Lögfræðiaðstoð og smokkar

16. október 2008 kl. 9.15 |

Neytendur:  Enn fleiri jákvæð dæmi úr kreppunni

Ekki er ónýtt, eins og þjóðfélagið er núna, að benda á eitthvað jákvætt og umfram allt ókeypis. Laufey Helga Guðmundsdóttir og Guðrún Edda Guðmundsdóttir, framkvæmdastjórar Lögfræðiaðstoðar Orators skrifa: „Okkur langar að vekja athygli á Lögfræðiaðstoð Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, sem er endurgjaldslaus lögfræðiaðstoð í gegnum síma fyrir almenning. Opið er á fimmtudagskvöldum yfir vetrarmánuðina frá 19.30 –22.00 í síma 551-1012. Lögfræðiaðstoð Orators er starfrækt með því sniði að almenningi gefst kostur á að hringja inn og bera upp lögfræðilegar fyrirspurnir. Lögfræðiaðstoðin leitast við að svara þeim eftir bestu getu og leiðbeina fyrirspyrjanda um næstu skref við lausn sinna mála. Svör við fyrirspurnum eru ekki hugsuð sem endanleg lausn, enda verða þau að skoðast með þeim fyrirvara að þau séu almenns eðlis. Það eru laganemar í meistaranámi við lagadeild HÍ sem sitja fyrir svörum.”

Og meira frá HÍ. Tveimur nemum á viðskiptabraut blöskraði hátt verð á smokkum á Íslandi og fengu hugmynd. Þeir selja nú smokka á lægra verði en gengur og gerist. Ódýru smokkana má panta á www.freewebs.com/smokkagaldur. Strákarnir vilja ekki verða þekktir sem „smokka-gaurarnir” og koma því ekki fram undir nafni. „Annar okkar stundaði nám í Bandarríkjunum í nokkur ár. Þar áttaði hann sig á þeim mikla verð- og úrvalsmunur á smokkum og hér heima. Næsta skref var að panta smokka inn að utan og selja í gegnum netsíðuna.

Ef við tökum verðdæmi þá kostar 12 smokka pakki yfir 1200kr út í búð, en hjá okkur 850 kr. Eftir gengisbreytingar undanfarið hafa búðir hækkað smokkaverðið. Við bjóðum uppá mest 100 stykki og kostar það 5500 kr. Samanborið við hvað slíkt magn kostaði út i búð erum við 80 prósent ódýrari. % verðmunur.

Smokkar eru vinsælasta getnaðarvörnin í heiminum í dag og með þeim öruggustu. Því er skrýtið hversu dýrir þeir eru út úr búð hér. Við erum að reyna að hjálpa til.”

 

 


Ummæli

Lokað er fyrir ummæli.

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning