dodda 27. nóvember 2008
jamm og jæja. mikið að gera hjá manni núna og kallinn aldrei heima. En ég stakk þó af suður um daginn og skildi kallinn eftir með krakkana, þetta var alveg makalaust hressandi. Ég fór með Sigurjóni og Karólínu (mumu) suður. Fengur leigða bara íbúð þar sem við gátum teygt vel úr okkur og hagað okkur samkvæmt því ánn þess að verða nokkrum manni til skammar.. þvílíkur léttir sem það var. En fyrst daginn þá brunuðum við í bónusbúð og keyptum mat og svo lá leið okkar í kringluna. Þar þræddum við búðirnar fram og aftur og sumar búðir voru það vinsælar að það var farið í þær oftar en einu sinni þó ekki öllum til gleðis en ég var þó glöð sem er auðvita bara fyrir öllu.En ég skrapp í ónefnda búð sem ég hef svona lagt í vana minn að versla mér föt í og verið mjög ánægð með það, fatað krakkana líka, Ennn nei ekki í þetta skipti, nei ég mældi búðina á alla kanta og hún er líklega um 200fm. En ég fann ekkert sem passaði á mig og var farin að hafa áhyggjur að ég væri bara þegar orðin offitu sjúklingur.. lét sem ég sæi ekki númerin sem voru allt of stór. En svo endaði ég þó á því að kaupa mér buxur og blússu með aðstoð frá afgreiðslukonu í búðinni, ó já svo þessi svaka ferð endaði með að ég labbaði út voða ánægð með minn poka og hugsaði að ég væri bara ekkert of feit bara of stutt. En svona í alvöru þá er ég víst í mjög vinsælli stærð og þess vegna var ekki mjög mikið úrval í búðinni, allt fast í tollinum. Er sko ekki að plata. En eftir kringlurápið var bara dagurinn búin og við Karólína orðnar fótalausar. Svo það var brunað “heim”. Þar fórum við úr skóm og buxum og í þægilegu heimafötin, sem sagt”NÁTTFÖT”. Svo voru þau Sigurjón og Karólína svo góð við gölmu konuna “mig” og þau sáu um að elda, og fékk ég þennan líka geggjað góða kjúklingarétt. Kallast víst dorritos kjúklingur. En svo var bara gengið frá og haft það næs yfir kvöldið.
Fært þann 27. nóvember 2008 kl. 16.21 og flokkað undir Hvað er um að vera á skagf-braut.
Þú getur fylgst með ummælum við færluna með RSS 2.0 veitu.
Þú getur ritað ummæli, eða sent bakvísun af síðunni þinni.