Nú eru geitungar mikið á ferli, flestum til ama og leiðinda. Gunnar Hólmsteinn Ársælsson sendi inn einfalda “veiðiaðferð” á kvikindin, sem hann segist hafa þróað þegar hann bjó í Svíþjóð. “Einfaldlega bara að sprauta rúðuúða sem inniheldur mikið af salmíaki á geitungana,” skrifar Gunnar. “Geisli (styðjum íslenskan iðnað!) steindrepur þá á innan við mínútu, bara bíða þangað til þeir setjast og láta vaða. Ajax er líka fínt. Svo þurrkar maður bara af; tvær flugur í einu höggi! Ekki hlaupa upp til handa og fóta, þá ráðast þeir á mann, ef þeim finnst sér vera ógnað.”
Svo má líka bara kaupa flugnaspaða. Ég keypti plastspaða í Euroshopper á 229 kr. Hann er með innbyggðri flísatöng til að fjarlægja líkin. Lufsan keypti á sama tíma tvo plastspaða saman í kippu á 99 kr. í Ikea. Frá því að þrír flugnaspaðar komu inn á heimilið hefur ekki einn einasti geitungur látið sjá sig. Kannski er fælingarmáttur í spöðunum?

Dr. Gunni er umboðsmaður neytenda