Fært af Eggert Guðmundsson þann 7. nóvember 2009
Sálmarnir 66:9
Hann hélt oss á lífi, varði fætur vora falli.
Sálmarnir 34:9
Finnið og sjáið að Drottinn er góður, sæll er sá maður sem leitar hælis hjá honum.
Klikkið á myndina til að stækka.

Víkurfjara. Myndasmiður er Þórir N. Kjartansson.
Fært undir Alþjóðamál, Bænin, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Gróður, Heilbrigði, Kirkja, Mannakorn, Myndin í dag, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir | 1 ummæli »
Fært af Eggert Guðmundsson þann 7. nóvember 2009
68 ára gömul kona í Suður-Kóreu er himinlifandi þessa dagana vegna þess að henni tókst loks að ná skriflegu ökuprófi í 950. tilraun.

Cha Sa-soon tók prófið fyrst 13. apríl 2005 og hélt áfram í fjögur og hálft ár þar til henni tókst að ná tilskildum 60 stigum af 100. Hún hafði greitt alls sem svarar hálfri milljón króna í prófgjöld.
Cha þarf nú að standast aksturspróf til að geta fengið ökuskírteini og hún ætlar sér að ná því hvað sem það kostar.
Hún kveðst vilja fá ökuréttindi til að geta notað bíl til að selja grænmeti og fleiri vörur, að sögn suður-kóreska dagblaðsins Korea Times.
Cha býr í borginni Jeonju, um 210 km sunnan við Seoul, og staðfesta hennar hefur vakið mikla athygli þar.
„Ég tel að fólk geti náð markmiðum sínum ef það gefst aldrei upp,“ var haft eftir Cha í febrúar þegar hún hafði reynt 775 sinnum að ná skriflega prófinu. „Fólk þarf bara að vera sterkt og gera sitt besta.“
Cha Sa-soon í skriflega prófinu.
.
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Fréttir, Heilbrigði, Nám, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
Fært af Eggert Guðmundsson þann 7. nóvember 2009
Það var á Alþjóða Manneldis Ráðstefnu ( A. M. R. ):
.
Hvað seigir maður um ljósku sem hefur tvær heilafrumur?
.
Hún er ófrísk!
.
Enn ef hún hefur 3 heilafrumur?
Þá er Hún ófrísk af tvíburum!

Fært undir Brandari, Grínið, Ljósku brandari, Myndin í dag, Slúður, Smá grín, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | 2 ummæli »
Fært af Eggert Guðmundsson þann 7. nóvember 2009

Keith Wilson King.
Lögregla í Phoenix í Arizona í Bandaríkjunum þurfti að grafa sig gegnum hauga af ferðatöskum og farangri þegar hún gerði húsleit á heimili fólks sem er grunað um að hafa stundað skipulega töskuþjófnaði á flugvelli borgarinnar um árabil.
Svo margar ferðtöskur fundust í húsinu, að lögreglan gat aðeins giskað á fjöldann í vikunni. Þá var verið að tína töskurnar út úr húsinu eina og eina og hlaða þeim upp í garðinum. Áætlað var að töskurnar væru um þúsund.
Lögreglan handtók Keith Wilson King, 61 árs, og Stacy Lynne Legg-King, 38 ára og ákærði fyrir stórfelldan þjófnað og fleiri afbrot. Lögreglan segir að ekki sé vitað hvað töskuþjófnaðurinn hafi staðið lengi yfir en búið var að fjarlægja merkisspjöldin af öllum töskunum.
Upp komst um hjúin fyrir þremur vikum þegar lögreglumaður sá Keith leggja bíl sínum utan við flugstöðina í Phoenix, taka tösku af færibandi og fara með hana út í bílinn. King fékk sekt og eftir þetta ákvað lögregla að fylgjast með ferðum hans. Þegar hann var staðinn að samskonar þjófnaði sl. mánudag lét lögregla til skarar skríða og gerði húsleit á heimili hans.
Að sögn lögreglu var húsið eins og ruslagámur. Auk þúsunda taskna voru föt og ýmsir munir og rusl út um allt.
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Fréttir, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »