Verið að baka..ekki vandræði samt
dodda 6. nóvember 2008
Jaminn eini hvað ég er ekki mjög sú duglegasta við þetta blogg. En jæja ég er ekkert að segja, enda “bara” heimavinnandi. En jamm kallinn farinn að vinna eftir 10 atvinnuleysi. Kannski ljótt að segja það er mikið svakalega er ég glöð. Þetta var fín svona fyrstu daganna að hafa hann heima en eftir það þá var hann alveg hættur að nenna nokkru og varla að færa sig á meðan ég var að skúra í kringum hann úffff. En jamm ég fór með Uppáhalds stelpurnar til tannlæknis í morgunn og á meðan ég sat þarna með Selmu inn á stofunni þá hringdi síminn.. og jeminn maður á ekki að setja hvað sem er sem hringitón hjá sér, en síminn fór að góla hjá mér ” Þóra, þóra mín áttu kaffi?? mig langar svo mikið í kaffi,Þóra áttu!!?? HA áttu kaffi??” Já það var hún Lilja mín að hringja. En tannsin gekk bara vel allar tennur í góðu lagi á þessum bæ. En svo aldrei þessu vant þá er LOGN hjá okkur í Króknum já ég er alveg gapandi hissa, ég er búin að búa hérna í eitt ár og 5 mánuði og ég bara held að þetta sér fyrsti dagurinn sem er ekki ROK. En það er LOGN alveg geggjað gott hérna. Svo ég ákvað þá úr því að ég hef ekkert að gera,, búin að vera svo geggjað dugleg í að þrífa hjá mér. tók allar hurðir og veggi og allt var þetta frekar neðarlega:) En já ég er Sem sagt fór út með Selmu og Örn og við löbbuðum í Skafó, þar versluðum við í muffinskökur og erum akkúrat núna að hamast við að baka þær.. Selma fékk sína plötu og deig í skál og er að moka í formin með skeið.. huhumm getum allavega sagt að hún er ekkert að spara og þetta verða matamiklar kökur hjá henni
. Herra typpus er að brasa bara hérna í kringum okkur og alveg sama þótt við súm að baka:) Umm já ég sem sagt kalla Örn Ægir stundum herra typpus, ekki nein ástæða þar að baki bara eitthvað sem kom,. Svona smá fréttir þá er Silja að verða 9 ára á sunnudaginn
mikil tilhlökkun þar, erfitt að velja úr hverjum á að bjóða því ekki vill ég fá allan bekkinn heim.. það er um 50+ mikið af börnum, Svo er Selma að læra stafina og gengur bara vel í leikskólanum eftir að ég setti upp límmiðakerfi fyrir hana til að hjálpa okkur báðum að takast á við þennan aðskilnaðarkvíða. Ekki að mér finnst fínt að losna smá en það er ekki auðvelt að skilja hana eftir grátandi og svo er það Örninn hann er rosa duglegur að æfa sig í að ganga, já ekki allir sem þurfa að læra að ganga með bara 8 tær, því er ekki jafnvægið í tánum?? En ekki mikið meira að frétta eins og er.
Svo má nú alveg notast við kommentin hérna þótt það sé ekki gestabók.
Svona smávegis um mig.