dodda 24. október 2008
jæja maður verður víst að skrifa eitthvað ef maður er með blogsíðu er það ekki. En hérna í Skagafirðinum hefur snjóað svolítið en ekki það mikið að ég sé búin að þurfa að moka mikið. ég er reyndar bara búin að moka tröppið hjá mér einu sinni á þessum fjórum dögum. Krakkarnir mínir og kettirnir búnir að vera hæst ánægð með þetta. Svo um daginn þegar Silja fór til Hrafnhildar vinkonu sinnar í snjóvirkisbyggingar þá gerðum við Selma og Örn ægir heilt bakarí. Já ég keyrði Silju svo fórum við bara heim og klæddum okkur í snjófatnað og skelltum okkur útí garð og þá hófst verkið. við bökuðum líklega um 20 snjókökur í öllum stærðum og gerðum, Selmu fannst nú ekki gáfulegt að mömmu sinni að þurfa að vera að setja þær eitthvað saman í marghæða kökur heldur átti ég bara að gera eina hæð og setja gras á til að skreyta hana það á bara að gera sollis. Örn bakaði nú ekki mikið. hann borðaði bara deigið sem hann var búin að sulla í
alger grallari. En sosum ekki mikið búið að gerast hérna heima
Hérna er ein mynd af Silju,Selmu og Erni

Svona smávegis um mig.
24. október 2008 kl. 15.11
hæ hæ, nú ætla ég að skrifa sem ég en ekki þessi Pirrandi, Uppáþrengjandi Hjörtína Lingmey.
ji minn hvað þið hafið verið dugleg að leika í snjónum, og það er alveg rétt hjá Selmu, ef þú ætlar að baka, bakaðu þá almennilega! humm.
hehe, þessi börn þín eru algjör krútt.
jæja, best að fara að vinna fyrst maður er í vinnunni,
bæ bæ á meðan
31. október 2008 kl. 14.55
Hæhæ, var að lesna nokkrar færslur. Vona að þið losnið við íbúðina og að KREPPAN ;P verði í rénun fljótlega svo þið getið keypt drauma íbúðina þína. Mig langaði einmitt svo að fara í greiðslumat en þá gerðist þetta og ég ákvað að vera þolinmóð og vera áfram skuldlaus i kjallaranum. Ætla að reyna að koma norður í nóv eða des. og þá væri gaman að hitta ykkur Jónu báðar. Hugsaðu málið