FENJASKRÍMSLIÐ

  • dodda

    Svona smávegis um mig.
    Þóra heiti ég og er 29 ára gömul búsett á Sauðárkróki.
    Ég náði mér í alveg inndislegan sveitastrák´sem ég giftist 16 júní 2007. við eigum svo þrjú auðvita æðisleg börn:)


Kaldar tásur.

dodda 11. október 2008

Ohh mér leiðist.´
Það er eitthvað við svona daga að maður bara nennir ekki einu sinni að fara í föt, ég er ekki nakin samt. En síðan ég vaknaði hef ég ekkert gert og er orðið kalt á tánum svo ég ætti líklega að fara í sokka, er að hugsa um að dúsa bara í náttfötunum í dag. Máðir er bara að það er kalt og blautt úti og ég nenni ekki að baka eða leika við krakkana svo ég ætla mér að hafa það gott þegar ég er… búin að laga til og setja í þvottavélina.. já taka úr þurrkaranum og ganga frá því..taka svo úr uppþvottavélinni og ganga frá því og setja rest í hana. Hvað er ég að reyna að blekkja sjálfa mig á því að ætla að hafa það rólegt og gott í dag með þrjá krakka heima og búa í 77 m2 íbúð. Já ég er líklega heldur bjartsýn. En well hefði líklega ekkert minna að gera í stærri íbúð.En ef ég verð rosalegasvakalega dugleg þá kannski næ ég að slappa af í smá stund og gera ekki neitt.Enn jæja kannski maður fari að hætta þessu hangsi og fari í sokkana :)
Góða helgi :)

Fært undir Hvað er um að vera á skagf-braut | 1 ummæli »

trarallala..

dodda 9. október 2008

Hvað er að??
Um daginn þá ´keyrði ég um á 20km hraða eftir götunum hérna og spólaði upp alla he….. brekkuna uppí leikskóla og hætti mínu lífi og annarra sem búa hérna með því að hafa farið út í bíl og keyrt af stað í þessari hálku sem var, bara útaf því að ég sendi hana Selmu í leikskólann. Þetta slapp þó þar til ég uppgvötaði að ég átti eftir að keyra niður brekkuna. Og ekki huggaði það mig þegar ég nálgaðist brekkuna að sjá bíl vera versum í brekkunni að basla við að snúa bílnum rétt til að  geta haldið áfram niður. Þetta varð til þess að ég fékk nett áfall í 3 sekúndur en hélt svo áfram og fór ofurhægt niður brekkunna og komst lífs af eins og þið takið eftir.  Svo þegar ég loks fæ nagladekkin undir þá bara fer hálkan og snjórinn og bara hiti og læti. usss já mín bara ekki sátt. Ekki að ég vilji svona mikið fá snjó og hálku og kulda. Er alveg sátt með veðrið:)

En mér til mikillar gleði þá held ég að löggan hérna í bænum sé alveg að hugsa um heilsuna þar sem ég sé þá rölta hérna um gangstéttarnar. bara ekki oft sem maður sé lögguna á röltinu. en ég verð að láta þetta duga og hugsa um gríslingana mína sem eru eitthvað hiper í kvöld :)

annars væri voða gaman að fá kvitt frá þeim sem kíkja á blogið hjá mér :)

Fært undir Hvað er um að vera á skagf-braut | Engin ummæli »

Selma Björk skvísa 4.ára í dag:)

dodda 1. október 2008

Jæja ég ætla mér að blogga bara lítið í dag.
En hún Selma Björk uppáhalds 4 ára stelpan mín á afmæli ég dag :) orðin 4 ára skvísan. Alveg ótrúlegt hvað þetta er allt fljótt að líða og hvað svona “lítil” stór skvísa er búin að ganga í gegnum mikið. Núna er hún búin að fa tvo pakka, einn frá mömmu og pabba (ég og Stefán) og svo einn frá Sigrúnu og co, Systir hans Stefáns :) Hún fékk sokkabuxur,gallaskokk og peysu frá okkur og svo Bratz dúkku og púsluspil frá Sigrúnu. Rest fær hún svo á laugardaginn en þá höldum við uppá afmælið hennar :). Það var svo gaman að vekja hana í morgun og sjá hvað þetta litla andlit ljómaði upp því hún var sko búin að stækka í nótt enda orðin 4 ára stelpa. Svo opnaði hún pakkann frá okkur svo hún gæti farið í fötunum í leikskólann, svo var það svo æðislegt að það skildi snjóa á afmælisdaginn hennar “fannst henni” ég var ekki eins hrifin hehe. En svo fór hún í leikskólann og þetta var alveg hennar dagur það sungið fyrir hana og svo fékk hún auðvita kórónu. Það var svo gaman svo að ná í hana rétt fyrir kl 12 því hún kemur alltaf hlaupandi og gefur manni stórt knús og talar svo alla leið heim um hvað hún var að gera í leikskólanum og í dag var talað extra mikið.
En skelli inn tveimur myndum af henni :)

1.jpg

10.daga

2.jpg

3.ára

Fært undir Hvað er um að vera á skagf-braut | 2 ummæli »

Ég barðist við skrímsli í gærkvöldi.

dodda 24. september 2008

Jæja kominn tími til að blogga ekki satt.
Ég var nú hérna í sakleysi mínu í gær að rabba á msn og ráfa um á netinu. Þá gerðist það!! já Kisinn minn kom inn með ánamaðk og það ekkert minnstu gerð ó nei þetta var RISA STÓRT. ojj hrollur þetta var verra en versta skrímsli ég get svo svarið það. Ég sem sagt hóf mikla baráttu við að koma skrímslinu út. Já ég ætlaði nú fyrst að nota bara eldhúsbréf en mér klíaði svo að ég gat ekki hugsað mér að taka kvikindið upp, svo ég stökk út og náði mér í skóflu frá krökkunum. Ég náði svo að lokka kvikindið upp í skófluna og náði að henda því út. Mér var þá bjargað. Þetta eru með ógeðslegustu kvikindum sem ég veit um. Kisurnar mínar voða happy og ekki happy, happy yfir því að þetta er það fyrsta sem þeir voru að “veiða” og ekki happy að ég lokaði þá inni á meðan ég barðist við ofvaxinn ánamaðk. jakk.
En ég var að prufa soldið um daginn :) er svo ánægð með þetta hjá mér.
Gjörið svo vel og kvittið svo fyrir komuna.

Fært undir Hvað er um að vera á skagf-braut | 4 ummæli »

nóg að gera á Skagf-brautinni

dodda 3. september 2008

úff þessir krakkar. Það er að verða alveg sama hvað mér dettur í hug að elda hérna handa þessum grísum að ég fæ að heyra “oj þetta er vont” eða “æji mamma ekki svona mat” já þetta er að verða þreytt. Í kvöld þá ákvað ég að elda bara fiskibollur og taldi ég nú að það ætti að vera ætur matur, en nei það var ekki hægt að borða þann mat, þetta var algerlega óætt. Já þá fékk ég þessa æðislegu hugmynd að skella bara tómatsósu á borðið, var maturinn nú vel skreyttur með tómatsósu en það var enþá óætt. Já svo það endaði með að stelpurnar borðuðu kartöflurnar og létu sig hverfa frá borðinu,og sátum við Örn Ægir saman og borðuðum okkar fiskibollur og líkaði bara vel tómatsósulaust. Já hvað á maður að gera í þessu. Ég hef þó sett upp reglu að þá á að smakka og orða minnst 5 bita. En ég sætti mig við að kartöflurnar voru borðaðir. Já þannig endaði þessi máltíð eins og ansi aðrar. Ég hef þó Örn til að borða með mér svo ég er ekki alveg ein þrátt fyrir matvöndu skvísurnar.
En svo fór ég með Örn Ægir í skoðun á mánudaginn og og var hann teigður og vigtaður og stunginn og bara var nokkuð sáttur þrátt fyrir það við þessar konur. Og er gæinn orðin alveg 75 cm og 8,400g og ég bara svo sátt með strákinn. Því hann var jú fæddur 37cm og 951g
svo hann er að verða bara stærðar strákur :)

Þarna er hann 4 daga gamall..
mynd_qel6zm.jpg

en þarna orðin 16 mánaða …

mynd_zk81d2.jpg

Er svo stolt af honum. Hann er reyndar ekki farin að ganga en það kemur. Hann er farin að fara einn út bakvið hús og ég kíkka á hann bara annað slagið, en hann bjargar sér upp og niður tröppurnar og hann kemur bara inn þegar hann er búin að fá nóg.
Læt þetta duga í bili, maður þarf að skella í uppþvottavélina og gefa Svali og Vali smá Fiskibollu..

hérna er ein mynd af þeim saman :)

20080813105851_0.jpg

Svalur er með hvíta nebbann en Valur með brúna nebbann

Fært undir Hvað er um að vera á skagf-braut | 2 ummæli »

ég blogggggaaaaaa :D

dodda 29. ágúst 2008

jæja um að gera að standa sig í þessu. Nokkuð gott að vera að koma með mitt ÞRIÐJA blogg í mánuðinum :) en svo átti hann pabbi minn afmæli í gær og er maðurinn orðin 59 ára. til hamingju með það pabbi minn :*. Svo eitt sem mér finnst alveg æðislegt. það er þegar Selma Björk æpir upp.. mamma, mammmmmmaaaaaa það flaug könguló á mig þú verður að taka hana. já allar flugur eru köngulær sama hvað hehehe.

En áfram með Akureyrina. já þá rauk ég með mömmu sem sagt aðra ferð gegnum Ólafsfjarðagöng. sem ég hélt reyndar að við yrðum inni bara það sem eftir væri. Og svo yfir láheiðina og ég leit ekkert á hana yfir,svooo segum að hún hefi ekki fölnað(mikið). Svo fór ég aftur yfir eftir að hafa skilað konunni í Ketilás. Já ég fór aftur inn á Akureyri. Því ég varð að bjarga henni Lilju með að keyra soldið með hana um Akureyrina fínu. Já brunaði ég á Svalbarðseyri fékk mér smá næringu og slappaði svo af í bílnum hjá Jónu með Kristbjörgu á blaðrinu í aftursætinu að ná í Liljusina. Já sóttum við dömuna <—- Lilja sjáðu bara hvað ég skrifaði DÖMUNA :D en já blöskraði okkur Jónu á öllum farangrinum og gullkistuna sem hún kom með en það endaði reyndar svo bara á einni tösku. hún var ekki einu sinni í yfirstærð. Brunuðum við svo af stað í Strumpastrætóinum hennar jóna inn á AK og þar var okkur Lilju sýndur Háskólinn( sem varð annað heimili Lilju á meðan hún stoppaði á AK í nokkra daga) og svo gistiheimilið sem hún notaði svo ekki.
Fórum við svo bara heim til hennar Jónu kjöftuðum og fórum svo bara að sofa. ég var meira að segja svo heppin að ég fékk sögu fyrir svefninn frá Liljus, en förum ekkert útí hvað sagan fjallaði um. Við sváfum eins og ungabarn enda barnlausar og nutum þess í botn, sváfum meira að segja út alveg til kl 8:30 eða svo. Þá gerðum við það sem konur gera. Svo lá leið okkar inn á Akureyri. Hálf dauðar úr hungri enda var ískápurinn hálf tómur hjá Jónu. við fundum okkur að borða og þræddum svo nokkrar búðir og spreðuðum meira peningum. Fórum meira að segja í fullorðinsbúðina á AK :) það var auðvita skemmtilegasta búðin. Svo þurfti Liljan að mæta í skólann og ég var orðin ein, já gat ekki gert upp við mig hvort ég ætlaði heim eða bíða. Já svo hringdi síminn og ég fór á Bónstöðina og var þar svo svona mest allan daginn. skrapp á netið mér til dundur milli þess sem ég talaði í símann og spjallaði við Sigurjón. Fékk sms reglulega frá Liljuni og reyndi að hugga hana eins og ég gat í gegnum sms. Svo endaði með því að ég var áfram og sótti Dömuna í skólann. Vorum við frekar hungraðar svo við skelltum okkur á glerártorgið og fengum okkur að borða þar og aftur í smá búðir.
En svo fór þetta nú að taka enda og við fórum aftur til Jónu þar sem ég varð að yfirgefa hana Lilju já ******frænku. Svo brunaði mín heim með allt sem ég var nú búin að kaupa inn á þessum tveim dögum sem ég átti á Akureyri.
Var æðislega gott að vera komin heim og fá kossa og knús frá Stefáni elskunni minni og Silju skvísu. sem var alveg hæst ánægð með allt skóladótið.

ARrrrgggg gleymdi að við Lilja fengur ókeypis kvalaskoðun á pollinum það var alveg geggjað en við náðum engum myndum því miður.

Fært undir Hvað er um að vera á skagf-braut | 1 ummæli »

Akureyrarferð.

dodda 26. ágúst 2008

jæja ég er að hugsa mér að vera duglegri að blogga en SUMIR sem ég þekki. Já en um daginn þá gerðist ég svo elskuleg að bjóða henni móður minni með mér inn á Akureyri í smá verslunarferð. Já hætti ég lífi mínu og hennar auðvita með því að bruna yfir láheiðina, þetta var auðvita ekkert mál og ég sá hana ekkert fölna á leiðinni.. svona þetta litla sem ég leit á hana alla leið inn á Akureyri. Gekk ferðin vel inn á Akureyri og ók ég auðvita mjög löglega alla leiðina.. enda er búin að hneykslast mikið á tímanum sem tók mig að keyra frá ketilás og inn á Akureyri, en við ræðum hann ekkert hérna inni. En við kellur fórum og þræddum búðirnar á Glerártorginu og svitnuðum við að velja skólatösku fyrir “gelgjuna” en það hafðist nú á endanum og gerðumst við það kræfar að velja pennaveskið í stíl við töskuna. Eftir nokkrar búðir til viðbóta þá skelltum við okkur í að kaupa ís og slappa svolítið af í sólinni og hitanum sem var að gera næstum útaf við okkur.. völdum okkur stóran ís til að bæta uppá það sem við gætum hafa misst á búðarápshlaupunum. Eftir góða afslöppun þá skelltum við okkur í bónus og brunuðum svo á Svalbarðseyri til Jónu.
Eftir fína afslöppun hjá Jónu fannst okkur nú vera kominn tími á að snúa heim á leið ..Já þetta er ekki búið svo það verður fram hald í næsta bloggi.

Fært undir Hvað er um að vera á skagf-braut | Engin ummæli »

gosssovelllll Hjörtína Lingmey

dodda 20. ágúst 2008

jæja ætli sé ekki komin tími á að blogga fyrir hana Hjörtínu lingmey.
Já ég ætlaði að vera lönguuuu búin að blogga en það er svona að vera heima vinnandi húsmóðir að það er alltaf bilað að gera að sinna þessum grísum. Þó á ég auðvita “þægustu” grísina sem til eru :D
En það sem er að frétta er að ég er löngu komin heim í fríinu mínu austur. Já þar æddum við á mínum flotta bíla um austfirðina og höfðum það æðislega gott. Og ég slapp nokkuð vel frá því að verða endanlega heyrnalaus og vitlausari en ég er. En þessi ferð var alveg bráðskemmtileg og ég tók eitthvað af myndum sem ég setti á síðuna mína og er linkur á þær hérna til hægri.
En nóg um það, svo kom konan bara heim og gerði sitt besta til að hafa hemil á dýrunum fram að verslunarmannahelgi, en við ákváðum að skella okkur á Sigló einu sinni, einu sinni en. En já  þá ákvað ég nú að skella mér inn á Akureyri að versla smá áður en ég æddi inn á sigló þennan  æðislega föstudag, já getum sagt að ég á ekki eftir að gera það næstu árin að fara ein með krakkana í búðir á Akureyri, ekki að það gekk sosum áfallalaust fyrir en mamman (ég) var orðin frekar þreytt eftir 3 tíma hlaup um glerártorgið. en eftir þessa líka viltu búðarápsferð um glerártorgið þá ákvað ég að láta sem ég sæi ekki bónus og keyra bara beinustu leið inn á sigló.
En eftir 2 tíma akstur inn á sigló.. já sagði 2 tíma enda nokkuð viss um að það er búið að lengja lágheiðina um nokkra kílómetra þá var mín mætt á svæðið og var nokkuð mikið af fólki mætt. Við brunuðum svo bara heim til mömmu og slöppuðum af eða já þannig. En ekki meira um það þetta var æðisleg helgi og svo fólk haldi ekki að ég sé alltaf ein þótt ég sé það nánast alltaf, jú þá á ég mann og hann lét nú sjá sig á endanum.

Eeeennnnn svo liðu dagarnir sinn vana gang og ég átti von á að losna við mitt gamla rúm og fá minna rúm, já flestir fá sér nú stærra, en ég fékk mér minna rúm, svo þá var komið að spínatinu og ég fór að færa til húsgögn og skúra í sundur rúm og í óþolinmæðiskastinu þá náði ég stóra rúminu úr herberginu ALEIN. já takið eftir að ég gerði það ein. ekki allir svona heppnir að eiga ofursúpermömmu. En ég gerði þetta færði til og setti annað rúm saman og skúraði og skrúbbaði eins og brjáluð ofvirk húsmóðir.

En þar sem ég nenni ekki að pikka meira núna og verð að fara að huga að mat þá verð ég að blogga meira seinna og lofa að gera það á styttri tíma núna :)

Fært undir Hvað er um að vera á skagf-braut | 1 ummæli »

Lítil veik stúlka

dodda 25. júlí 2008

20080714145041_3.jpg

Í júní síðastliðnum greindist Þórhildur Nótt Mýrdal, dóttir Steinunnar Bjargar Gunnarsdóttur og Jóns Gunnars Mýrdal með sjúkdóm er kallast Spinal Muscular Atrophy eða SMA (vista) til eru 4 flokkar af þessum sjúkdóm og er Þórhildur með flokk 1 sem er jafnframt sá hættulegasti.
   Hún þarf á bæði lyfjagjöf og sérfræðiþjónustu að halda svo ekki sé minnst á tækjabúnað.  Þetta kostar allt peninga og mikla umönnun beggja foreldra sem munu væntanlega þurfa að vera töluvert frá vinnu.
  Viljum við því biðja alla sem eru aflögufærir að styrkja hana og fjölskyldu hennar með frjálsum fjárframlögum.
  Söfnunarreikningur Þórhildar er:  1118-05-250052 kt: 120856-7589
  Munum svo að margt smátt gerir eitt stórt.

Viljið þið vera svo væn að copy/paste þennan texta yfir á ykkar bloggsíðu svo að þetta berist sem flestum.

Frekari upplýsingar um sjúkdóminn:  http://www.fsma.ci.is/

Fært undir Hvað er um að vera á Skaf-braut?? | Engin ummæli »

Nokkuð rólegt :)

dodda 14. júlí 2008

Jæja sosum ekki mikið að frétta.
Enn Stefán fann sumarbústað sem við gátum fengið á leigu. Svo ég ætla að pakka mér og börnunum niður í tösku og keyra austur á Föstudaginn.. Hlakka alveg hrikalega mikið til. Stefán var einmitt að tala um að hann ætlaði að fara með okkur uppá Karahnjúka til að sjá þetta allt saman. ég get varla beðið. líka bara að fá að sjá hann, var einmitt að hugsa í morgunn er bara vika síðan hann fór austur og mér finnst það vera heil eilífð. já þó er ég nú vön að vera ein lengur en þetta, ég hlakka bara svo mikið til að sjá hann og taka utan um hann og kyssa hann. Já veit ekki þetta er bara eitthvað erfitt núna og þó er líklega málið að hann hefur verið mikið heima í sumar. En hvað um það, eina sem ég hlakka þó ekki til er að inndíslegu stelpur mínar þær rífast nærri stanslaust og munu eflaust gera nærri alla ferðina Austur.. púff já ég verð líklega bara að fjárfesta í eyrnatöppum áður en ég leg í hann. Þó væri en flottara ef það væri hægt að setja bara upp skilrúm á milli sæta með hljóðdeyfir, já það væri lúxus þá gæti ég brunað austur og myndi ekkert heyra í þeim alla leiðina, en eyrnatapparnir eru ódýrari svo ég verð bara að skella mér á þá þar til ég verð rík.. en þá verða þau orðin stór og þá þarf ég ekki lengur á skilrúminu að halda. Þó er þetta nú fín hugmynd :) En já ég skrapp þó til mömmu um daginn fór í klippingu og lit hjá Sillu og hafði það gott, lánaði mömmu myndavélina mína fyrir Danmerkur ferðina svo hún gæti nú tekið myndir konan. En var að fatta að ég get ekki tekið mikið af myndum fyrir austan :( en bóndinn á sosum myndavél ég verð bara að notast við hana til að taka einhverjar myndir :) En læt þetta duga í bili og læt ykkur svo vita hvernig Austfjarðaferðin fór hjá mér :)

Fært undir Hvað er um að vera á Skaf-braut?? | 2 ummæli »

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning