FENJASKRÍMSLIÐ

  • dodda

    Svona smávegis um mig.
    Þóra heiti ég og er 29 ára gömul búsett á Sauðárkróki.
    Ég náði mér í alveg inndislegan sveitastrák´sem ég giftist 16 júní 2007. við eigum svo þrjú auðvita æðisleg börn:)


Andvaka…

dodda 14. apríl 2009

Ég get ekki sofið, púff lífið er ekki alltaf auðvelt. En síðustu daga hef ég átt erfitt með að sofa, er dauð þreytt en finnst bara ef ég sofna þá mun ég ekki geta hjálpað litlu stúlkunni minni. Þetta er hrikalega erfitt og líklega það erfiðasta er að geta ekkert gert annað en að bíða. Ég hafði nú samband við huglækni um daginn og er að vona að það hjálpi en þó veit maður það sosum ekki. Veit ekki af hverju ég skrifa þetta hérna en líklega bara til að létta á mér þessa stundina þar sem það eru ekki margir vakandi á þessum tíma og fólk skilur ekki hvað maður er að ganga í gegnum þó það reyni. Ætla að skella hérna inn bréfinu sem ég sendi á huglækni.

Sæll
Ég hef nú haft samband við þig áður útaf henni Selmu Björk, litlu stelpunni minni. Núna þarf ég hjálp þó ég viti ekkert hvort þú getur hjálpað nokkuð en ég ætla þó að reyna á þetta, það allavega skaðar ekki að prufa. En hún er flogaveik litla stúlkan og er verið að reyna að finna rétt lyf fyrir hana. En það sem mér liggur mest á hjarta núna er að hún fékk flog fyrir um 3 vikum síðan og það var það skelfilegasta sem ég hef upplifað, og er ég bara komin með tár í augun við að reyna að segja frá þessu. En hún sefur sem sagt inni hjá okkur, fór að rumska þessa nótt og ég var búin að sussa á hana og allt virtist vera í lagi. Snögglega rak hún upp alveg svakalegt öskur og það ekkert eitt. Satt að segja þá hef ég aldrei á ævinni heyrt nokkurn öskra svona hræðilega, það var eins og það væri hreinlega verið að drepa hana fyrir framan mig.Ég tók hana í fangið og reyndi sem ég gat að hugga hana en ekkert gekk hún bara öskraði af lífs og sálar kröftum, endaði með að maðurinn minn hringdi á lækni og þó aðallega líklega til að reyna að róa okkur niður því við vorum logandi hrædd, 10 mínútum seinna að ég held þá missir hún meðvitund og fær flog.. ég segi 10 mínútur þótt ég viti ekkert um það því þetta virtist bókstaflega vera heil eilífð. En við gáfum henni lyf sem við erum með heima og loks um 3 tímum seinna var allt orðið rólegt og við “sváfum” það sem eftir var nætur. Hún talaði nánast ekkert í 4 daga eftir þetta. En svo kom það eitt kvöldið er ég ætlaði að fara að lesa fyrir hana að hún segist hafa séð draug, ég ræddi við hana og komumst svo að samkomulagi að hann væri í útlöndum það sem krókódílarnir væru. Svo liðu þessar 3 vikur og við hjónin mikið búin að velta fyrir okkur hvort þetta hafi verið eitthvað sem hún sá eða eitthvað sem fylgdi floginu. Endaði með þó að við fórum í annað herbergi því hún neitaði að vera þarna inni. En svo núna síðustu nótt vakna ég um 1:30 og finn að hún sefur órólega og andar hratt og bíð bara því ég er viss um að hún sé að fá flog. um kl 4 þá tek ég hana uppí til mín og þar er hún svolitla stund svo snýr hún sér að manninum mínum sem er líka vaknaður og öskrar upp aftur alveg skelfilega hrædd. öskrar í smá tíma og maðurinn minn hringir aftur í lækni og kveikir ljós. Tekst mér eftir smá stund að róa hana niður og fer með hana inn í stofu. Hún fær þó ekkert flog en heldur dauða haldi í mig í rúmlega 1 klukkutíma. Svo segir hún aftur að hún hafi séð draug. Ég spyr út í þetta og hvar hann var , hún svarar að hann hafi verið við hliðina á mér. En hún sá pabba sinn. En þetta bara gengur svo yfir og hún vill svo bara fá að borða og horfa á teiknimynd. En svo gerist það sama aftur í kvöld að hún fer með systur sinni inn á klósett og æðir út öskrandi og ég tek hana strax í fangið og þar er hún allt kvöldið. Sefur núna í sófanum og neitar að vera annarstaðar. En ég bý í kjallara íbúð og það er stigi fyrir ofan baðherbergið og heyrist hljóð þegar er gengið um á hæðunum fyrir ofan. En hún er hrædd við allt. Veit ekki hvað ég get sagt meira um þetta. En endilega hafðu samband við mig.

Kveðja 

Bara svakalegt hvað er lagt á lítinn kropp sem skilur í raun ekki hvað er í gangi. Hún man þetta allt og segir stundum við mig þegar hún er að fara að sofa” mamma ég er ekkert hrædd” púff litla skinnið er ekki hrædd en ég er að springa úr stressi og kvíðir fyrir hverju einasta kvöldi. En núna sefur hún í sófanum því hún vill als ekki fara inn í herbergi og þegar ég loks kem mér að fara í bólið þá tek ég hana og legg hana í rúmið hennar Silju þar sem ég sef með henni því ég þori ekki að vera lengra frá henni.

En ég ætla að láta þetta duga íbili þó svo að ég vilji skrifa um þetta mun meira.
kv…..

Ein ummæli um “Andvaka…”

  1. Lilja frænks á patró ritaði:

    Æ litla skinnið, je minn.
    ég man eftir að þú sagðir mér um daginn þegar ég talaði við þig frá fyrsta flogakastinu sem þú talar um og að hún vildi ekki tala. en afhverju byrjar þetta núna? þið eruð búin að búa svo lengi í íbúðinni.
    vonandi fer henni að líða betur og ég sendi strauma til hennar :)

Rita ummæli

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning