dodda 8. desember 2008
Góðan dag góðir hálsar, minn er ekkert í góðu standi frekar en á við um aðra hálsa hérna á þessum bæ. Já allir með kvef á hálsbólgu jaaa nema kallinn, hann er sé sa eini sem hefur sloppið við þetta. En ég hef ekki verið að láta þetta stoppa mig neitt og er buin að setja allt jólaskraut upp hérna hjá mér nema jólatréð. en ætli ég taki það ekki upp um 20 des kemur bara í ljós hvað ég næ að bíða lengi með að taka það ekki upp úr kassanum. annars ekki mikið að frétta hérna úr kjallaranum okkar, veðrið er eins og það er annað hvort -eða + á mælinum, og um daginn þegar skaust út að hita bílinn fyrir krakkana þá hélt ég hreinlega að ég myndi frjósa föst í dyrunum, enda sýndi mælirinn -13 takk fyrir, daginn eftir var hann nú komin niður í -2 og daginn þará eftir var komið í plúss aftur.. já og núna þá bara er þessi fína jólasnjókoma á Sauðárkrók, bara fallegt og gott veður en maður húkir inni hálf slappur og krakkarnir líka.
En svona áður en ég hætti þessu þá á hún systir mín afmæli í dag
Til hamingju með daginn
Fært þann 8. desember 2008 kl. 14.39 og flokkað undir Hvað er um að vera á skagf-braut.
Þú getur fylgst með ummælum við færluna með RSS 2.0 veitu.
Þú getur ritað ummæli, eða sent bakvísun af síðunni þinni.
9. mars 2009 kl. 14.21
Halló, hvernig væri að fara að blogga kona, það er kominn mars mánuður ef þú hefur ekki lititð á dagatalið, HALLÓ!!!!!!!!!!!!