú væri gaman að vera á Íslandi. Nú væri gaman að vinna í sjónvarpi, - alltaf gaman að tarnavinnu.

Í dag ræðst framtíð íslenskra stjórnmála. En það er ekki þess vegna sem þetta er merkisdagur. Ólöf og Kristín eiga 27 ára tvíburaafmæli í dag. Til hamingju með afmælið, og vonandi verða kosningaúrslitin ykkur til hamingju og yndisauka.

Og Danmörk tapaði líka…

11. maí 2007 kl. 14.27 | Rita ummæli

… þannig að það er augljóst að það eru einhver brögð í tafli!

- eða þá að Austur-Evrópubúar eru bara miklu fleiri og miklu áhugasamari…

Valentine lost

10. maí 2007 kl. 23.41 | 1 ummæli

Rétt í þessu var Eiríkur Hauksson að flytja keppnislag Íslendinga. Verst að ég er í annarri heimsálfu þar sem söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva er ekki prime time sjónvarpsefni…

Það hefði nefnilega getað verið skemmtilegur þjóðarígur í kringum þetta.

Verst að Eiríkur á líklega ekki eftir að komast áfram. Hins vegar spái ég Danmörku einu af efstu fimm sætunum í lokakeppninni. Þetta er mín spá, án þess að ég hafi heyrt neitt af hinum lögunum. Ég er síðasta manneskjan til að horfa á júróvisjón mér til ánægju og yndisauka en ég hef samt undarlega oft grísað á rétt úrslit…

Vorboðinn

5. maí 2007 kl. 20.27 | 2 ummæli

Í öðru hverju bréfi sem ég fæ að heiman segja vinir og ættingjar mér frá því að þeir hafi séð lóu eða tjald eða hrossagauk. Í hvert skipti prísa ég mig sæla að koma frá landi þar sem koma farfuglanna fellur sjaldnast í skuggann af hroðanum.

Hvernig er það annars með þessar alþingiskosningar, snýst þetta ekkert um málefni yfirhöfuð? Bara hver fær hvaða ráðherrastól? Ótrúlegt að einu málefnin skuli vera smáskandall vegna ríkisborgararéttar og Baugsmálið sem fólk grætur af leiðindum yfir heima í stofu.

Ásýndin mjúka

4. maí 2007 kl. 0.34 | 4 ummæli

Hér er enginn hörgull á herramönnum. Alltaf einhver til í að halda opnum dyrum og bjóða dömunum fyrst. Mér eru stöðugt færð ný blóm og gjafirnar hrannast upp. Landakort, orðabækur og fleira til.

Síðast í gær var mér gefinn heill fiskur úr Tígris, reyktur og grillaður, og hefðbundið tígullaga pítubrauð af rauða. Dugði átta manns í mat, ágætis kvöldstund úti undir pálmatrjánum.

Svo lærði ég líka grunnatriðin í döðlurækt í gær, hvaða pálmar eru kvenkyns og hverjir eru karlkyns og hvernig maður kynnir þá hvorn fyrir öðrum til þess að úr verði daðla. Nú þarf ég bara að finna 30 metra langan stiga…

Ugens største gris

27. apríl 2007 kl. 20.04 | 1 ummæli

Þegar ég kem heim héðan, þá verð ég líklega mellufær á arabísku, hugsanlega á ítölsku líka og get slegið um mig með nokkrum frösum á portúgölsku. Og ég verð flugfær í dönsku.

Danirnir eru nánast búnir að ættleiða mig, passa vel upp á að Íslendingurinn eini verði ekki Íslendingurinn einmana. Þeir bjóða mér í allra handa kaffisamsæti og bjórbrugg og hygge-kvöld. Það nýjasta er samstillt heilsuátak í danska liðinu, og íslenska liðið sleppur ekkert undan því. Ég var skráð í fimm kílómetra morgunhlaup í morgun (með semi-samþykki af minni hálfu) undir nafninu Herdis von Iceland - af því að Sigurgrimsdottir virðist standa eitthvað í fólki.

Og nú skulu allir í vægtvagternes léttiprógramm að dönskum sið. Við vorum öll skikkuð á vigtina í gærkvöldi og fært samviskusamlega til bókar. Þessu fylgir samt ekkert eftirlit með mat eða hreyfingu, engar reglur, ekkert sem ekki má borða. Bara vikuleg vigtun á vigtarvaktinni, og sá sem minnstu tapar - eða mestu bætir á sig, er Ugens største gris næstu sjö dagana.

Skírnarveisla í tvíburahúsi

9. apríl 2007 kl. 22.41 | 5 ummæli

Fyrst og fremst: Emilía Ólöf Kristínar og Guðjónsdóttir… til hamingju með daginn. Fallegt nafn. Ólöf móðursystir hlýtur að vera brosa hringinn í dag.

Ég fékk ekki skilaboðin fyrr en ég var komin suður til Napolí um áttaleytið, ekki það að ég álasi sendiboðanum. Voru góðar kökur? Ragnheiður tvíburamóðir er rómaður bakari, efast um að hún hafi nokkru gleymt frá því í den. Man þegar við komum heim af sveitaböllum og sátum við eldhúsborðið í tvíburahúsi og mauluðum möffins og kleinur þar til Ólöf móðursystir sofnaði fram á eldhúsborðið. Prófasturinn hefur ekki lagt út af því í athöfninni?

Mér leið eins og ég væri komin aftur í gettóskólann minn í Frakklandi þegar mér var bent á internetaðstöðu þessa annars ágæta hótels í Napolí. Handsneri tölvugarminn í gang og beið eftir sambandi. Vantaði bara “this program has performed an illegal operation…” Svo opnaði ég fartölvuna uppi á herbergi og þá er þetta fullkomna þráðlausa samband… af hverju sagði manngarmurinn mér það ekki strax?


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning