Eggert Guðmundsson. Öðruvísi blogg.

Gaman, Myndir, Fræðsla, og eitthvað annað.

  • Eggert Guðmundsson

    Sæl ! Ég heiti Eggert Guðmundsson, og er búsettur í Kaupmannahöfn.
    Ég hef verið hér í 15 ár, og er førtidpenjon eins og það er kallað hér. Ég hræri stundum dönsku og Íslensku saman, eða skrifa vitlaust. Ég vona það verði fyrirgefið.
    Hér verða gamanefni, myndir og ýmislegt meira sem ég finn upp á.
    Vonandi finnst ykkur bara gaman.
    Kveðja Eggert


Færslur nóvember 6th, 2009

Mannakorn og Stöðvarfjörður. Góða nótt.

Fært af Eggert Guðmundsson þann 6. nóvember 2009

Sálmarnir 84:2-3

Hversu yndislegir eru bústaðir þínir, Drottinn hersveitanna. Sálu mína langaði til, já, hún þráði forgarða Drottins, nú fagnar hjarta mitt og hold fyrir hinum lifanda Guði.

Filippíbréfið 4:13

Allt megna ég fyrir hjálp hans sem mig styrkan gerir.

Klikkið á myndina til að stækka.

Stöðvarfjörður

Stöðvarfjörður.

Myndasmiður er Þórir N. Kjartansson.

Fært undir Alþjóðamál, Bænin, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Fréttir, Gróður, Heilbrigði, Mannakorn, Myndin í dag, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

Ég endursýni myndina vegna fjölmarga áskora og fyrirspurna.

Fært af Eggert Guðmundsson þann 6. nóvember 2009

Hér er myndin vinsæla með allri sinni dýrð. Gjörið svo vel og njótið :D

Fært undir Dýrin, Ferðalög, Fjölmiðlar, Gróður, Heilbrigði, Myndin í dag, Umhverfi, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »

Rótin lá rosalega djúpt. Ný tækni hjá tannlækninum.

Fært af Eggert Guðmundsson þann 6. nóvember 2009

Læknirinn var að gera nýjar tilraunir með því að deyfa ekki þegar hann drægi tönn úr fólki.

Ef hann gæti fengið það til að beina huganum annað.
Næst þegar hann þurfti að draga tönn gerði hann það eldsnöggt og stakk títuprjóni í afturendann á sjúklingnum um leið og hann kippti tönninni upp.
-Jæja Guðmundur var þetta nokkuð sárt spurði hann svo hróðugur?
-Nei, nei, svo sem ekki. En mikið rosalega lá rótin djúpt.

Klikkið á myndina til að stækka.

D

Einn af þeim strætisvögnum sem ég var að keyra þegar ég var starfandi.


Fært undir Alþjóðamál, Brandari, Bílar, Bíllinn, Grínið, Heilbrigði, Slúður, Smá grín, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 3 ummæli »

Mætti í eigin jarðarför. Kom til að votta sjálfum sér virðingu.

Fært af Eggert Guðmundsson þann 6. nóvember 2009

Tæplega sextugur Brasilíu maður olli uppnámi þegar hann mætti sprelllifandi í sína eigin útför.

Að sögn brasilíska fjölmiðla höfðu ættingjar múrarans Ademir Jorge Goncalves fullyrt að lík manns, sem fórst í bílslysi í Paranafylki daginn áður væri af honum.

Raunar var erfitt að bera kennsl á líkið þar sem það var illa farið. Móðir Ademirs og fleiri ættingjar voru raunar í nokkrum vafa en frænka hans og fjórir vinir voru alveg vissir í sinni sök.

Í Brasilíu eru látnir bornir til grafar eins fljótt og verða má og því fór útförin fram daginn eftir. Meðan á henni stóð birtist Ademir hins vegar, hálf tuskulegur en í fullu fjöri.

Í ljós kom að hann hafði verið á fylleríi með vinum sínum þar sem þeir drukku pinga, brasilísk brennivín. Þegar hann raknaði við sér morguninn eftir frétti hann að verið væri að bera hann til grafar.

Í ljós kom að líkið var af manni úr öðru fylki. Þess ber að geta að hann var mjög glaður að vera lifandi.

Fært undir Alþjóðamál, Ferðalög, Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Kirkja, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 2 ummæli »

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning