dodda 14. apríl 2009
Ég get ekki sofið, púff lífið er ekki alltaf auðvelt. En síðustu daga hef ég átt erfitt með að sofa, er dauð þreytt en finnst bara ef ég sofna þá mun ég ekki geta hjálpað litlu stúlkunni minni. Þetta er hrikalega erfitt og líklega það erfiðasta er að geta ekkert gert annað en að bíða. Ég hafði nú samband við huglækni um daginn og er að vona að það hjálpi en þó veit maður það sosum ekki. Veit ekki af hverju ég skrifa þetta hérna en líklega bara til að létta á mér þessa stundina þar sem það eru ekki margir vakandi á þessum tíma og fólk skilur ekki hvað maður er að ganga í gegnum þó það reyni. Ætla að skella hérna inn bréfinu sem ég sendi á huglækni.
Sæll
Ég hef nú haft samband við þig áður útaf henni Selmu Björk, litlu stelpunni minni. Núna þarf ég hjálp þó ég viti ekkert hvort þú getur hjálpað nokkuð en ég ætla þó að reyna á þetta, það allavega skaðar ekki að prufa. En hún er flogaveik litla stúlkan og er verið að reyna að finna rétt lyf fyrir hana. En það sem mér liggur mest á hjarta núna er að hún fékk flog fyrir um 3 vikum síðan og það var það skelfilegasta sem ég hef upplifað, og er ég bara komin með tár í augun við að reyna að segja frá þessu. En hún sefur sem sagt inni hjá okkur, fór að rumska þessa nótt og ég var búin að sussa á hana og allt virtist vera í lagi. Snögglega rak hún upp alveg svakalegt öskur og það ekkert eitt. Satt að segja þá hef ég aldrei á ævinni heyrt nokkurn öskra svona hræðilega, það var eins og það væri hreinlega verið að drepa hana fyrir framan mig.Ég tók hana í fangið og reyndi sem ég gat að hugga hana en ekkert gekk hún bara öskraði af lífs og sálar kröftum, endaði með að maðurinn minn hringdi á lækni og þó aðallega líklega til að reyna að róa okkur niður því við vorum logandi hrædd, 10 mínútum seinna að ég held þá missir hún meðvitund og fær flog.. ég segi 10 mínútur þótt ég viti ekkert um það því þetta virtist bókstaflega vera heil eilífð. En við gáfum henni lyf sem við erum með heima og loks um 3 tímum seinna var allt orðið rólegt og við “sváfum” það sem eftir var nætur. Hún talaði nánast ekkert í 4 daga eftir þetta. En svo kom það eitt kvöldið er ég ætlaði að fara að lesa fyrir hana að hún segist hafa séð draug, ég ræddi við hana og komumst svo að samkomulagi að hann væri í útlöndum það sem krókódílarnir væru. Svo liðu þessar 3 vikur og við hjónin mikið búin að velta fyrir okkur hvort þetta hafi verið eitthvað sem hún sá eða eitthvað sem fylgdi floginu. Endaði með þó að við fórum í annað herbergi því hún neitaði að vera þarna inni. En svo núna síðustu nótt vakna ég um 1:30 og finn að hún sefur órólega og andar hratt og bíð bara því ég er viss um að hún sé að fá flog. um kl 4 þá tek ég hana uppí til mín og þar er hún svolitla stund svo snýr hún sér að manninum mínum sem er líka vaknaður og öskrar upp aftur alveg skelfilega hrædd. öskrar í smá tíma og maðurinn minn hringir aftur í lækni og kveikir ljós. Tekst mér eftir smá stund að róa hana niður og fer með hana inn í stofu. Hún fær þó ekkert flog en heldur dauða haldi í mig í rúmlega 1 klukkutíma. Svo segir hún aftur að hún hafi séð draug. Ég spyr út í þetta og hvar hann var , hún svarar að hann hafi verið við hliðina á mér. En hún sá pabba sinn. En þetta bara gengur svo yfir og hún vill svo bara fá að borða og horfa á teiknimynd. En svo gerist það sama aftur í kvöld að hún fer með systur sinni inn á klósett og æðir út öskrandi og ég tek hana strax í fangið og þar er hún allt kvöldið. Sefur núna í sófanum og neitar að vera annarstaðar. En ég bý í kjallara íbúð og það er stigi fyrir ofan baðherbergið og heyrist hljóð þegar er gengið um á hæðunum fyrir ofan. En hún er hrædd við allt. Veit ekki hvað ég get sagt meira um þetta. En endilega hafðu samband við mig.
Kveðja
Bara svakalegt hvað er lagt á lítinn kropp sem skilur í raun ekki hvað er í gangi. Hún man þetta allt og segir stundum við mig þegar hún er að fara að sofa” mamma ég er ekkert hrædd” púff litla skinnið er ekki hrædd en ég er að springa úr stressi og kvíðir fyrir hverju einasta kvöldi. En núna sefur hún í sófanum því hún vill als ekki fara inn í herbergi og þegar ég loks kem mér að fara í bólið þá tek ég hana og legg hana í rúmið hennar Silju þar sem ég sef með henni því ég þori ekki að vera lengra frá henni.
En ég ætla að láta þetta duga íbili þó svo að ég vilji skrifa um þetta mun meira.
kv…..
Fært undir Hvað er um að vera á skagf-braut | 1 ummæli »
dodda 8. desember 2008
Góðan dag góðir hálsar, minn er ekkert í góðu standi frekar en á við um aðra hálsa hérna á þessum bæ. Já allir með kvef á hálsbólgu jaaa nema kallinn, hann er sé sa eini sem hefur sloppið við þetta. En ég hef ekki verið að láta þetta stoppa mig neitt og er buin að setja allt jólaskraut upp hérna hjá mér nema jólatréð. en ætli ég taki það ekki upp um 20 des kemur bara í ljós hvað ég næ að bíða lengi með að taka það ekki upp úr kassanum. annars ekki mikið að frétta hérna úr kjallaranum okkar, veðrið er eins og það er annað hvort -eða + á mælinum, og um daginn þegar skaust út að hita bílinn fyrir krakkana þá hélt ég hreinlega að ég myndi frjósa föst í dyrunum, enda sýndi mælirinn -13 takk fyrir, daginn eftir var hann nú komin niður í -2 og daginn þará eftir var komið í plúss aftur.. já og núna þá bara er þessi fína jólasnjókoma á Sauðárkrók, bara fallegt og gott veður en maður húkir inni hálf slappur og krakkarnir líka.
En svona áður en ég hætti þessu þá á hún systir mín afmæli í dag
Til hamingju með daginn
Fært undir Hvað er um að vera á skagf-braut | 1 ummæli »
dodda 29. nóvember 2008
Jæja duglega konan ákvað í skyndi að hafa börnin út öllu þrjú.. já og það var stór hrúga á gólfinu þegar ég var búin að taka saman úti föt á liðið.Já ég fékk smá aðsvif áður en ég fór að gramsa í hrúgunni og finna hver átti hvað og klæða það yngsta og hjálpa miðbarninu í þetta elsta gat þó bjargað sér guði sé lof, En þetta tók nú bara um 25 mínútur. Þá var þessum grísum pakkað á snjóðotur (sko þessum tveimur) og við röltum af stað á torgið. Þrömmuðum við í snjó og roki og 5 stiga frosti, gekk það þó bara nokkuð vel og áður en við vissum af vorum við mætt ásamt litlum part af Skagfirðingum. Já ekki allir jafn duglegir og ég
. Þarna var sungið og haldið ræðu í alveg temmilega langan tíma, svo var kveikt á þessu bara nokkuð flotta jólatré og auðvita komu jólasveinarnir úr fjallinu já eða Nöfunum. Jebb og svo var þetta bara búið og við blöbbuðum heim aftur eins og hálf frosnir spýtukallar. Svo bara var haft næs þegar við komum heim og ég poppaði handa liðinu og það var svo farið að fíflast í mínu bóli og voða gaman.. En jamm Varðandi borgina þá bara var mikið verslað og búðirnar þræddar ein af annarri, svo var farið á mjólkurfyllerí voða næsað bara
En jæja kallinn kominn heim svo ég verð að fara að pína hann ( þá bara fá hann til að príla á loftið í bílskúrnum hjá tengdó að ná í jólaskrautið okkar, ekki mikið geymsluplássið svo við fengum að geyma það hjá þeim.
En hafið það nú gott yfir helgina
Fært undir Hvað er um að vera á skagf-braut | Engin ummæli »
dodda 27. nóvember 2008
jamm og jæja. mikið að gera hjá manni núna og kallinn aldrei heima. En ég stakk þó af suður um daginn og skildi kallinn eftir með krakkana, þetta var alveg makalaust hressandi. Ég fór með Sigurjóni og Karólínu (mumu) suður. Fengur leigða bara íbúð þar sem við gátum teygt vel úr okkur og hagað okkur samkvæmt því ánn þess að verða nokkrum manni til skammar.. þvílíkur léttir sem það var. En fyrst daginn þá brunuðum við í bónusbúð og keyptum mat og svo lá leið okkar í kringluna. Þar þræddum við búðirnar fram og aftur og sumar búðir voru það vinsælar að það var farið í þær oftar en einu sinni þó ekki öllum til gleðis en ég var þó glöð sem er auðvita bara fyrir öllu.En ég skrapp í ónefnda búð sem ég hef svona lagt í vana minn að versla mér föt í og verið mjög ánægð með það, fatað krakkana líka, Ennn nei ekki í þetta skipti, nei ég mældi búðina á alla kanta og hún er líklega um 200fm. En ég fann ekkert sem passaði á mig og var farin að hafa áhyggjur að ég væri bara þegar orðin offitu sjúklingur.. lét sem ég sæi ekki númerin sem voru allt of stór. En svo endaði ég þó á því að kaupa mér buxur og blússu með aðstoð frá afgreiðslukonu í búðinni, ó já svo þessi svaka ferð endaði með að ég labbaði út voða ánægð með minn poka og hugsaði að ég væri bara ekkert of feit bara of stutt. En svona í alvöru þá er ég víst í mjög vinsælli stærð og þess vegna var ekki mjög mikið úrval í búðinni, allt fast í tollinum. Er sko ekki að plata. En eftir kringlurápið var bara dagurinn búin og við Karólína orðnar fótalausar. Svo það var brunað “heim”. Þar fórum við úr skóm og buxum og í þægilegu heimafötin, sem sagt”NÁTTFÖT”. Svo voru þau Sigurjón og Karólína svo góð við gölmu konuna “mig” og þau sáu um að elda, og fékk ég þennan líka geggjað góða kjúklingarétt. Kallast víst dorritos kjúklingur. En svo var bara gengið frá og haft það næs yfir kvöldið.
Fært undir Hvað er um að vera á skagf-braut | Engin ummæli »
dodda 13. nóvember 2008
Jæja þá er frumburðurinn orðin 9 ára úfff maður er bara farin að eldast ansi hratt.
Mynd af skvísunni.

Fyrstu jólin hennar

7 mánaða þarna

Þessi er síðan í sumar:)
En það var ekkert vesen þetta árið, það var farið með nokkrar skvísur í bio ann á Akureyri. Bara nokkuð næs það.
Fært undir Hvað er um að vera á Skaf-braut??, Hvað er um að vera á skagf-braut | 1 ummæli »
dodda 6. nóvember 2008
Jaminn eini hvað ég er ekki mjög sú duglegasta við þetta blogg. En jæja ég er ekkert að segja, enda “bara” heimavinnandi. En jamm kallinn farinn að vinna eftir 10 atvinnuleysi. Kannski ljótt að segja það er mikið svakalega er ég glöð. Þetta var fín svona fyrstu daganna að hafa hann heima en eftir það þá var hann alveg hættur að nenna nokkru og varla að færa sig á meðan ég var að skúra í kringum hann úffff. En jamm ég fór með Uppáhalds stelpurnar til tannlæknis í morgunn og á meðan ég sat þarna með Selmu inn á stofunni þá hringdi síminn.. og jeminn maður á ekki að setja hvað sem er sem hringitón hjá sér, en síminn fór að góla hjá mér ” Þóra, þóra mín áttu kaffi?? mig langar svo mikið í kaffi,Þóra áttu!!?? HA áttu kaffi??” Já það var hún Lilja mín að hringja. En tannsin gekk bara vel allar tennur í góðu lagi á þessum bæ. En svo aldrei þessu vant þá er LOGN hjá okkur í Króknum já ég er alveg gapandi hissa, ég er búin að búa hérna í eitt ár og 5 mánuði og ég bara held að þetta sér fyrsti dagurinn sem er ekki ROK. En það er LOGN alveg geggjað gott hérna. Svo ég ákvað þá úr því að ég hef ekkert að gera,, búin að vera svo geggjað dugleg í að þrífa hjá mér. tók allar hurðir og veggi og allt var þetta frekar neðarlega:) En já ég er Sem sagt fór út með Selmu og Örn og við löbbuðum í Skafó, þar versluðum við í muffinskökur og erum akkúrat núna að hamast við að baka þær.. Selma fékk sína plötu og deig í skál og er að moka í formin með skeið.. huhumm getum allavega sagt að hún er ekkert að spara og þetta verða matamiklar kökur hjá henni
. Herra typpus er að brasa bara hérna í kringum okkur og alveg sama þótt við súm að baka:) Umm já ég sem sagt kalla Örn Ægir stundum herra typpus, ekki nein ástæða þar að baki bara eitthvað sem kom,. Svona smá fréttir þá er Silja að verða 9 ára á sunnudaginn
mikil tilhlökkun þar, erfitt að velja úr hverjum á að bjóða því ekki vill ég fá allan bekkinn heim.. það er um 50+ mikið af börnum, Svo er Selma að læra stafina og gengur bara vel í leikskólanum eftir að ég setti upp límmiðakerfi fyrir hana til að hjálpa okkur báðum að takast á við þennan aðskilnaðarkvíða. Ekki að mér finnst fínt að losna smá en það er ekki auðvelt að skilja hana eftir grátandi og svo er það Örninn hann er rosa duglegur að æfa sig í að ganga, já ekki allir sem þurfa að læra að ganga með bara 8 tær, því er ekki jafnvægið í tánum?? En ekki mikið meira að frétta eins og er.
Svo má nú alveg notast við kommentin hérna þótt það sé ekki gestabók.
Fært undir Hvað er um að vera á skagf-braut | Engin ummæli »
dodda 16. október 2008
ég tel mig alveg vera í bloggstuði núna en það mun svo bara koma í ljós hvað ég mun ná langt. svo ef þetta blogg verður lengra en 7 línur þá er það gott annars ekki. En já kreppu,kreppu,kreppu tal er alveg að fara með mig, ég bara þoli ekki þetta orð. Líklega af því að ég ætla ekkert að láta þetta fara eitthvað með mig. Svo er fólk að hamstra á hinu og þessu og ég veit ekki hvað, kannski ég hamstri bara eyrnatappa því ég er alveg viss um að ég mun einhvertímann fara og kaupa þá svo þá er bara um að gera að kaupa lager af þeim. Þarf einmitt af fara að drösla mér í apótekið og byrgja mig upp af verkjalyfjum áður en Rósa frænka lætur já sig með tilheyrandi leiðindum.
Annars er ég bara búin að vera dugleg þótt ég segi sjálf. En ég Skrapp í Akureyrina til af fá úlpu á frumburðinn og fór ein með krakkana. Já mæli ekki með því að fara svona í búðaráp með þau öll.. þetta gekk þó nokkuð áfallalaust fyrir og ég fann úlpu sem henni líkaði vel við og fékk húfu líka. Ég sem sagt fékk úlpu húfu og peysu á Selmu og eina bók í stað fyrir þá sem tapaðist útum gluggann á leiðinni í Akureyrina. Og þetta kostaði minna en hefði ég splæst úlpu á hana hérna í Skafó. En ég rauk í bónus og verslaði slatta þar of ákvað svo að ná að segja HÆ við Dodda. Það var æðislega að sjá hann, líklega liðin alveg 3 ár síðan við sáumst síðast og hann býr á AK svo það er nú ekki langt að fara en bara einhverveiginn ekki gerst. En við ákváðum að halda betur sambandi hér eftir:) En svo í morgunn þá ákvað ég bara að leifa Selmu að sofa því ég var ekki komin heim fyrr en rétt um 20:30 svo það var eingin farin að sofa fyrr en um kl 22 í gærkvöldi. Dreif mig svo á fætur og undirbjó Silju því hún var á leið í próf í skólanum og klæddi ég svo Örn og Selmu í útiföt og keyrði með bílinn í viðhald eða hvað á að kalla þetta. Skruppum við svo í bakaríið bara labbandi:) Svo hittum við hana Sunnu með guttann sinn hann Rafael og við tókum þau með okkur heim og við Sunna spjölluðum og Selma lék við Rafael:) hefur svo ekki talað um annað en hvað hann vera nú mikil dúlla.
lét þetta duga Silja fer að koma heim og ég þarf að fara að gera eitthvað hérna heima við.
Fært undir Hvað er um að vera á skagf-braut | Engin ummæli »
dodda 14. október 2008
jæja það er farið að verða svo mikið myrkur úti, og peran í eina ljósinu í stofunni hjá mér þurfti endilega að fara í morgunn og peran í holinu í eina ljósinu þar hún fór í fyrradag.Ohh ég þarf greinilega að fara að kaupa ljósaperulager. En það gerðist soldið skondið, það er þannig að ég beið í eitt ár og 4 mánuði eftir að fá myndir á veggina hjá mér og við með íbúðina okkar á sölu, Stefán sagði alltaf við mig að um leið og hann myndi setja myndirnar upp þá myndum við ná að selja hana. Ekka að við erum nú ekki búin að losna við hana. En hann setti myndirnar upp á sunnudaginn daginn efir þá hringir frá fasteignasölunni og hann er með konu sem vildi fá að skoða. Ég auðvita ekkert smá happy og dró Stefán úr rúminu og í föt,, ekki að ég haf eitthvað ætlað að sýna henni hann með íbúðinni. En þessi kona hringir svo rétt fyrir klukkan tvö til að fá að vita hvenær hún má koma og ég sagði henni bara að koma kl tvö vildi bara drífa í þessu.
Hún skoðaði og ég held henni hafi litist bara fínt á hana, hún allavega sagðist vera búin að skoða nokkrar og svona ekkert voða bjartsýn að finna íbúð. En núna bara krossa fingurna að við losnum við hana,okkur bráðvantar stærri íbúð og ég er búin að vera með augastað á einni íbúð hérna.Hún er ekkert risastór en hún myndi henta okkur svo vel Svo núna bara bíða. Ekki að ég hef ekki mikið meira að skrifa um. Kom öllum mínu liði á fætur í morgunn eina og venjulega 5 daga vikunnar keyrði Silju í skólann og Selmu í leikskólann og svo brunuðum við Örn bara heim og fengum okkur morgunnmat (:=
Fært undir Hvað er um að vera á skagf-braut | Engin ummæli »
dodda 12. október 2008
Jæja
búið að vera nóg að gera í dag. Stefán minn var svo almennilegur að taka helgarfrí, sem er farið að vera eins og þegar aðrir taka páskafrí þetta gerist svo sjaldan. En það gerðist sko kraftaverk í holunni okkar(íbúðin) og ég er komin með myndir á veggina. Þessu er ég búin að bíða eftir í heilt ár, ég þurfti ekki einu sinni að tuða heldur var þetta hans hugmynd. Já þetta var sko sannkallað kraftaverk og núna er ég búin að vera að “dást” af veggjunum hjá mér. Já ég gerði “dást” því það þarf að mála hérna. En já ég gerðist svo góð mamma eftir 4 daga stríð að fá frumburðinn til að læra heima að ég tjaldaði fyrir villidýrin mín og ég sit núna hérna í algjöru frelsi eða já þannig því ég er samt búin að þurfa að urra tvisvar á þau.
En núna er ég að hugsa um að planta mér í sófann og hafa það næs eins lengi og ég get
Fært undir Hvað er um að vera á skagf-braut | Engin ummæli »