FENJASKRÍMSLIÐ

  • dodda

    Svona smávegis um mig.
    Þóra heiti ég og er 29 ára gömul búsett á Sauðárkróki.
    Ég náði mér í alveg inndislegan sveitastrák´sem ég giftist 16 júní 2007. við eigum svo þrjú auðvita æðisleg börn:)


Dagurinn í dag.

dodda 12. október 2008

Jæja
búið að vera nóg að gera í dag. Stefán minn var svo almennilegur að taka helgarfrí, sem er farið að vera eins og þegar aðrir taka páskafrí þetta gerist svo sjaldan. En það gerðist sko kraftaverk í holunni okkar(íbúðin) og ég er komin með myndir á veggina. Þessu er ég búin að bíða eftir í heilt ár, ég þurfti ekki einu sinni að tuða heldur var þetta hans hugmynd. Já þetta var sko sannkallað kraftaverk og núna er ég búin að vera að “dást” af veggjunum hjá mér. Já ég gerði “dást” því það þarf að mála hérna. En já ég gerðist svo góð mamma eftir 4 daga stríð að fá frumburðinn til að læra heima að ég tjaldaði fyrir villidýrin mín og ég sit núna hérna í algjöru frelsi eða já þannig því ég er samt búin að þurfa að urra tvisvar á þau.
En núna er ég að hugsa um að planta mér í sófann og hafa það næs eins lengi og ég get :)

Rita ummæli

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning